Tíminn - 17.02.1980, Blaðsíða 18

Tíminn - 17.02.1980, Blaðsíða 18
18 Sunnudagur 17. febrúar 1980. KVIKMYNDAHÁTIÐ SXK 1980 Annab þing Samtaka áhuga- manna um kvikmyndagerö veröur haldiö sunnudaginn 24. febrúar næstkomandi og hefst i Tjarnarbiói, Reykjavik, kl. 10 árdegis. Dagskrá þingsins verður samkvæmt lögum samtakanna. Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel á þingiö og leggja þar fram málefni sin, og stuöla þannig aö umræöu um samtökin og tilgang þeirra. t tengslum viö þingiö veröur haldin önnur kvikmyndahátiö SAK, og stendur hún yfir i tvo daga. Dagskrá hennar er sem hér segir: Laugardaginn 23. febrúar kl. 14 veröa sýndar í Tjarnarbiói myndir sem áhugamenn senda á kvikmyndahátiðina. Skipuö veröur dómnefnd sem dæma mun um bestu myndirnar. Keppt verður i tveimur flokk- um, yngri en 20 áraog 20 ára og eldri. Á sunnudeginum 24. febrúar kl. 14 hefst svo siöari helminenr hátiöarinnar I Tjarnarbiói. Veröa þá veitt verölaun og viðurkenningar fyrir bestu myndirnar sem sýndar voru daginn áöur, og verölauna- myndirnar þá sýndar aftur. Þegar þvl er lokið verða svo sýndar nokkrar islenskar áhugamannamyndir. Þeir sem ætla að senda myndir á hátlöina eru beönir að senda annað hvort myndirnar eöa allar upplýsingar um þær (sjá nánar hér á eftir) til annars hvors eftirtalinna aðila: KRISTBERGS ÓSKARS- SONAR, Mosgerði 23, 108 Reykjavik (simi 33970), eða MARTEINS SIGURGEIRS- SONAR, Skólageröi 14, 200 Kópavogi (simi 40056), fyrir miðvikudaginn 20. febrúar. Þær upplýsingar sem þurfa aö sendast um myndirnar eru heiti myndarinnar, framleiöandi hennar, lengd.hvort hún er I lit- um eöa svart-hvltu.hvort hún er þögul eöa meö hljóðiog þá hvort hljóðið er á filmunni sjálfri eöa kassettu, sýningarhraöi og framleiösluár myndarinnar. Félagsmerki SÁK Félagsmerki fyrir Samtök áhugamanna um kvikmynda- gerð er nú I mótun og vonumst viö til aö þaö veröi tilbúiö fyrir þingiö núna i febrúar. Ef ein- hverjir luma á góöum hug- myndum um slikt merki fyrir samtökin er um aö gera aö senda þær til okkar, sem allra fyrst. Kvikmyndahátíöin er öllum heimil meöan húsrúm leyfir — aðgangur er ókeypis. Lausleg grunnteikning sem Strindberg geröi af snjóhúsi þeirra félaga. Andrée-leiðangurinn Mánudaginn 18. febrúar kl. 17.20 er Andrée-leiöangurinn á dagskrá. Fluttur veröur 3. þáttur. Höfundur er Lars Brol- ing, en Steinunn Bjarman geröi Islenska þýöingu. Leikstjóri er Þórhallur Sigurösson og meö hlutverkin fara m.a. Þorsteinn Gunnarsson, Jón Gunnarsson og Hákon Waage. Sföasta þætti lauk þar sem Andrée og félgar hans, Frænkel og Strindberg, leggja af staö I loftbelg frá Daney á Svalbarða. Akvöröunarstaöur: Noröur- heimskautiö. 1 3,þætti segir frá loftsiglingunni, sem gengur ekki alltof vel, og er þaö ekki aö undra þar sem stjórntaugarnar slitnuöu allar i upphafi feröar- innar. Samt gera leiöangurs- menn ýmsar athuganir, en óheppnin er meö þeim og stööugt slgur á ógæfuhliöina. Auglýsið í Tímanum • 1 . v Reglugerð um sérstök línu- og netasvæði Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um sérstök linu- og netasvæði út af Suð- vesturlandi og Faxaflóa, sem gildi tekur 1. febrúar 1980. Samkvæmt reglugerö þessari eru allar veiðar meö botn- og flotvörpu bannaöar á þremur til- greindum svæöum fyrir Suö vesturlandi. Er hér um að ræða tvö ný svæöi og ennfremur stækkun á þvi línu- og netasvæði út af Faxaflóa, sem sett var I október 1979. V. TIL LINA TIL »5/3 Þormoöstkcr VARPA 1/2 -15/5 * Gsirfugladrangur '*yW>>v y x >» X ^WRPA + "\20/3-l5/E f 'n J ALLAR VEIOAR 20/3-15/5 Kortaf svæðunum. A þaö eru enn fremur mörkuö svæöi, þar sem linu- og netaveiöar eru bannaöar. Blaðburðarbörn óskast Tímann vantar fólk til blaðburðar i eftir- talin hverfi: Laufásvegur Fjólugata Rauðarárstigur Háteigsvegur. Sími 86-300

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.