Tíminn - 06.02.1980, Qupperneq 6
6
Mlit i’n’i;
Miövikudagur 6. febrúar 1980
Erlent yfirlit
Loksins virðist sjást fyrir endann á þeirri
stjórnarkreppu sem hér hefur rikt siðan Alþýðu-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn tóku höndum
saman um það á sl. hausti að þing skyldi rofið og
gengið til nýrra kosninga.
Nú virðist flest, ef ekki allt, benda til þess að
myndun þingræðislegrar meirihlutastjórnar takist
undir forsæti dr. Gunnars Thoroddsen og með
stuðningi Framsóknarflokksins, Alþýðubandalags-
ins og þingmanna úr Sjálfstæðisflokknum auk
Eggerts Haukdal.
Fyrir liggur nú þegar að komi til atkvæða um
vantraust á stjórnina muni hún njóta meirihluta-
stuðnings á Alþingi. Ljóst er að slik samsteypu-
stjórn hefur meirihluta i efri deild Alþingis og i
sameinuðu þingi, og margt bendir til þess að a.m.k.
aðalmál hennar muni ná fram að ganga i neðri
deild.
Framsóknarflokkurinn hefur þegar, á
miðstjórnarfundi, samþykkt samhljóða að ganga til
þessa samstarfs. Undirtektir Alþýðubandalagsins
hafa verið mjög jákvæðar, og hefur það komið i ljós
i viðræðum um málefnasamning að fátt eitt ætti að
verða þar að hindrun. Virðast Alþýðubandalags-
menn nú reiðubúnir að ganga mjög langt til mála-
miðlunar.
Enda þótt þessa stjórnarmyndun hafi borið að með
óvenjulegum hætti vegna óvenjulegra aðstæðna er
ákaflega margt sem hnigur að þvi að slik rikisstjórn
eigi að geta orðið sterk og árangursrik. Og það er
vitaskuld þetta sem skiptir meginmáli: Að mál-
efnasamningur sé raunhæfur og skynsamlegur og
vilji sé fyrir hendi til samstarfs hjá öllum aðilum,
samstarfsvilji sem staðist getur erfiðleika og
hugsanleg áföll t.d. i efnahagsmálum.
Innanhússvandamál Sjálfstæðisflokksins hafa
mjög blandast inn i umræðurnar um stjórnarmynd-
un dr. Gunnars Thoroddsen. Þau mál koma
Framsóknarmönnum ekki við. Framsóknarmenn
eru ekki aðilar að þeim og hafa ekki áhuga á að
blanda sér i þau.
Það sem skiptir máli er að þessi tilraun dr.
Gunnars hófst eftir að forseti Islands hafði falið
þingheimi i heild að leita samkomulagsleiða. Þvi
var það sérhverjum alþingismanni rétt og skylt að
freista allra leiða.
Það sem merkilegast er i augum Framsóknar-
manna er það að forystulið Sjálfstæðisflokksins
skyldi snúast öndvert þegar dr. Gunnari Thorodd-
sen hafði tekist að opna leið til myndunar meiri-
hlutastjórnar.
Af hálfu Framsóknarflokksins var ekki farið á
bak við forystulið Sjálfstæðisflokksins. Allt tal
foringja Sjálfstæðismanna um áhuga einhverra á
þvi að koma illu til leiðar á þeim bæ á þvi ekki við
neitt það að styðjast sem gerst hefur á undanförn-
um dögum. Þar hefur allt verið unnið af fullum
drengskap af hálfu Framsóknarmanna.
Sannleikurinn er sá að forystulið Sjálfstæðis-
flokksins hefur haft öll tækifæri til þess að taka full-
an þátt i viðræðunum. Forysta flokksins kaus þess i
stað að leggjast þversum i þessu mikilvæga máli,
a.m.k. á þvi stigi sem það nú er. dr. Gunnar
Thoroddsen hefur tekið það fram i fjölmiðlum, að
hann voni að Sjálfstæðisflokkurinn i heild muni
ganga til samstarfsins.
Það sem mest er um vert er að nú virðist stjórn-
arkreppan leyst. 1 sjónmáli er samsteypustjórn
sem á að hafa alla burði til þess að takast á við
vandann af fullri einurð og ábyrgðartilfinningu.
JS
Ekkert lát á hryðju-
verkum á Ítalíu
Rikisstjóm Gossiga ríðar til falls
Francesco Cossiga
SÍÐASTLIÐINN laugardag
lauk I neöri deild italska þings-
ins umræðum, sem höföu staöiö
i marga daga sökum málþófs
þingmanna Radíkala flokksins,
en hann er róttækur vinstri
flokkur, er vann verulega á I
siðustu þingkosningum.
Til umræðu var frumvarp
sem fól i sér mjög aukin völd
lögreglunni til handa i baráttu
hennar við hryöjuverkamenn.
Auk málþófsins, fluttu þing-
menn Radikala flokksins ekki
færri en 2700 breytingatillögur
viö frumvarpiö i þeim tilgangi
aö tefja fyrir afgreiöslu þess.
Radíkali flokkurinn taldi sig
ekki andvigan frumvarpinu,
sökum þess aö hann bæri
hryðjuverkamenn fyrir brjósti,
heldur óttaöist hann að ákvæö-
um frumvarpsins, ef aö lögum
yröi, myndi beitt gegn fleirum
og þvi gæti þetta orðið upphaf aö
fasistisku stjórnarfari.
