Tíminn - 05.02.1980, Qupperneq 20
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Auglýsingadeild
Tímans.
18300
FIDELITY
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
Q.lhlJ\IAI Vesturgötu II
wJUIIfHli simi 22 600
Folald
í klæði-
legri
peysu
Okkur hefur borist mynd af fol-
aldi, sem viö sláum ekki hendinni
á móti, enda slfkar myndir ekki á
hverju strái.
Folaldiö þaö arna fæddist aö
Þverlæk I Holtum um páskaleytiö
i fyrra. Þá var kuldatiö, og þess
vegna var þaö ráö tekiö aö færa
þaö i klæöilega peysu, útprjónaöa
og hreint ekki af verri endanum,
þegar þvi var hleypt úr hilsi meö
móöur sinni, svo þaö gæti hreyft
sig og boriö sig um.
Folaldiö var I peysunni heila
viku á meöan þaö var aö venjast
þeirri köldu veröld, sem þaö er
fætt i, og virtist kunna þessari
skjólflik vel.
,,Nú er ég klæddur og kominn á
ról”. — Ljósmynd: Guöni Guö-
mundsson.
Reykjavikurborg:
Samkeppni um gerð uppdrátta
2. áfanga Eiðgrandasvæðisins
FRI — Reykjavikurborg efnir
nú til samkeppni um gerö upp-
drátta af einbýlis- og raöhúsum I
2. áfanga Eiögrandasvæöisins.
Keppt er um gerö uppdrátta aö 12
einbýlis- og raöhúsum f þyrpingu
en hér er um aö ræöa nýjan
hverfishluta noröan Granaskjóls.
Fyrir liggur samþykkt deildar-
skipulag i skipulagsnefnd og
borgarráöi en á þessu svæöi er
gert ráö fyrir 8 þyrpingum, sam-
tals 64 Ibúöum i raöhúsum og 35 i-
búöum I einbýlishúsum.
Tilgangur keppninnar er aö fá
fram 3-5 verulega góöar tillögur
sem hvort tveggja i senn eru sem
jafnastar aö gæöum, en þó ólfkar
aö gerö og útliti. Þá má þess
vænta aö val úthlutunarhafa
dreifist á fleiri tillögur og aö
byggöin mótist af heilsteyptum
þyrpingum meö mismunandi sér-
kennum. Þar meö fá úthlutunar-
hafar tækifæri til þess aö velja
þaö hús og þaö umhverfi sem
þeim hentar best. Verölaunafjár-
hæö er 8 millj. kr. og skiptist hún
jafnt milli sigurvegaranna.
A blaöamannafundi er
dómnefnd sú er mun skera úr um
hvaöa tillögur eru bestar hélt,
kom þaö fram aö mikil áhersla er
lögö á heilsteypt yfirbragö þyrp-
ingar og á góöa lausn einstakra
húsa. Auk þess var keppendum
bent á aö gera grein fyrir aölög-
unarhæfni ibúöana fyrir mismun-
andi fjölskyldustæröir og þarfir.
Formaöur dómnefndar er
Þóröur Þ. Þorbjarnarson.
Fjölmennur ráðu-
nautafundur
JSS— 1 gær hófst aö Hótel Loft-
leiöum fundur ráöunauta og ann-
arra þeirra sem starfa aö land-
búnaöarmálum. Rúmlega hundr-
aö manns sátu fundinn en honum
veröur fram haldiö i dag.
1 gær voru flutt allmörg erindi
og voru almennar umræöur aö
þeim loknum. M.a. flutti Bjarni
Guömundsson, Bændaskólanum á
Hvanneyri erindi um nýleg viö-
horf til verkunar þurrheys og
Grétar Einarsson ræddi um hey-
dreifibúnaö i hlööur. En slikar
búnaöur var I prófun hjá Bú-
tæknideild sl. sumar. Ræddi
Grétar uppbyggingu búnaöarins
og hvernig hann ynni. Sagöi hann,
aö þrátt fyrir skamman reynslu-
tima, virtist þessi tækjabúnaöur
leiöa til mjög jafnrar dreifingar.
Þá væri verulegur kostur, miöaö
viö heföbundnar dreifiaöferöir,
aö hvert vagnhlass dreiföist yfir
stórt svæöi, semminnkaöi likurn-
ar á aö litiö magn af illa þurru
heyi gæti valdiö hitamyndun.
Framhald á bls. 19.
Iðntæknistofnun að leggja síðustu hönd á hagkvæmnikönnun:
Steinullarverksmiðja í Grafar-
vogi myndi skila 15,4% arði
JSS — „Viö höfum aö undan-
förnu unniö aö hagkvæmniat-
hugun á aö reisa hér steinullar-
verksmiöju. Þeirri athugun er
nú lokiö aö okkar hálfu, og viö
sendum væntanlega skýrslu frá
okkur um máliö alveg á næst-
unni,”, sagöi Friörik Danielsson
hjá Iöntæknistofnun i samtali
viö Timann.
„Upprunalega var þetta unniö
fyrir Iönaöarráöuneytiö og siö-
ari hlutinn hófst 15. mai sl. vor
samkvæmt samningi viö
Iönaöarráöuneytiö. Þá var hug-
myndin aö viö geröum fram-
kvæmni athugun fyrir ráöu-
neytiö varöandi steinullarverk-
smiöju, sem væri miöuö viö ein-
hverjar vissar forsendur. Miðaö
var viö staösetningu I Reykja-
vik til aö hafa einhverja á-
kveöna viömiöun. Þessi athug-
un var svo unnin I sumar aö
hluta I samvinnu viö aöila I Nor-
egi og Sviþjóö.
