Fréttablaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 16
Á
heildina litið eru
Jón og Guðrún þau
nöfn sem enn þann
dag í dag eru al-
gengust í þjóð-
skrá Íslendinga.
Séu aldurshóparnir skoðaðir má
þó sjá að allra síðustu árin hafa
straumar og stefnur í nafngift-
um breyst mikið. Langt fram á
20. öldina var topp tíu listinn yfir
vinsælustu nöfnin nokkurn veg-
inn sá sami og hann hafði verið
árið 1700 þar sem sígild nöfn á
borð við Guðmundur, Bjarni, Sig-
ríður, Margrét og Ólafur trónuðu
í efstu sætum. Upp úr 1950 fór
það smám saman að breytast og
feður og mæður landsins urðu sí-
fellt djarfari og nýjungagjarn-
ari í nafngiftum. Í dag er líklegt
að barnið sem þú sérð leika sér
í sandkassanum heiti eftir stór-
borginni þar sem það var getið
frekar en eftir ömmum sínum og
öfum. Nú eða teiknimyndahetja
á borð við Ariel hafi miklu frek-
ar heillað foreldrana en nafnið
á langömmu- eða afa. Líkt og Ís-
lendingar ganga í gegnum mis-
munandi hárskeið eru foreldr-
ar landsins sömuleiðis í gíslingu
tískunnar hvað mannanöfn snert-
ir. Án þess þó að gera sér kannski
grein fyrir því fyrr en yfirlit yfir
algengustu mannanöfn er tekið.
Hvað karlmannsnöfn snertir hefur
Jóninn ráðið ríkjum í hundruð ára
og gerir það enn. Að vísu er tíðin
önnur þegar fimmti hver íslensk-
ur karlmaður bar nafnið en í dag
eru það aðeins 2% karlmanna sem
bera nafnið svo að fjöldi þeirra
nafna sem eru í umferð er mun
meiri en áður.
Á áttunda áratugnum fylltist
þjóðskrá af nýjum nöfnum enda
hipparnir, með opna og víðsýna
huga, hættir að reykja hass og
farnir að eiga börn og buru. Í kjöl-
farið fylgdi holskefla nýrra nafna.
Andri, sem ekki hafði sést á topp-
listanum, komst í efri sætin sem
og nafnið Daníel. Eitthvað hefur
náttúran og dýralífið verið hippun-
um hugleikið því Kári, Arnar og
Örn urðu næstvinsælustu nöfnin
á þessum árum, Arnar sem fyrra
nafn og Örn sem seinna. Davíð og
Sindri tóku slaginn við toppana á
listanum og náðu að hasla sér völl
sem vinsælustu nöfnin.
Goðafræðin kom líka sterk inn
með blómabörnunum sem skírðu
afkvæmi sín eftir fuglum og Þór
og Freyr urðu það heitasta heita,
sérstaklega sem seinni nöfn. Nöfn
hafa líka komið og farið. Burkni
var til að mynda mjög móðins í
kringum 8. áratuginn en í dag eru
nýskírð börn fæst kennd við þann
gróður.
Nokkrum árum síðar var ný kyn-
slóð foreldra tekin við og um miðj-
an tíunda áratuginn mátti sjá þess
glögg merki að svokölluð A-nöfn
rúluðu í þjóðskrá. Alexander byrj-
aði hægt og bítandi að skríða upp
listann og í dag ber afar stór hluti
yngstu kynslóðarinnar nafnið.
Ekkert jafnast þó á við það mikla
Arons-æði sem greip um sig meðal
nýbakaðra foreldra og eins undar-
legt og óútskýranlegt og það kann
að virðast er það í öðru sæti yfir
algengasta karlmannsnafn á leik-
skólum landsins. Sérlega vinsælt
er að splæsa öðru nafni með og
Aron Ingi og Aron Máni eru tví-
nefnasmellir síðustu ára. Enda
eru tvínefni mun vin- sælli í
dag en áður þar sem hér á öldum
áður heyrði það til undantekninga
ef einstaklingar báru tvínefni. Það
fór ekki að breytast fyrr en um
miðjan sjöunda áratuginn og í dag
bera 80% barna á aldrinum 0-4 ára
tvö nöfn. Allra vinsælasta tvínefni
dagsins er Andri Snær en Sindri
Snær kemur þar rétt á eftir.
