Tíminn - 22.06.1980, Qupperneq 3
Sunnudagur 22. júni 1980
3
INNKAUPASTOFNUN REYKJaVÍKURBORGAR
Fríkirl<juv*gi 3 — Sími 25800
ALTERNATORAR
OG STARTARAR
Krókspollur og Grófartangi — þarna var legan áftur fyrr.
BILARAF
Borgartúni 19 - Sími 24700
Til sölu
Tilboð óskast I eftirtaldar bifreiöar og vinnuvélar fyrir
Vélamiðstöð Reykjavikurborgar.
Mercedes Benz 280 S fólksbifr. árg. 1973.
Scania Vabis vörubifreið árg. 1969.
3 st. Voikswagen 1200 fólksbifreiðar árg. 1973.
Volkswagen 1200 fólksbifreið árg. 1976, ákeyrð.
JCB-5C vökvagrafa.
Deutz dráttarvél m/framdrifi árg. 1974.
Ofangreindar bifreiðar og tæki veröa tii sýnis I porti Véla-
miðstöðvar Reykjavikurborgar að Skúlatúni 1, Reykjavik
mánudaginn 23. og þriðjudaginn 24. þ.m.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar
Reykjavikurborgar að Frikirkjuvegi 3, miövikudaginn 25.
þ.m. kl. 14.00 e.h.
Selárdalur í Arnarfirði
Selardalur er ysti byggði dalur-
inn I Ketildölum. Þar rís fyrsta
býlið I sveitinni og er samnefnt
dalnum.
Fyrr á tlmum og fram á miðja
þessa öld, að fólk fór að flytjast úr
heppnum, var margt fólk I Selár-
dal. Ariö 1703-1710 var á prest-
setrinu 30 manns I heimili. A
sama tíma voru 103 I dalnum,
sem var þá þriðji partur allra
hreppsbúa. Og á 18. öldinni fjölg-
aöi fólki mikið I hreppnum.
Selárdalur er stór og góö jörð. A
slnum tfma hafði hún mikil sjáv-
arhlunnindi, svo sem verbúöar-
tollar og fleira er útvegsbændur
greiddu staðarhaldara fyrir alla
aðstöðu til sjóróðra I Kópavlk,
Verdölum, Sandvlk og við sjóinn i
Selárdal. Sjálfur gerði staðar-
haldari einnig út báta og unnu
leiguliðar hans við þá útgerð.
Þessu býli fylgdu átta hjáleigur
á slnum tlma og jörðin þá metin
80 hundruö aö dýrleika. Þarna
hefur verið kirkja frá því um 1210
og prestsetur frá sama tlma til
1906-1907. Þarna var áður fyrr um
að ræða ágætt embætti. Arið 1861
var þarna reist timburkirkja
(sennilega sú fyrsta þar). Hún
var endurbætt og lagfærö 1961, þá
100 ára.
Bærinn stendur á hól i miðjum
dal, er gengur suöur I hálendið.
Frá þessum stað er gott og fagurt
útsýni um dalinn og fjörðinn
norður um Sléttanes og Baröa. En
ekki sést til bæja við sjóinn, þvl
holt og hæöir taka fyrir útsýni.
Eins og kunnugt er var Hannibal
Valdimarsson, fyrrverandi ráð-
herra, ábúandi á Selárdal nokk-
ura ára skeiö, en nú býr þar sonur
hans, Ólafur.
Jörðin hefur á þessum árum
mikiö veriö bætt með viöbótar
túnrækt, girðingum og góöum
húsakosti. Einnig hefur jeppa-
vegurveriðlagöur um stórt svæði
af landareigninni. Að siöustu vil
ég geta þess, aö litill flugvöllur
hefur veriö geröur á melunum
skammt frá bænum.
Mörg stórmenni ,og lærdóms-
menn hafa setiö* staðinn frá
upphafi vega, svo sem ágætir
bændur, hreppstjórar, prestar,
prófastar og alþingismenn. t
Selárdal bjó fyrr á öldum hin
stórfræga ætt, er nefnd var Sel-
dælir. Hún kom einnig mikið við
búsetu á Eyri viö Arnarfjörö um
200 ára bil, voru það forfeður
Hrafns Sveinbjörnssonar, sem
einnig bjó á Eyri.
Þegar rætt er um Selárdal, er
vert og rétt að geta þess, að þar
fæddist Jón Þorláksson, sem slð-
ar varö þjóökunnur undir nafninu
séra Jón á Bægisá. t Selárdal
hafði lært undir skóla séra Jón
Vídalln, sá mikli predikari. Síðast
en ekki sist verður nefndur sjálf-
ur staöarhaldarinn, séra Páll
Björnsson. Hann var þekktastur
presta þarna sökum gáfna, lær-
dóms, auös og atorku. Staöinn sat
hann 1645-1706, og var prófastur i
ein fimmtlu ár. Vlða I ritum er
vitnað til þessa manns vegna
sérstakra hæfileika. Samt er alls
ekki hægt að verjast þeirri hugs-
un, aö séra Páll hafi verið misvit-
ur maður, aö hann skyldi verða
flæktur I vef hinna miklu galdra-
mála á sinum tima.
