Tíminn - 22.06.1980, Síða 2

Tíminn - 22.06.1980, Síða 2
Fáeinar laglegar vísur úr gmsum áttum: „ Glaðan haginn, Garðar minn, góði Sverrir, heilsan þér” Nú er ekki nema vika til for- setakosninga, og þess vegna er engin furöa, þútt eitthvaö veröi til af frambjööendavlsum. Sjálfsagt er fæst af þvl, sem fer lengra en milli kunningja. Eins og gengur eru þær ekki aliar beinlinis hlut- lausar, aö minnsta kosti ekki þær, sem blaöinu hafa veriö sendar. En viö veröum aö láta þær fljóta, enda ólikt, aö þær riöi baggamun- inn I kosningunum. Gunnar Sveinsson hefur sent vlsu, sem fjallar eiginlega meira um Guðmund J. Guörfiundsson en frambjóðandann, sem hann mæl- ir með, og er tilefniö ferö Alberts og hans upp I Kjós, þar sem Guð- mundur talaðiaf mikilli mælsku á fundi: Jakinn flaut að feigðarós, fallið hlaut I lagi. Meö Albert þaut hann upp i Kjós eins og naut I flagi. Næsta vlsa er eftir Ingólf Davlðsson magister, og verður vart af henni ráöiö til fullnustu, hvert hugur hans hneigist: Æðsti maður efst á baugi óðal Bessa mænir á. Er það Dlsa eða Laugi? A. og P. i skutnum rjá. Jóhannes Benjamlnsson orti þessa vlsu um skoðanakannanir dagblaðanna og niðurstööur þeirra: Dagblööin reyna aö spyrja ogspá, spekingur margur streðar. Vigdls og Guölaugur oddinum á, Albert og Pétur neðar. I VIsi birtist frásögn af ferö Vigdisar Finnbogadóttur um Snæfellsnes, og var þar haft eftir henni, að hún myndi hafa á boöstólum reykta grálúðu i fyrstu móttökunni á Bessastööum, ef hún yrði kjörin forseti. Þá var og sagt frá boði, er saumaklúbbur- inn Bollinn gerði henni. Frásögn þessari um Snæfellsförina fylgdu margar myndir, og var meðal annars sýnt, er Vigdís fór i paris á gangstétt eða dyrahellu og bjó sig undir, að spáð væri I bolla hennar I saumaklúbbnum. Þetta er kveikjan að þriðju vlsunni: I Olafsvik var hátið erVigdis vesturfór og vann þar telpu I paris á stétt viö Hábrekkuna. Kona ein I Bollanum að þvl eiða sór, nú yröi að fara aö reykja grálúðuna. Fleiri visur hafa ekki borizt um frambjóðendurna I forsetakosn- ingunum, er frambærilegar geti heitið og undir þau lögmál felld- ar, er vlsa verður að lúta. En með þvi aö kosningarnar nálgast óð- fluga og óþreyjan vex, þá skulum við hafa hér næst vlsu, sem ort var til þess aö sefa mann, sem haföi mettazt óróleika vegna at- burðar sem I vændum var. Maður þessi kom á fæðingar- deild Landspitalans meö konu sina, komna að barnsburði, og knúði harkalegar dyra en gengur og gerist, og fannst starfsfólki fæöingardeildarinnar meira en nóg um. A þessum árum var hin þekkta kona, Jóhanna Friðriks- dóttir, yfirljósmóðir deildarinn- ar, ágætlega hagorð, og kvaö hún þessa vlsu viö komumann: Hvað er þetta, maður minn? Mundu aö vona og biða. Að luktum dyrum kom lausnarinn og lét hann þó ekki svona. Og eins er þaö með forseta- kosningarnar, að menn ættu að kunna sér hóf I eftirvæntingu sinni og ekki slður I söguburði og lastmælgi,.að ekki sé sagt rógi, um þá, sem fólki finnst slnu út- valda forsetaefni skæðir keppi- nautar um hylli almennings. En úr því að Jóhanna Friöriks- dóttir er komin hér til sögu, getur flotið með önnur vlsa eftir hana, mælt af munni fram viö konu, sem fannst hún ekki nógu bragö- leg útlits. Kinnin mín er þynnri en þín. Þætti mér þaö gaman að sjá þig fara I fötin mln og fitna af öllu saman. Það er eitt af þvi