Af gömlum slögurum eru nöfnin
Sigurður og Jón þau einu sem enn
eru á topp 10 og Guðmundarnafn-
ið á alltaf sinn fasta aðdáendahóp.
Guðrún var allra vinsælasta kven-
mannsnafnið samkvæmt mann-
tali árið 1703 og er enn þann dag
í dag drottning þjóðskrár. Þó er af
sem áður var þegar 17% kvenna
báru nafnið en í dag heita aðeins
um 2% kvenna Guðrún. Og ef
þær hétu ekki það hétu þær Sig-
ríður, Margrét, Ingibjörg, Kristín,
Helga, Þuríður, Guðríður, Guðný
og Þórunn. Um miðja 19. öld er
nafnið Guðrún enn algengast en
hástökkvarinn á þeim tíma er þó
nafnið Anna sem kemur sterkt
inn og síðustu fjögur árin hefur
verið algengast að stúlkubörn séu
skírð því nafni. Klassíkin ræður
þó áfram ríkjum og segja má að
breytingarnar verði fyrst áþreif-
anlegar upp úr 1970. Sandra og
Sara dúkka upp sem vinsæl nöfn
og verða tískunöfn þessara ára og
við þær sem ekki vorum skírð-
ar þeim nöfnum vildum innst inni
allar heita Sara eða Sandra. Hild-
ur kemur sterk inn og flýgur í átt-
unda sætið í kringum 9. áratug-
inn en hafði tuttugu árum áður
ekki einu sinni verið meðal þeirra
nafna sem voru í fyrstu fimmtíu
sætunum. Íris er blóm blómanna
og Íris Ósk varð mjög vinsælt tví-
nefni á 9. áratugnum. Rakel og Sif
voru líka mjög í anda þess tíma og
margar frænkur og systur báru
nafnið Karen. Með auknum vin-
sældum tvínefna komu nöfnin
Rut, Ýr, Dögg, Lilja, Rún og Björk
í nafnapartíið sem seinni nöfn.
Síðustu árin hefur allt verið vit-
laust á nafnamarkaðinum og ný
og ný nöfn líta dagsins ljós á degi
hverjum. Af vinsælustu kven-
mannsnöfnum allra síðustu ára
má nefna Freyju, Birtu og Telmu.
Guðrún er komin í fjórða sætið
og Rakel og Sara eru enn mjög
vinsæl. Ný nöfn skjótast upp vin-
sældalistana og þar má sjá Aþenu,
Magðalenu, Alexöndru, Natalíu,
Anítu og Emblu mjög ofarlega.
Hvað seinni nöfn varðar þykja
nöfnin Sól, Eir, Marín, Ösp, Líf
og Mist greinilega mjög smart og
Ósk lifir góðu lífi ennþá. Í báðum
flokkum, karla og kvenna, eru Al-
exander og Alexandra „hittarar“
síðustu ára.
Frá Guðrúnu til Aþenu
Í nokkur hundruð ár hét einn fimmti þjóðarinnar annað hvort Gunna eða Jón. Týnd börn á 17. júní
eru í dag þó sjaldnar kölluð upp eftir þeim nöfnum. Mun líklegra er að í hátalarakerfinu sé auglýst
eftir Andra Snæ, Jasmín Dúfu, Aroni Inga eða jafnvel Þoku Klementínu. Júlía Margrét Alexandersdóttir
kynnti sér hvaða mannanöfn eru þau heitustu við skírnarfonta landsins í dag.