Þegar rætt er um séra Pál
Björnsson, að hann beri hátt sem
lærdóms- og kirkjunnar maður
Ford Bronco
Chevrolet
Dodge
Wagoneer
Land/Rover
Toyota
Datsun
og í flestar
gerðir bila.
Verð frá
29.800.-
Póstsendum
Varahluta- og
viðgerðaþj.
Kerfisfræðingur
óskum eftir að ráða starfsmann til ný-
stofnaðrar Kerfisdeildar Sambandsins.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekk-
ingu og reynslu i skipulagningu og forritun
tölvukerfa.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir
4. júli n.k. Umsóknareyðublöð liggja
frammi hjá Starfsmannahaldi.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
JONSMESSUHATIÐ
________MEÐ VIGDÍSI
í LAUGARDALSHÖLLINNI
þriðjudaginn 24. júní kl. 20.30.
Fjölbreytt dagskrá.
Húsið opnað kl. 20.00.
FJÖLMENNUM í HÖLLINA
GERUM ÞENNAN FUND
HÁPUNKT SÓKNARINNAR
‘Stuðningsmenn
Selárdalur I Arnarfirði — frsgur staður að fornu og nýju.
um sina daga, þá gerir hann þaö
ekki siður, aö mér finnst, við hin
veraldlegu störf, athafnalifiö,
framkvæmdir og brautryöjenda ■
störf. Og vil ég þar til nefna hið
mikla og sérstaka framtak séra
Páls, er hann lét smlða haffæra
skútu á árunum 1660, sem mun
hafa verið fyrsta þilskip smlöað
hér á landi og haldið út til fisk-
veiöa I mörg ár. Séra Páll hafði
stjórnað þessari skútu sinni I 20
vertíðir, og heppnaðist vel, enda
sagöur ágætlega fær, hvað snertir
allt, sem að þessum málum laut. í
sambandi við nefnt atriöi hefur
Selárdalur verið kallaður fæöing-
arstaður þilskipaútgerðar á ís-
landi og Krókspollurinn fyrsta
þilskipahöfnin. Getur hvor
tveggja rétt verið.
Bærinn Krókur er ofan við
bakkana viö sjóinn. Dregur
Pollurinn nafn af honum og nefn-
ist hann Krókspollur. Þar er frá
náttúrunnar hendi sjálfgerö og
sérstök batalega. Að utan verðu
við Pollinn og til vesturs er grjót-
hry ggur stór og mikill, varnar- og
skjólgarður.
Þarna er 400 m langur tangi.
Fremsti hluti hans er nefndur
Krókshaus. En til noröausturs
eru sker og boðar, sem heita Kol-
beinsboðar, og mynda einnig poll-
inn og verja hann aö nokkru fyrir
norðaustanátt. Þegar komið er af
sjó og lenda skal, er farið um
mjótt sund inn á leguna, pollinn,
innan við Krókshaus. Nefnist
staðurinn Hálsar.
Nú eru liöin yfir 300 ár slðan
fiskiskúta séra Páls flaut fyrir
landi I Selárdal á nefndum polli.
Ætla má, að á liðnum árum hafi
oft veriö rætt um þennan staö og
framtlð hans sem útgerðarstööv-
ar, svo sem hugsanlegar framtlð-
arhafnarbætur I þágu hreppsins,
einnig vegna útgerðar og sjósókn-
ar til að nýta sem best hin ágætu
nálægu fiskimið.
Ég veit, að þetta hefur verið
gert. Og talað við rétta aðila, en
litið komið út úr þeim viöræðum.
Tlminn leið og tæknin kom, en
aldrei var komist I takt við hana I
þessum þörfu framfaramálum.
Enda komið að því, sem menn
óttuöust mest einmitt vegna
áhrifa tækninnar. Fiskurinn
hvarf alveg úr firöinum og einnig
af venjulegum fiskimiðum öörum
viö Arnarfjörö. Þetta geröist
kringum miðja þessa öld og varð
til þess, að fólkið fluttist burt úr
hreppnum til aö leita sér atvinnu.
Fátt fólk er nú i hreppnum, en
bændur þar eiga nú góö bú betri
og stærri en áður gerðist. Bjart-
sýnismenn I þessum málum telja
nú betri tlma I nánd og viö skul-
um llka vera bjartsýn og vona að
Selárdalur og Krókspollur eigi
eftir að vera nútima útgerðarstöð
til hagsbóta fyrir hreppinn og
fjöröinn.
Lárus Jón Guömundsson,
frá Bakka.