Tíminn - 19.01.1980, Qupperneq 7
Laugardagur 19. janúar 1980.
7
Fáein orð um
Alaskalúpínu
i
1 tilefni af viðtali við Andrés
Arnalds um Alaskalúpinu i Tim-
anum sl. þriðjudag og tilkynn-
ingu frá Landgræðslu rikisins
um það, að stórfelld uppgræðsla
með lúpinu sé ekki kleif á næstu
árum langar mig til að leggja
orð i belg. 1 báðum tilvikum eru
staðhæfingar, sem ekkilfá stað-
ist.
Saga lúpinunnar hér á landi er
sú, að haustið 1945 kom ég með
litið eitt af fræi og rótum frá Al-
aska. Hvorttveggja var tekið á
vesturströnd Collegefjarðar,
en hann er ámóta stór og Hval-
fjörður og gengur inn i landið
frá botni Prince Williamsflóa.
Veðurfar á þessum slóðum er
nauðalikt þvi, sem er á ýmsum
stöðum hér á landi. Égdvaldi hjá
skógarhöggsmönnum i 10 daga,
frá 3. til 13. september og þá
daga var ýmist stormur af suð-
vestri með mikilli úrkomu, svo
vart var vinnufært, eða heið-
rikja meö norðankuli og tölu-
verðu næturfrosti. Upp af þessu
fræi og rótum er hávaðinn af
allri Alaskalúpinunni kominn,
sem nú er hér á landi. Til eru tvö
önnur afbrigði af tegundinni, en
þau hafa enga útbreiðslu fengið
enn sem komið er.
Fræinu var sáð og ræturnar
niðurgrafnar i gróðrarstöð
Skógræktar rikisins i Múlakoti.
Þar óx upp mikil lúpinubeðja á
næstu árum og fyrir forvitni
sakir var reist giröing um einn
hektara á stærð niðri á Þverár-
aurum árið 1950 til að reyna að
sjá hversu lúpinan reyndist þar
á mölinni og árframburðinum.
Er skemmst frá þvi að segja að
árangurinn varð framar öllum
vonum. Eftir það var hún sett
niður á ýmsa staði og nú eru til
lúpinubreiður á ýmsum stöðum
á landinu, sem þekja marga tugi
hektara.
Hér skal ekki frekar skýrt frá
þvi, hve lúpinan er auðveld i
ræktun þótt freistandi sé, en
þess má þó geta að hún nær að
þroska fræ á hverju ári allt frá
sjó og upp i 300 til 400 metra
hæð. A láglendi blómgast hún
oftast fyrir Jónsmessu á sumri
og þá eru fyrstu fræin þroskuö
um miðjan ágústmánuð. Mjög
er auðvelt að safna lúpinufræi,
en það kostar nokkra vinnu.
Skógrækt rikisins hefur um
mörg ár látiö safna fræi eftir
þörfum og á stundum allmiklu
magni en mest i eigin þágu.
Staðhæfing Sveins Runólfssonar
og Stefáns Sigfússonar aö
lúpinufræ hafi ekki verið og
verði ekki fáanlegt á næstu
árum er alveg út i bláinn. Þeir
lúpinuakrar, sem þegar eru til
mundu geta gefið af sér nokkur
tonn-á ári, ef vel væri eftir
leitað, og það þarf ekki nema
þrjú ár til að koma upp nýjum
lúpinuökrum, sem gætu gefið af
sér hundruð tonna. Svo einfalt
er þetta.
En að minum dómi, og ég
þykist hafa nokkra reynslu af
Hákon
Bjarnason
lúpinunni allt frá 1945, er miklu
auðveldara að fjölga lúpinu og
koma upp samfelldum lúpinu-
breiðum með þvi að setja niður
1000 til 2000 rótarbúta á hektara
lands heldur en með sáningu.
Með þessum hætti verður landið
fullgróið á 4-6 árum og
kostnaður alveg hverfandi. En
lúpinurætur má taka i tonnatali
á hverju vori.
Það er fráleit staðhæfing að
segja að uppgræðsla með lúpinu
sé sex sinnum ódýrari en gras-
fræsáning af þeirri einföldu
ástæðu að enginn virðist vita
hvað grasfræsáningin kostar.