Þrátt fyrir þessa mótspyrnu
Radikala flokksins, var frum-
varpiö samþykkt meö yfirgnæf-
andi meirihluta I neöri deildinni
eöa meö 522 atkvæöum gegn 50,
en 8 þingmenn sátu hjá. Þrir
stærstu flokkar þingsins eöa
Kristilegiflokkurinn, sósialistar
og kommúnistar studdu frum-
varpiö eindregiö. Allir þing-
menn þeirra greiddu þvi at-
kvæöi.
Aöur haföi öldungadeildin
samþykkt frumvarpiö og er þaö
þvi oröiö aö lögum.
Eins og áöur segir, eru völd
lögreglunnar mjög aukin sam-
kvæmt hinum nýju lögum, ef
hún telur sig eiga i höggi viö
hryöjuverkamenn. Lögreglan
getur haldiö meintum hryðju-
verkamanni i haldi og yfir-
heyrslum í 48 klukkustundir, án
þessaö hann geti kvatt lögfræö-
ing sér til aöstoöar. Heimilt er
aö milda dóma yfir hryöju-
verkamönnum, sem gefa lög-
reglunni réttar upplýsingar.
Lögreglan getur undir vissum
kringumstæöum gert húsrann-
sókn, án þess aö fá til þess sér-
staka heimild.
Hryðjuverkamenn, sem
myröa dómara eöa lögreglu-
menn, skulu dæmdir skilyrðis-
laust I lifstiöarfangelsi. Dauöa-
refsing hefur veriö afnumin á
Italiu.
ÞÓTT lögreglan hafi mjög
hert baráttuna gegn hryöju-
verkamönnum siðan þeir rændu
og myrtu Aldo Moro voriö 1978,
hefur hryöjuverkum ekki linnt.
Cossiga og Pertini forseti.
Rúmlegu 200 menn hafa veriö
handteknir siðan, grunaöir um
aöild aö hryöj uve rkum, o g hefur
sannazt á flesta þeirra. Nýir
hryöjuverkamenn viröast hafa
bætzt i hópinn I staö þeirra, sem
handteknir hafa veriö.
Þaö gerir starf lögreglunnar
erfiöara og flóknara, aö hryöju-
verkamennirnir starfa i hópum,
sem hafa litið eöa ekkert sam-
band sin á milli.
Hinn 6. janúar siöastliöinn
myrtu hryöjuverkamenn Santi
Mattarelle, sem var formaöur
fylkisráösins á Sikiley og
áhrifamesti leiötogi kristilegra
demókrata þar. Hann var skot-
inn, þegar hann var að koma
heim frá messu, ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Mattarelle var, likt og Moro,
fylgjandi samstarfi við
kommúnista. Vinstrisinnuö
samtök hryöjuverkamanna
hafa lýst sig bera ábyrgð á
moröi hans. Yfirieitt hafa öll
vinstrisinnuð samtök hryðju-
verkamanna lýst sig andvig
samvinnu kristilegra demó-
krata og kommúnista, þvi aö
hún hafiekki annaö markmiöen
aö viöhalda hinu borgaralega
kerfi, en þaö vilji þau leggja i
rúst.
Tveimur dögum eftir aö
Mattarelle var myrtur, felldu
hryöjuverkamenn þrjá lög-
regluþjóna i Milanó. Hryöju-
verkamennirnir geröu skyndi-
árás á bifreiö, sem lögreglu-
mennirnir voru i, og skutu á
hana 30 vélbyssuskotum, sem
uröu lögreglumönnum að bana
áður en þeir gátu snúizt til
varnar. Siöan hurfu hryðju-
verkamennirnir af vettvangi,
án þess aö til þeirra næðist.
Alls hafa 29 lögreglumenn
verið myrtir siðan 16. marz
1978, þegar Moro var rænt.
ÞAÐ var Italski forsætisráö-
herrann, Francesco Cossiga,
sem haföi forustu um setningu
áöurgreindrar löggjafar.
Ein stjórnarkreppan enn virö-
ist nú framundan á Itallu, og
lagöi Cossiga þvi allt kapp á að
fá frumvarpiö samþykkt áöur
en til hennar kæmi. Bæöi
kommúnistar og sósialistar féll-
i ustáþessaafstööuhans,entóku
jafnframt fram, aö þetta þýddi
siöur en svo stuöning viö rlkis-
stjórnina.
Cossiga myndaði stjórn eftir
þingkosningarnarl fyrra aö lok-
inni langri stjórnarkreppu.
Stjórn hans hefur byggt tilveru
slna á þvi, aö só.sialistar hafa
variö hana falli. Nú hafa þeir
afturkallaö þennan stuöning og
boriö fram kröfu um myndun
eins konar þjóöstjórnar, sem
kommúnistar ættu aðild aö.
Sósialistar telja hryöjuverka-
starfsemina og efnahagserfið-
leikana svo stór vandamál, að
flokknum beri að gera sam-
eiginlegt átak til lausnar á
þeim.
Italskir kommúnistar lýsa sig
enn sem fyrr fúsa til stjórnar-
þátttöku meö kristilegum
demókrötum. Þeir hafa auö-
veldaö hinar sögulegu sættir
meö þvi aö lýsa yfir megnri
andúö á innrás Sovétrlkjanna I
Afganistan. Kristilegir demó-
kratar eru hins vegar mjög
skiptir um þaö, eins og áNir,
hvort ganga skuli til samstarfe
viö kommúnista.
Stjórn Cossiga er sú 38.1 röð-
inni slöan siöari heimsstyrjöld-
inni lauk.
Þ.Þ.
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Glslason.
Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Slöu-
múla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495.
Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 230.- Askriftargjald kr.
4.500 á mánuöi.
Loks fundin leið
Blaöaprent. ý
V