Iönaöarráöuneytiö hætti viö
aö láta okkur ljúka áætluninni.
Þegar hlutaáætlanirnar, þrjár
aö tölu, voru komnar, hætti
ráðuneytið viö aö láta stofnun-
ina gera samantektina, en hún
ákvaö aö gefa út samantekt á
eiginn kostnaö. Og þaö er hún
sem veröur gefin út nú eftir
nokkra daga”.
Aöspuröur um niöurstööur,
sagöi Friörik aö þær væru miö-
aöar viö staösetningu i Grafar-
vogi I Reykjavik. Væru þær
miöaöar viö aöstæöur, eins og
þær heföu veriö á miöju ári 1979.
Samkvæmt þeim yröi heildar-
stofnkostnaöur viö verksmiöj-
una samtals 70.165 þúsund
sænskar krónur. Byggingar-
kostnaöur næmi skv. þessu 25.96
milljónum og tækjakostnaöur
35.495 millj. sænskra króna og
tækjauppsetning og gang-
setning 7.283 millj. króna.
Sagöi Friörik, aö samkv.
þessum niöurstööum myndi slik
verksmiöja bera sig. Miöaö viö
aö framleidd yröu 14.400 tonn á
ári, myndi áætlaöur rekstrar-
kostnaöur nema 24.2 millj.
sænskra króna. Söluverömætiö
næmi 50.85 millj. s.króna, en ó
móti kæmi flutningskostnaöur
til útlanda sem næmi 11 millj. s.
króna. Agóöinn, væri 10.8 milj.
króna á ári sem samsvararöi
15.4% aröi, en þá ætti eftir aö
draga frá skatta.
„Þessir útreikningar eru
miöaö viö áriö 1979 eins og ég
hef áöur getiö, en nú er sérstak-
lega mikil eftirspurn eftir stein-
ull nú á Evrópumarkaði og hún
er I háu verði. Þannig aö þeir
þættir sem hafa breyst, eru já-
kvæöir fyrir niöurstöðum
athugunarinnar.
En þaö sem er ákvaröandi
fyrir hagkvæmnina er
flutningskostnaöur til útlanda
og hvesu fljótur innanlands-
markaöurinn er aö þróast. Eins
er erlendi markaöurinn stórt at-
riöi og útlit fyrir aö eftirspurnin
veröur jafn mikil næstu árin og
verið hefur. Stofnunin hefur átt
viðræöur viö þrjá erlenda aöila
og þeir eru reiöubúnir aö kaupa
um þaö bil 10.000 tonn á mark-
aðsveröi.
Þá má segja aö staösetningin
sé töluvert mikilvægur hluti I
þessu máli, þar sem stærstur
hluti innanlandsmarkaöarins
liggur aö stórum hluta náiægt
Reykjavik. En staðsetningin
hefur ekki veriö ákveöin og viö
gefum skýrsluna út meö þessum
forsendum til aö hafa einhverj-
ar slikar til aö ganga út frá”,
sagöi Friðrik Danielsson.
Iðnaðarráðherra:
Beðið eftír frekari upplýsingum
áður en ákvörðun um verksmiðjuna verður tekin
JSS — „Þetta mál hefur aö
undanförnu veriö kannaö aö
hálfu samstarfsnefndar um iön-
þróun, Sauökrækiinga og Iön-
tæknistofnunar. En þaö er ekki
komiö svo langt, aö um sé aö
ræöa neinar ákvaröanir, enn
sem komiö er”, sagöi Bragi Sig-
urjónsson iönaöarráöherra er
Timinn spuröi hann hvort
ákvaröanatöku ráöuneytisins
um staösetningu steinullar-
verksmiöju væri aö vænta innan
tiöar.
Sagöi Bragi aö eftir væri aö
skoöa fjármálahliöina niöur I
kjölinn. Hann kvaöst ekki hafa
séö skýrslu Iöntæknistofnunar
og þvi ekki geta tjáö sig um
innihald hennar.
„Ég hygg aö Iöntæknistofnun
hafi kannaö fjármáiaþáttinn
sérstaklega en Samstarfsnefnd-
in einkum skoöaö máliö frá
efnafræöilegu sjónarmiði. Þær
starfa báöar á vegum ráöu-
neytisins og söfnun upplýs-
inga.
En ég á ekki von á aö ákvörö-
un veröi tekin alveg næstunni.
Sauökræklingar eru aö fara af
staö meö fjárhagslega könnun
og ekki er hægt aö ákveöa neitt
fyrr en þær niöurstöður liggja á
boröinu. Þar á eftir veröur ef til
vill frekar um pólitiska ákvörö-
un aö ræöa, þ.e. hvort aðeins
veröur reist ein verksmiðja, eöa
einnig steinefnaverksmiöja á
Suöurlandi eins og rætt hefur
veriö um, og eins hvar stein-
ullarverksmiöjan veröi sett niö-
ur meö tilliti til atvinnuhorfa og
annarra möguleika. En þaö er
sem sagt veriö aö vinna aö ýmsi
konarupplýsingasöfnun, til þess
aö hægt sé að taka ákvöröun um
máliö”, sagöi Bragi Sigurjóns-
son.