Það er ekki unnt að bera
ákveðna stærð saman við óræða
tölu. Ég hef hvergi séð né fundið
greinargerð fyrir þvi, hvað
áburðardreifing og fræsáning,
t.d. með flugvél, kostar á hekt-
ara lands. Ef þetta er til væri
fróðlegt að sjá þær tölur. Þá má
fyrst bera saman kostnað af
hvorutveggja.
Vel má vera að lúpinuræktin
sé sex sinnum ódýrari én gras-
fræsáningin, en hún gæti ef til
vill verið jafndýr. Hún gæti lika
verið 10-15 sinnum ódýrari.
Hverveit? Þetta er rannsóknar-
efni.
En það er fleira, sem kemur
til greina, meðal annars ending
ræktunarinnar og nýting. Við
grasrækt þarf endurtekna
áburðargjöf, tvisvar eða þrisv-
ar sinnum, eða kanski oftar,
hver veit? Lúpinuræktun þarf
ekki nokkurn áburð. Lúpinan
hleður hinsvegar upp köfunar-
efni i jarðveginn, hún er betri en
nokkur áburðarverksmiðja.
Reynsla er fyrir þvi, að þegar
lúpina er slegin eftir hæfilegan
árafjölda velta bæði grös og
jurtir upp úr jarðveginum þann-
ig að landið er algróið haustið
eftir sláttinn.
Undir lúpinu kviknar urmull
ánamaðka, sem flýta fyrir
moldarmyndun úr lúpinufeyr-
unni, þannig að á skömmum
tima myndast frjór jarövegur
efst á melum eða i móum.
Ýmsir hafa haft beyg af þvi,
að lúpínan væri svo eitruð að
búfé væri hætt. Raunin hefur
hinsvegar orðið sú, að kindur
sækjast mjög eftir lúpinu og
verður gott af. Væri efalaust
betra fyrir sauðfé að komast á
lúpinuvaxið land heldur en i
fóðurkál á haustdegi, þar sem
litið er úr að hafa nema vatn.
Að endingu skal þess aðeins
getið að Landgræðslu rikisins
hefur um mörg ár staðið til boða
bæði lúpinufræ og rætur, ef hún
vildi nýta það, en það boð hefur
enn ekki verið þegið, hvaö svo
sem siðar kann að verða.
Hinsvegar má geta þess, að
bæði Sviar og Finnar hafa
fengið nokkur kilógrömm af
lúpinufræi héðan ásamt rótum,
og hjá þeim eru nú tilraunir i
gangi til að ganga úr skugga
um, hvort ekki megi nota hana
til að auka köfnunarefnis-
magnið i jarðvegi á norður-
slóðum. Hákon Bjarnason
tékkhefti og
Sex milljarða
önnur tékkhefti
Nokkru eftir að núverandi
rikisstjórn tók við undir vernd-
arvæng Geir Hallgri'mssonar,
hafði fjármálaráðherra Sig-
hvatur Björgvinsson veður af
þvi, að hlaupareikningur rikis-
sjóðs í Seðlabankanum væri i
.plús. Var ekki látið undir höfuð
leggjast aö kynna þetta ,,afrek”
landsmönnum, en landsmenn
flestir brostubara að barnaskap
ráðherrans. A eftir héldu sumir
jafnvel, að hann hefði tekið
út nokkurn þroska af undirtekt-
um þegnanna. En viti menn, á
þettándadag jóla tilkynnir ráö-
herrann, að hann hafi haft sex
milljarða undir koddanum, þeg-
ar árið 1979 hvarf í aldanna
skaut. Og nú hlógu landsmenn,
— sniöugt þrettándagrin atarna.
Þrátt fyrir það varð æði
mörgum aö orði eða hugsuðu
svipað og haft er eftir barninu i
ævintýrinu um nýju fötin keis-
arans, að hann væri ekki i neinu.
Sveitastjórnarmenn og fjár-
haldsmenn skóla vissu a.m.k.
að ríkissjóður var i vanskilum
með endurgreiðslur vegna
skólakostnaðar i nóvember og
sumt jafnvel eldra.
