Tíminn - 11.01.1980, Qupperneq 15
Föstudagurinn H. janúar 1980
ÍÞRÓTTIR
15
Ingi Bjöm undir skurðhnffinn?
Glæsimarkvarsla
Jens Einarssonar
— þegar íslendingar unnu sigur 21:15 yfir Norðmönnum
Markvörðurinn snjalli Jens Einarsson var i miklum
vigamóði i Realschulsporthalle i Werden, þegar is-
lenska landsliðið vann öruggan sigur 21:15 yfir
Norðmönnum i Baltic Cup i gærkvöldi. Jens var
eins og berserkur i markinu og varði oft mjög
snilldarlega — alls 18 skot i leiknum og þar af 3 vita-
köst.
— „Við erum að sjálfsögðu
mjög ánægðir með sigurinn — við
Viggó er
farinn til
Spánar...
Viggó Sigurðsson, sem hefur leik-
ið mjög vel með landsliðinu f Bal-
tic Cup, yfirgaf herbúðir fslenska
liðsins eftir landsleikinn gegn
Norðmönnum — hann hélt þá til
Spánar, en þar leikur hann mjög
þýðingamikinn leik með Barce-
lona i spænsku 1. deildarkeppn-
inni á sunnudaginn. —
— SOS
mættum ákveðnir til leiks og meö
þvi hugarfari, að koma ekki heim
með tap gegn Norðmönnum á
bakinu”, sagði Jens Einarsson,
eftir leikinn.
Jens sagði að vörnin hafi verið
geysilega sterk — það er alltaf
skemmtilegt að leika með góða
vörn fyrir framan sig. Við náðum
þarna að leika heilan leik á full-
um krafti og sóknarleikurinn var
yfirvegaður og markviss. Leik-
flétturnar gengu upp, sem sést
best á þvi að við skorum 50% af
mörkunum af linu og úr vitaköst-
um, eftir að brotið hafi verið á
leikmönnum i dauðafærum á lin-
unni,” sagði Jens.
tslenska liðið byrjaöi mjög vel
— það var Steindór. Gunnarsson
sem gaf tóninn, með glæsilegu
marki af linu, eftir sendingu frá
Bjarna Guðmundssyni, sem átti
mjög góðan leik. tslenska liðið
komst yfir 4:0, en staðan var 12:9
fyrir tslandi i leikhléi. Þegar 10
min. voru til leiksloka voru strák-
arnir búnir að ná 7 marka forskoti
18:11 og öruggur sigur þeirra var
i höfn — 21:15.
Aðeins fjórir leikmenn skoruöu
mörk islenska liðsins — Viggó 6,
Bjarni 5, Þorbergur 5 og Steindór
4.
—sos
STAÐAN
Úrslit leikja og lokastaðan I
riðlinum i Baltic Cup, varð þessi:
A-RIÐILL:
Ísland-Noregur............21:15
A-Þýskaland-V-Þýskal....15:15
A-Þýskaland......3 2 1 0 58:46 5
V-Þýskaland......3 2 1 0 52:43 5
tsland...........3 1 0 2 48:58 2
Noregur .........3 0 0 3 47:58 0
B-RIÐILL:
Rússland-Damnörk .........23:17
Pólland-V-Þýskal. (b).....22:22
Rússland.........3 3 0 0 65:45 6
V-Þýskal. (b) ....3 1 1 1 51:58 3
Danmörk .........3 1 0 2 52:57 2
Pólland..........3 0 1 2 55:63 1
— sagði þessi marksækni Valsmaður
Keflvíkingar
ráða nýjan
þjálfara
Keflvikingar hafa ráðið til sin
nýjan þjálfara i körfuknattleik —
það er Bandaríkjamaðurinn
Monnie Ostrom frá Indiana.
% STEINDÓR... skoraði fjögur
falleg mörk af linu.
INGI BJÖRN ALBERTSSON
...fyrirliði Vals.
Bílstjór-
innútíað
aka.....
