Tíminn - 15.02.1980, Qupperneq 3
Föstudagur 15. febrúar 1980.
3
62. Búnaðarþing:
Bjargráðasióð skortir 1,1 milljarð
FRI — Bjárgráðasjóður þarf til
útlána á þessu ári 1.750 millj. kr.
en hefur aðeins fengið upp iþaö
130 millj. kr. hjá Viðlagatrygg-
ingum og bráöabirgðavixla bank-
anna 300 millj. kr. Til þess að
Bjargráöasjóður geti reitt fram-
angreind útlán skortir hann þvi
1,1 milljarð.
A þessu ári eru tekjur sjóðsins
áætlaðar 545,4 millj. kr og
hrökkva þvi tekjur skammt upp i
útgjöld.
Þessar upplýsingar komu fram
I máli Asgeirs Bjarnasonar for-
manns Búnaðarfélags Islands er
hann setti 62. þingið með ávarpi.
Lán Bjargráöasjóðs eru sem hér
segir: vegna veiðarfæratjóns 130
millj., vegna vorharðinda 70
millj., vgna heyskorts á N og NA
landi 1100 millj., vegna uppskeru-
tjóns á kartöflum 225 millj. og
vegna styrkja við flutning á heyi
og. graskögglum 225 millj.
í máli sinu sagði Asgeir að nú
væri liðin öld siðan samfelld
búnaðarfræðsla hófst hér á landi
með brautryðjendastarfi Torfa
Bjarnasonar að Ólafsdal i Dala-
sýslu en skólinn þar varð fyrir-
mynd þeirra er siðar komu.
Asgeir stiklaði á stóru i
búnaðarfræðslunni og minnti á að
bændaskólinn að Hólum væri að
veröa aldargamall og margt
þyrfti að gera til aö færa skólann i
takt við timann. Hann minnti
einnig á að timi væri kominn til að
starfræktur yrði skóli á Suður-
landi einu blómlegasta héraöi
landsins.
Auk þess kvað Asgeir alltof fáa
bændur hafa sótt búnaöarskóla
eða innan við 20%. „Hver er
ástæðan?” spurði Asgeir. „Eiga
skólarnir einhver þátt i þvi aö
fyrirkomulag þeirra eða er
búskapur talinn svo auöveldur i
framkvæmd aö þeir sem hann
stunda þurfa enga fagmenntun?”
Markmið
Þrátt fyrir kulda og slæmt
tiðarfar á siöasta ári aftraði það
bændum ekki frá þvi að standa i
umbótum, þvi stofnlánadeild
landbúnaöarins veitti 974 lán til
bænda að upphæð 2,970 millj. kr.
öll lánin eru 100% visitölubundin
en maö lágum vöxtum. Sagði
Asgeir að vonandi tækist að gera
Stofnlánadeildina öfluga svo hún
gæti orðið styrk stoð fyrir upp-
byggingu i landbúnaði þvi bændur
hefðu ekki i önnur hús að venda
með lánafyrirgreiðslu.
Stjórn Bjargráðasjóðs hefur
samþykkt að óska eftir að lögum
hans verði breytt þannig að fram-
lög sveitarfélaga hækki úr 150 kr.
á mann I 300 kr. og að búnaðar-
málasjóösgjald hækki úr 0,3% i
0,6%. Næöi þetta fram aö ganga
þá mundu tekjur sjóðsins hækka
um 300 millj. kr. á ársgrundvelli.
Asgeir minnti á nokkur mikils-
verð atriði sem komu fram á sið-
asta Búnaöarþingi þegar það
fjallaði um breytingar á fram-
leiösluráöslögum og þingsálykt-
anir um stefnumörkun i landbún-
aði:
1. Byggð verði viðhaldiö i öllum
meginatriðum.
2. Búvöruframleiösla fullnægi
jafnan innanlandsþörf, leggi
til iðnaðarhráfefni og beinist
aö útflutningi, þegar viðun-
andi verðlag næst erlendis.
3. Tekjur og félagsleg aöstaöa
sveitafólks sé sambærileg viö
það, sem aörir landsmenn
njóta
Til að ná þessum markmiðum
þarf:
aö endurbæta lög um Fram-
leiðsluráö landbúnaðarins
o.fl. með tilliti til framleiöslu-
stjórnar og samræma fram-
kvæmd þeirra laga og hag-
stjórnaraögerðir hins opin-
bera (s.s. niöurgreiöslur,
verðtryggingu, byggðastuðn-
ing o.fl.) til að laga fram-
leiðsluna að markmiði hverju
sinni.
að miða mjólkurframleiðslu sem
mest viö innanlandsneyslu og
leitast við að jafna hana eftir
árstiðum.
að koma á framleiðslu- og sölu-
skipulagi, sem nái til allrar
kjötframleiðslu i landinu, svo
að unnt veröi að hafa áhrif á
hlutfalliö milli framleiöslu-
greina.
aö auka hagfræöileiðbeiningar til
bænda og vinna að auknu bú-
reikningahaldi.
að stuðla aö bættri heyverkun hjá
bændum og efla 1 innlendan
fóðuriðnaö.
að efla rannsóknarstarfsemi,
sem stuðlar að hagkvæmari
búskap.
aö styöja fjölbreyttari atvinnu-
möguleika i dreifbýli, bæöi
nýjar og eldri aukabúgreinar,
nýtingu hlunninda og iönfyrir-
tæki.”
I lok ávarps sins bauö Asgeir
fulltrúa og gesti velkomna og
kvaö 62. Búnaðarþing sett.