Þessi greiðsludráttur rikis-
sjóðs hefur kostað þessa aðila
ómælda fyrirhöfnog aukakostn-
að, t.d. vaxtagjöld, sem falla al-
farið á sveitasjóði.
Þessa daga siðan á þrettánda
hafa yfirlýsingar og athuga-
semdir viö athugasemdir geng-
ið á vixl i fjölmiðlum og fjár-
málaráðherrann hefur hagað
sér eins og þrætugjarn krakki.
Fræðslustjóri Norð-Austur-
landskjördæmis gerði skil-
merkilega grein fyrir stöðu og
gangi málsins I sinu umdæmi I
fréttum útvarps (8/1), og sömu
sögu er að segja um allt land.
Bjóst ég nú við, að ekki yrði
frekar véfengt um vanskil rikis-
sjóðs viö sveitasjóði, en fjár-
málaráðherra þrætti enn i
kvöldfréttum sama dag.
Heldur ráNierra virkilega, að
sveitastjórnamenn og fjár-
haldsmenn skóla vitt um land,
hafi tekið sig saman um aö
væna rikissjóð um vanskil, vit-
andi um eitthvað annaö sann-
Jón G.
Guðbjörnsson
Lindarhvoli
Li
ara? Þaöskiptir i sjálfu sér ekki
nokkru máli, hvar hlutirnir eru
látnir stranda i kerfinu. Rikis-
sjóður er jafnt I vanskilum fyrir
þvi. Ef menntamálaráðherra er
hins vegar einn ábyrgur fýrir
þvi, að hafa stungið áðurnefnd-
um greiðslubeiönum undir stól,
er rétt aö hann upplýsi það opin-
berlega.
Núer svo komið fyrir mér, að
það er orðið aukaatriði, hvort
sex milljarðar eru inn á einu
tékkhefti og önnur eru galtóm.
Þegar svona glæsilegur árangur
i fjármálastjórn næst með þvi,
að greiða ekki áfallinn kostnað,
en krefja innheimtumenn rikis-
sjóðs um skil á hverri einustu
krónu, sem innheimtisttilkl. 2á
hádegi á gamlársdag, er þarf-
laust að veraaðslá sérupp á þvi
I fjölmiðlum og verða aö athlægi
fyrir.
Hitt er öllu alvarlegra, ef
menn sem ætla sér stóran hlut i
stjórnmálum eins og Sighvatur
Björgvinsson, reynast verða
harösvíraðir „sófistar”, sem
hafa hausavixl á réttu og röngu,
ef þeim er það hentara.
Hverjir eru það, sem á undan-
förnum misserum, hafa á Al-
þingi krafist sannleikans i ýms-
um málum og að hitt og þetta
Er þetta ekki umhugsunarefni
fyrir þá sem veittu honum
brautargengi?
væriupplýst á skýlausan hátt og
jafnvel haft uppi ásakanir um
yfirhylmingar og siöleysi? Eða
hvers konar tegund af sannleika
var veriö að leita eftir? Er þetta
ekki umhugsunarefni, sem vert
erað gefa gaum að, a.m.k. fýrir
þá sem veitt hafa slikum mönn-
um brautargengi inn I sali Al-
þingis?
9. janúar 1980.
EFLUM TÍMANN
Sjálfboðaliðar hringi i sima
86300 eða 86538, Síðumúla 15
Reykjavik, á venjulegum skrif-
stofutima.
Þeim sem senda vilja framlög
til blaðsins er bent á að giró-
seðlar fást í öllum pósthúsum,
bönkum og sparisjóðum. Söfn-
unarreikningurinn er hlaupa-
reikningur nr. 12951 Samvinmi-
bankanum.
Styrkið Tímann
Fyllið út þennan seðil og sendið tii Tímans .
í pósthólf 370, Reykjavík
Ég undirritaður vil styrkja Timann með
þvi að greiða í aukaáskrift
□ heíia ' □ háifa á mánuði
Nafn ___________________________________________
Heimilisf.------------------—-------------------
____________________________________________Simi