Tíminn - 17.02.1980, Blaðsíða 10

Tíminn - 17.02.1980, Blaðsíða 10
10 Sunnudagur 17. febrúar 1980. Tíminn fylgist með þjálfun stýrimannsefna — Jæja, er nú kviknaö í enn einu sinni, hefur vafa laust einhverjum oröið að orði síðast liðinn miðviku- dag, er stór kolsvartur reykjarbólstur steig upp á suð vesturhimininn — séð frá Kringlumýrarbrautinni — í nágrenni öskjuhlíðarinnar. Aðrir kipptu sér lítið upp við þessa sjón, enda á margra vitorði að slökkvíliðiö verður stundum að brunaliði og að æfingasvæði slökkviliðsins er skammt frá heita læknum í Naut- hólsvík. Það var þó engin venjuleg æfing í gangi þennan miðvikudag, þvíþegarvið Róbert Ijósmyndari komum á staðinn, þá voru nemendur úr öðrum bekk Stýrimannaskólans í hlutverki slökkviliðsmannanna og börðust hetjulegri baráttu við olíueldana, sem slökkviliðsmennirnir höfðu kveikt á æfingasvæðinu. Það voru þeir Helgi Scheving, varöstjóri og Ragnar Sólonsson, aðstoöarvarðstjóri, sem voru i hlutverki brennuvarganna að þessu sinni, en þeir sáu jafn- framt um að kenna stýrimanns- efnunum að beita slökkvibúnað- inum. Þeir standa sig bara nokkuð þokkalega sagði Ragnar er við náðum tali af honum og bætti þvi við að aðalatriðið i þessari kennslu væri að kenna nem- endunum aö verja sig með vatn inu og slökkva eldinn á sem skemmstum tima. Ekki var annað að sjá en aö stýrimennirnir tilvonandi bæru sig faglega að og allir voru þeir sammála um að þetta námskeið væri mjög vel heppnað. Ég býst við þvi að við séum búnir að læra meira hérna á einum degi, en gömlu karlarnir heima á tiu árum, sagði einn þeirra, sem ættaður var vestan af fjörðum og var greinilegt að hann var hæstánægður með kennslu þeirra Helga' og Ragnars. „Vatnsdropinn 1600 fald- ast." Skammt fyrir utan aðal æfingasvæðið, var annar hópur úr Stýrimannaskólanum að æfa sig i að slökkva smáelda með handslökkvitækjum, undir handleiðslu Brynjólfs Karlsson- ar. Er við Róbert komum á vett- vang var reyndar einn óboðinn gestur fyrir á staðnum — hinn laglegasti hundur — og var hon- um greinilega ekkert gefið um tilburði Brynjólfs og Stýri- mannsefnanna. Eftir að hafa látið vandlætingu sina i ljós með háværu gelti i nokkrar minútur, hvarf hann þó á braut og gat þá Brynjólfur snúið sér óskiptur að kennslunni. Meðal þess sem Brynjólfur sýndi á meðan við stöldruðum við, var hvernig slökkva ætti eld i feiti og hvernig ekki ætti að fara að. Dufttækið slekkur eldinn auð- veldlega á smátima, sagði Brynjólfur, — en ef ég nota vatnstækið, þá eru áhrifin eins og að oliu sé hellt á eld. Hver vatnsdropi 1600 faldast er hann kemst i samband við logandi feitina og áhrifin eru sprenging. Eftir að kennslunni var lokið ræddum við litillega við Brynjólf og sagði hann okkur að aðlatriði kennslunnar hjá sér væri að kenna nemendunum að bregðast rétt við er eldsvoða bæri að höndum. — Það er hit- inn sem hræðir mest — sagði Brynjólfur — og eftir að nem- endurnir hafa unnið bug á hræðslunni, þá getum við sýnt þeim hvað þeir geta gert ótrú- Seppa leist ekkert á tilburði stýrimannanna tilvonandi — Brynjólfur Karisson (fyrir miðju) fylgist með Ragnar Sólonsson, aðstoðarvarðstjóri býr sig undir að kveikja f oli- unni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.