sem allmikið er rætt um á þessari forsetatíð, hvort menn eru alþýðlegir i sinni og háttum. Samt er þaö svo, að alla jafnan gera flestir þess harla mikið mun, hvort I hlut eiga fá- tækir eöa rfkir, fyrirmenn eða olnbogabörn. Þeim, sem betur hefur vegnað, er hossað fram á grafarbakkann og alla leiö niður I moldina, en ekki jafnvandgert viö hina, sem lltils máttu sln. Þess vegna orti Óllna Jónasdóttir á Sauðárkróki, er umkomuleys- ingja, sem lítiö stáss var gert með, var holað I jöröina: Það er ekki ys né þys, þröng eða fjölmennt erfi, þó að litið , fölnað fis fjúki burt og hverfi. En það er svona I veröldinni, aö eitt getur rekiö sig á annars horn, og sitthvaö vill ganga úrskeiðis, þótt fagurt sé kennt. Einar Sveinn Frfmann I Neskaupstað orti þessa vísu: Elskið alla menn, kvað mannsinssonur, en mönnum þótti krafan nokkuð stór. Þá sagöi fjandinn: Elskið allar konur, og allir hlýddu. Síðan fór sem fór. Eitt þeirra mála, sem mjög hafa verið rædd meðal almenn- ings slðustu daga, er sú ákvörðun þingfararkaupsnefndar alþingis að þingmenn skuli fá fimmtungs launahækkun. Mánuður var liðinn frá þessari ákvörðun, er hún komst I hámæli og fylgir það sög- unni að til þess hafi verið ætlazt, að hljótt væri haft um hana — af hvaða hvötum. sem það hefur verið, ef satt er. Nú hafa, eins og kunnugt er, nokkrir aðilar, fjár- málaráöherra og formenn þing- flokka Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins, skotiö gerð- um þingfararkaupsnefndar undir úrskurö þingforesta og krafizt ógildingar á þeim. Tæpast kemur á óvart, þó að blaðinu hafi borizt vísur um þetta: Þeir eru að skammta sjálfum sér úr soðpottinum stóra: Tuttugu prósent tek ég mér, af tveimur aörir slóra. Onnur visa er i nokkuð áþekkri tóntegund: Gott er að hafa gogg og kló aö ganga I skrokk á rlkisfé. Lof sé guði, lyst er nóg. Látiö fleiri bita I té. Þriðja visan er svo eins konar fyrirbæn formönnum þingfarar- kaupsnefndar til handa: Glaðan haginn, Garðar minn, góði Sverrir, heilsan þér, lánsmenn báöir með bústna kinn og breiðir að aftan til fagnaðarmér. Um þessar þrjár vlsur gildir hið sama og þegar fólk er aö setja eitthvaö saman um forsetaefnin — það vill fæst láta sin getið, lik- lega af þvl, að það er eins og ofur- litiö feimiö viö hátignirnar. Ferðalán -léttarí greiðslubyrðí! Sýndu fvrirhvggiu i fjármálum og vertu með í Spariveltunni. Ef þú ert einn hinna mörgu, sem láta sig dreyma um ferðalag í sumarleyfinu, þá ættirðu að kynna þér hvað Sparivelta Samvinnubankans ^ getur gert til að láta draum ^ “ þinn rætast. Það er engin ástæða til að láta fjárhagsáhyggjur spilla ánægj- unni af annars skemmtilegu ferðalagi. Hagnýttu þér þá augljósu kosti, sem Sparivelta Samvinnubankans hefur fram að bjóða. Með þátttöku í Spariveltunni getur þú létt þér greiðslubyrðina verulega og notið ferðarinnar fullkomlega og áhyggjulaust. Þátttaka í Spariveltunni er sjálfsögð ráðstöfun til að mæta vaxandi greiðslu- byrði í hvaða mynd sem er, um leið og markviss sparnaður stuðlar að aðhaldi og ráð- deildarsemi í fjármálum. Komdu við í bankanum og fáðu þér eintak af nýja upplýsingabæklingnum um Spariveltuna, sem liggur frammi í öllum afgreiðslum bankans. Vertu með i Spariveltunni oglánið erekki langt undan! Samvinnubankinn og útibú um land allt. JH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.