Tíminn - 22.06.1980, Qupperneq 28

Tíminn - 22.06.1980, Qupperneq 28
Gagnkvæmt tryggingafé/ag A fgreiðslutimi 1 til 2 sóA arhringar Stimpiagerö Féiagsprentsmiðjunnar hf. Spítalastíg 10 — Sími 11640 Nýja fas teignasalan Ármúla 1. Sími 39-400 Sunnudagur22. júní 1980 Söguleg herferð gegn áfeng- isneyslu i Svíþjóð Fjöldi þjóöa á ekki einungis i höggi viö óhugnanlega eiturlyfjaneyzlu, sem tærir þrek og vilja fólks og leggur marga i gröfina langt fvrir aidur fram. Samtfmis siaukinni eiturlyfjafikn hefur áfengisneyzla magnast um allan helming um öll Vesturlönd, og hefur sums staöar tekiö svo f hnúkana, aö forsjármönnum þjóöa þykir ekki sætt, án þess aö hafast eitthvaö aö, er veiöa mætti til þess aö sporna gegn enn meiri ófarnaöi. Þar eru Sviar fremstir I flokkiþeirra þjóöa, sem næstar okkur eru. 1 Svlþjóö má segja, aö alda sé risin til viönáms. Aö áliönum vetri samþykkti sænska þingiö meö 265 gegn 55, aö áfengir drykkir skuli ekki framar veittir i veizlum, boöum og öörum mann- fagnaöi á vegum rikisins, aö þvi undanskildu, aö borðvín má hafa i matarboöum. Þessi samþykkt var byggö á þvi, aö forystumenn landsins og forsjármenn rfkisins veröi jafnan aö ganga á undan meö góöu fordæmi, ef einhverju á aö koma til vegar, og bresti á samræmi milli oröa og athafna, eyöileggi sá tviskinnungur og hræsni sérhvert mál, hversu brýnt sem er, aö þaö nái fram aö ganga. Ávarp stjórnmálaforingjanna Þegar eftir þessa samþykkt var birt ávarp til sænsku þjóöarinnar, _ Formenn fjögurra stærstu stjórnmálaflokkanna f Svfþjóö, er skrifuöu fyrstir undir ávarpiö. undirritaö af fjörutfu og þremur landskunnum mönnum, og voru þar efstir á blaöi formenn fimm stjórnmálaflokka I Svíþjóö — Oluf Palme, formaöur verkamanna- flokksins, Thorbjörn Fálldin, for- maöur Miöflokksins, Gösta Bohman, formaöur hægri flokks- ins, Ola Ullsten formaöur Þjóö- flokksins, og Lars Werner, for- maöur flokks vinstri sósialista. Aörir, sem undirrituöu ávarpiö, voru margir forystumenn félags- málahreyfinga í Svlþjóö og for- vígismenn I menningarmálum. Velferðarrikinu ógnað Avarpiö sjálft var á þessa leiö: „Afengisneyzla I landinu fer vaxandi. Afleiöingar þess eru, aö fleiri menn skaöast af áfengi. Nú er sambandiö á milli notkunar og misnotkunar viöurkennt, og þess vegna er ljóst, aö viö höfum þvl miöur ekki hamlaö gegn áfengis- bölinu. Aöeins meö breytingu á háttum og venjum okkar sjálfra veröur ástandiö bætt. Viö getum öll, án tillits til búsetu nú oröiö, séö, hvernig áfengisvandinn vex. Stööugt vex þrýstingur á hjálparstofnanir þjóöfélagsins, sjúkrahús, lög- reglu, fangagæzlu, hæli og þar fram eftir götunum. Þaö, sem ekki veröur skrásett á sama hátt, er sú hörmung og neyö, sem er félagslegt, fjárhagslegt og mann- legt hlutskipti einstakra drykkju- manna og vandafólks þeirra. Þaö er ýkjulaust, aö sænska velferöarrlkinu er ógnaö af drykkjuskap. Þeir, sem minna mega sln, eru einkum I hættu.” Fordæmi fullorðins fólks „Hér þarf þjóöarvakningu gegn áfenginu”, segir enn fremur I ávarpinu. „Viö hvetjum alla til þátttöku I henni. Vissulega varöar þetta allan þann fjölda manna, sem telja sig hófsmenn. Sannarlega veröur þjóöfélagiö og einstakir samborgarar aö styöja meö mörgu móti þaö fólk, sem nú þegar er háö áfenginu eöa býr viö böl af völdum þess af öörum ástæöum. En engu aö síöur er nauðsyn, aö viö sameinumst öll I alvarlegri viöleitni til þess aö minnka áfengisneyzluna I heild. Þaö veröur þvl aöeins gert, aö hver og einn minnki sina eigin neyzlu eöa hætti henni alveg. Sérstök ábyrgö hvllir á hinni rosknari kynslóö. Viö getum ekki einfaldað áfengisvandamáliö meö þvi aö kalla þaö unglinga- vandamál sérstaklega. Fordæmi fulloröins fólks er mikill áhrifa- valdur og hvati í öllu uppeldi þeirra, sem yngri eru. Viö veröum aö sýna I allri fram- göngu, I einkallfi, félagsllfi og á vinnustaö, aö mannlegt samfélag og mannleg kynni krefjast hvorki áfengis né neins konar lifsflótta.” Samábyrgð allra Lokaorö ávarpsins eru þessi: „Saga liöins tima hefur kennt okkur, aö félagshreyfingar móta þjóölffiö og orka á llf einstak- linganna. Meö áhrifamiklu félagsstarfi má reisa öflugan varnargarö gegn áfenginu. Samfélagiö veröur aö neyta allra bragöa til þess aö sporna gegn áfengisnautn og þrýsta áfengisneyzlunni niður. Siöast en ekki sizt veröum viö, hver og Framhald á bls 31 I Vantar ykkur iimihurðir? HUSBYGGJENDUR HÚSEIGENDUR Hafið þið kynnt ykkur okkar glæsilega úrval af INNIHURÐXJM? Hagstæðasta verð og I greiðsluskilmálarB Trésmiðja Porvaldar Ólafssonar h.f. Iðuvöllum 6, Keflavik Simi: 92 3320

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.