Tíminn - 17.02.1980, Blaðsíða 21
Sunnudagur 17. febrúar 1980.
21
Stalín 100 ára í ár
Meiriháttar höfuðverkur fyrir
Sovétvaldhafa
Snyrtilegur dauði
Boulins
Stalin veröur i frfettunum á
þessu ári, þvi aö Sovétmenn
munu neyöast til þess aö halda
upp á 100 ára afmæli hans.
Vakna margar spurningar um
þaö á hvern hátt afmælisins
veröur minnst. Einn helsti sér-
fræöingur Evröpu i málefnum
stjórnarráöherranna I Kreml
Helene Carrere d’Encausse
hefur ákveönar skoöanir á þvi
vandamáli. Hiin segir: „Sovfet-
herrarnir geta ekki alveg
„gleymt” Stalin, nfe þeim 30 ár-
um, sem hann hfelt landsmönn-
um i stálgreipum um leiö og
hann mötaöi Sovfetriki dagsins i
dag. Þeir geta heldur ekki hafiö
hann til vegs. Sovfeska þjööin
minnist glæpa hans. Ég gæti
helst triiaö þvi, aö herrarnir i
Kremi haldi hátiölega minningu
Stalins marskálks, hershöfö-
ingjans, sem leiddi þjöö sina til
sigurs gegn nasistum. En breiöi
yfir þögninni ógnarstjórn
Stalins, hreinsanirnar og ht-
legöardómana”.
Stalin lfet myröa milljönir
Rhssa, en þaö aftraöi honum
ekki frá þvi aö vera ástrikur
heimilisfaöir. Hfer er hann meö
dóttur sinni Svetlönu.
Robert Boulin fyrrverandi at-
vinnum'alar'aöherra Frakka
kvaö upp sinn eigin dauöadöm i
skrifstofu i hhsi sinu i Neuilfy i
htjaöri Parisar, en Boulin fyrir-
fór sér 29. okt. sl. eftir aö vafa-
samir kaupsamningar aö
sumarhhsi hans i Suöur-Frakk-
landi höföu veriö geröir opin-
berir. Sjálfsmoröiö þykir i
snyrtilegra lagi. Tilkynninguna
um þaö fjölritaöi hann i ráöu-
neytinu á helgum degi og setti
hana i póst nokkrum klukkutim-
um áöur en hann db. Enginn af
samstarfsmönnum Boulins eöa
fjölskyldumeölimum haföi gert
sér grein fyrir, hve langt hann
var leiddur. Er hann för aö
heiman frá sfer i siöasta sinn,
kyssti hann tengdamööur sina á
vanga, en ætlaöi aö sleppa viö
aö kveöja konu sina. A hann aö
hafa sett dreyrrauöan, er hhn
spuröi, hvort hann ætlaöi aö
gleyma sér.
Boulin vann siöustu tvo dag-
ana eins og venjulega og ljóm-
aöi af vinnugleöi, verðlaunaöi
barnmargar fjölskyldur, sötti
fundi og tók á möti þingmanni
frá Póiynesiu. Ræddust þeir viö
i 15 minhtur og spuröi Boulin i
þaula. Þingmaöurinn htskyröi,
aö i Póiynesiu væri atvinnu-
Erlend
myndsjá
leysiö mikiö, allt aö sjö þhsund
gengju atvinnulausir, en ibha-
talan er 240 þhsund. „Ég mun
hjálpa yður aö finna lausn”,
sagöi Boulin áhugasamur. Hiö
eina, sem gesturinn undraöist,
var tómlætiö, sem Boulin syndi
boöi hans um aö koma til
Pólynesiu. Þakkaöi hann ekki
boöiö, kvaddi aöeins og för.
Athygli vekur, aö Boulin þótti
tilhiyöilegt aö fyrirfara sfer á
eigin bil, en alla jafna ók hann
um á rikisreknum ráöherrabil.
Dauöi Boulins hefur oröiö
mörgum umhugsunarefni og er
haft á oröi, aö vandamálum ofiö
sfe þaö íyöveldi, sem framleiöi
svo ögæfusaman ráöherra.
A meðfylgjandi mynd er
Boulin broshyr aö framkvæma
sitt siöasta embættisverk, sem
fólst i þvi aö verölauna 16 barna
móöur.
Nú syrtir í álinn fyrir keisaranum fyrrverandi
Þessi mynd var tekin af fyrr-
verandi transkeisara og fjöl-
skyldu hans á eyjunni Conta-
dora i Panama, á þeim tima er
keisarinn var ekki yfirlýstur
fangi P a na m a-s t jó r na r .
Keisarahjónin fyrrverandi eru
þarna aö halda upp á 20 ára hjú-
skaparafmæli sitt og Reza prins
gengur um beina, — nokkuö
sem aldrei heföi sést viö irönsku
hiröina. Viö þetta tækifæri voru
Reza Pahlavi og og Farah Diba
tekin tali. Keisarinn fyrrver-
andi sagöist hafa miklar
^hyggjur af fjölskyldu sinni.
Hann sagöist hafa varaö vest-
ræn rfki margsinnis viö ollu-
kreppunni og lagt áherslu á, aö
þau þróuöu aöra orkugjafa,
sólarorku og vindorku t.d. Hann
viöurkenndi aö skipting mat-
væla hafi ekki tekist sem skyldi,
en minnir á, aö börn i Balúkist-
an hafi oröiö aö ieggja sér gras
til munns I tlö Mossadegs. En á
siöustu fjórum árum I sinni
valdatið hafi ibúar I Balúkistan
sem og annars staöar i tran ver-
iö orönir neytendur á vestræna
vlsu. Vildi hann meina, aö hinir
viöfrægu umferöarhnútar i
Teheran bæru þess vitni aö Ibú-
arnir almennt heföu veriö vel
efnaðir. Ummæli Edwards
Kennedy öldungadeildarþing-
manns, þar sem Kennedy segir
keisarann hafa veriö mesta
haröstjóra heims, telur Reza
Pahlavi hlægileg: „Tölur tala
sinu máli. 1 dreifiriti, sem auö-
vitaö átti aö sverta stjórnartlð
mina er talaö um ég hafi látiö
fangelsa 3164 manneskjur frá
1968 til 1977. Gögn mln segja, aö
þær hafi veriö heldur fleiri eöa
3200. Flestir þessara mánna
voru hryöjuverkamenn og
margir þeirra tóku svo sannar-
lega til hendinni I höfuðborg-
inni, þegar þeim haföi veriö
sleppt. Ef fangelsun þessara
3200 manna getur talist stærsti
glæpur I heimi, þá hafa menn
gleymt útrýmingunum I siöari
heimsstyrjöldinni i landi, sem
vill kenna sig viö menningu.
Keisarinn var inntur eftir þvl,
hvort útlendingar gætu hafa
hraöaö falli hans en koma hátt-
setts hershöföingja hjá Nato,
Huyser aö nafni, á aö hafa kom-
iö skriðunni af staö. Keistarinn
sagöist aöeins vilja svara þessu
meö oröum eins af hershöfö-
ingjum keisarastjórnarinnar
Rabii. Hann á aö hafa sagt á
banastundinni, aö fyrrnefndur
Huyser bæri ábyrgö á brott-
rekstri keisarans. Keisarahjón-
in fyrrverandi voru sammáia
um, aö hjónabandsferill þeirra
heföi veriö hamingjurlkur aö
mestu leyti, þó aö nú heföi syrt I
álinn vegna vtri aöstæöna.