Búnaðarþingsfulltrúar'hlýða á ávarp Asgeirs Bjarnasonar formanns Búnaðarfélags tslands. Timamynd G.E.
Bæklingur frá utanríkisráöuneytinu:
Réttur Islendinga
við Jan Mayen
GJALDEYRISDEILD
BANKANNA LÖGÐ
NIÐUR INNAN
SKAMMS
„t viðræðum við norsk
stjórnvöld hefur sendinefnd
tslands eingöngu viljað fjalla um
réttindi tslendinga út fyrir 200
landhelgi islands til fiskveiða og
á hafsbotninum”, segir Björn
Bjarnason m.a. I grein sem hann
ritaði fyrir nokkru i norskt tima-
ritum alþjóðamál. Greinin fjallar
um Jan Maeyn málið, og hefur
utanrikisráðuneytið nú gefið hana
út sem sérprent.
I grein sinni gerir Björn
Bjarnason grein fyrir Jan Mayen
málinu, aðdraganda þess og þvi
sem gerst hefur i viðræðum um
málið og þróun hafréttar aö þvi er
að Jan Mayen lýtur. Hann rekur
röksemdir sem fram hafa komið
og gefur m.a. stutt yfirlit yfir
sögu norskra yfirráða á eynni i
norðri og lýsir þeim athugasemd-
um sem islensk stjórnvöld gerðu
þegar þeim var fyrst tilkynnt um
fyrirætlanir Norðmanna norður
þar um töku eyjarinnar.
Björn segir m.a. um afstöðu
íslendinga:
„Þeir hafa viðurkennt norsk
yfirráð yfir eynni að þvi er snertir
rekstur veðurathuganastöðvar
þar, en ætla sér sama rétt til nýt-
ingar Jan Mayen svæðisins sem
aörar þjóöir, t.d. Norðmenn.
Islendingar hófu loðnuveiðar
við Jan Mayen á undan Norð-
mönnum. Þeir munu standa á
rétti sinum til þessara veiöa og
annarra til jafns á við Norðmenn.
Islendingar vilja einnig fá viður-
kenndan rétt sinn til auðlinda á
hafsbotninum umhverfis Jan
Mayen.”
í greininni rekur Björn Bjarna-
son ágreining íslendinga og
Norðmanna, en nefnir aö hugsan-
legtsé að varnarstöð Atlantshafs-
bandalagsins á Islandi geti dreg-
ist inn i málið ef deilan harðnar af
hálfu Norðmanna. Loks tekur
Björn Bjarnason.
Björn það fram að þjóöirnar eiga
mikilla sameiginlegra hagsmuna
að gæta I þessu máli, og að lausn
ætti að finnast sem treysti enn
frekar góð og náin samskipti
þeirra.
JSS — Gjaldeyrisdeild bankanna
verður lögð niður I núverandi
mynd innan skamms og er gert
ráð fyrir að þaö verði I kringum
fyrsta april n.k. I stað hennar hef-
ur nýlega verið skipuð svokölluð
samstarfsnefnd um gjaldeyris-
mál. 1 henni eiga sæti: Þórhallur
Ásgeirsson, formaður frá viö-
skiptaráðuneyti, Björn Tryggva-
son frá Seölabanka, Helgi Bergs
frá Landsbanka og Armann
Jakobsson frá Útvegsbanka. Hef-
ur nefndin þegar tekið til starfa.
Meö þessu nýja fyrirkomulagi
er fyrirhugað að flýta mjög gjald-
eyrisafgreiðslu I bönkum með þvi
aö gefa þeim talsvert viðtækar
heimildir til að afgreiöa gjaldeyr-
isumsóknir þ.e.a.s. aörar en
vöruumsóknir, sem eru að lang-
mestu leyti komnar á frilista.
Þær greiðslur, sem bankarnir fá
aukið svigrúm til að afgreiða eru
svokallaðar duldar greiöslur, auk
þess sem þessi breyting er ætluð
til að flýta allverulega fyrir af-
greiðslu ferðamannagjaldeyris.
Jafnhliða veröur tekin upp
reiknistofufærsla á öllum gjald-
eyrisafgreiðslum þannig að
gjaldeyrisviðskipti verði greiðari
og frjálsari.
Samstarfsnefndin um gjaldeyr-
ismál hefur sem fyrr sagöi tekiö
til starfa og vinnur að gerö nýju
reglanna, sem ráöuneytiö gefur
siðan út. Eins mun hún afgreiöa
umsóknir þeirra, sem eru um-
fram þeirrar heimildar sem
bankarnir fá.
Lif og land:
Borgarafundur að Kjarvalsstöðum
FRI — Dagana 16-17. febrúar
verður haldinn að Kjarvalsstöð-
um borgarafundur á vegum Lífs
og lands um list. Á blaðamanna-
fundi sem samtökin héldu i gær
sagði Jón Óttar Ragnarsson for-
maður samtakanna að ástæðan
fyrir þvi að Lif og Lands, sem eru
umhverfisverndarsamtök, héldu
þennan fund væri sú að samtökin
vildu stuðla að fegurra og mann-
eskjulegra umhverfi en lista-
menn heföu ávallt stuðlað að
þeim markmiðum.
Þrjú meginþemu verða til um-
i<æðu á fundinum, staða listar, að-
staða listar og listfræðsla og mun
fjöldi listamana taka til máls á
fundinum.
Hver hefur 10 minútur til um-
ráða til að skýra frá máli sinu en
að loknum þeim ræðum á seinni
deginum munu verða umræður
þar sem 15 manns sitja við pall-
borð og svara fyrirspúrnum
áheyrenda.
Dagskrá fundarins veröur birt i
heild seinna I blaðinu.