— og Islenska
landsliöiö lenti í
„skógarferö” í gær
islenska landsliðið lenti heldur
betur i skógarferð I gær — þegar
þeir voru á leið i leikinn gegn
Norðmönnum. Bifreiðastjórinn á
langferðabilnum, sem islenska
landsliðið ferðaðist með — hann
villtist og lenti i ógöngum. Endaði
ökuferð hans með þvi að hann
festi langferðabílinn, með þeim
afleiðingum aðislenska landsliðið
kom of seint á áfangastað, þannig
að það þurfti að fresta leiknum
um 15 minútur.
— Ég er hræddur um, að ég
þurfi að leggjast undir
skurðhnífinn — úr því
verður skorið í næstu viku,
en þá mun ég fara í rönt-
genmyndatöku, sagði Ingi
Björn Albertsson, fyrirliði
1. deildarliðs Vals í knatt-
Guðni landsliðs-
einvaldur...?
Mikill áhugier fyrir þvi hjá for-
ráðamönnum i knattspyrnu, að
á næsta ári verði ráðinn lands-
liðseinvaldur, sem sjái um að
velja landsliðið og stjórna þvi i
iandsleikjum Háværar raddir
hafa verið uppi um þetta, eftir
hina miklu óstjórn sem var á
landsiiðsmálum sl. sumar — en
þá sá þriggja manna landsliðs-
nefnd um val la nds liðsins.
Guðni Kjartansson, fyrrum
fyrirliði landsliðsins og þjálfari
frá Keflavik, hefur verið sterk-
lega orðaður sem fyrsti lands-
liðseinvaldur i knattspyrnu.SOS
Fiórir Skagamenn
í V-Þvskalandl
Karl Þórðarson aftur til Akraness?
— Við förum að undirbiía okkur
fyrir baráttuna i sumar af full-
um krafti — veið eigum von á
æ f i ng a rp r ó gra m m i frá
Klaus-Jörgen Hilpert nú á næstu
dögum, en Hilbert kemur til
Akraness 1. febrúar, sagði
Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnuráðs Akraness.
Gunnar sagðist vera mjög
bjartsýnn á keppnistimabilið og
það væri mikill hugur i Skaga-
mönnum. — Fjórir af okkar
efnilegustu mönnum dveljast nú
i Köln við æfingar á vegum Hil-
berts, það eru þeir Bjarni
Sigurðsson, markvörður og
Kristján Olgeirsson og ungu
leikmennirnir Sigurður Páll
Harðarson og Astvaldur Jó-
hannsson, sagði Gunnar.
— Hvað með Karl Þórðarson
— áttuvonáaðhannkomi heim,
þegar samningur hans við La
Louviere rennur út i vor?
— Ég get ekkert sagt um það
að svo stöddu, en Karl hefur
áhuga á að koma heim, ef hann
fær ekki góðan samning I Belgíu
— hjá La Louviere eða öðru fé-
lagi.
-SOS
spyrnu í stuttu spjalli við
Timann.
— Ég hef átt við meiðsli að
striða í ökla i 8 mánuði og þá finn
ég einnig til verkja i hnéi. Ef svo
færi að það þyrfti að skera mig
upp i hné og ökla, þá má reikna
með að ég verði frá æfingum og
keppni I þrjá mánuði, sagði Ingi
Björn. — SOS
Knatt-
spyrnu-
punktar
KARL ÞÓRÐARSON
Islenska landsliðið í Baltic Cup í V-Þýskalandi
„Ég er hræddur um það”...
Strákam-
ir mæta
Dönum...
— en A-Þjóðverjar
og Rússar leika
til úrslita
íslenska landsliðið leikur gegn
Dönum um 5,6.sætið I Baltic Cup
— i OTB-Halle Haarenesch i
Oldenburg annað kvöld. — Viö
vitum að leikurinn gegn Dönum
verður geysilega erfiður, en við
munum gera okkar besta, sagöi
Jens Einarsson, markvörður.
A-Þjóðverjar og V-Þjóðverjar
gerðu jafntefli 15:15 i geysilegum
baráttuleik i gærkvöldi og leika
þvi A-Þjóðverjar gegn Rússum til
úrslita i Baltic Cup — þeir voru
með betri markatölu heldur en V-
Þjóðverjar.
Pólverjar leika gegn Norð-
mönnum um neðsta sætið en a og
b lið V-Þjóðverja, leika um þriðja
sætið.