Tíminn - 30.07.1980, Qupperneq 2
.< I
2
11 •*■#*> f./
mt«<
Miövikudagur 30. júli 1980
Gullfalleg frönsk leikföng
INCVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Sími 33560
Vindheimamelar:
Grímseying-
ar senda
hesta í
keppni
GÖ — Sauöárkróki. Sumarhátiö
hcstamanna í Skagafiröi veröur á
Vindheimamelum um næstu
helgi, verslunarmannahelgina,
og hefst kl. 15.00 á laugardag.
Þá daga fara fram gæöinga-
dómar og undanrásir kappreiöa. I
gæöingakeppni veröur keppt bæöi
I A-og B-flokki. Þar munu vafa-
laust margir fallegir gæöingar
keppa.
Þá fer fram unglingakeppni, 15
ára og yngri, en þátttaka ungl-
inga I hestaiþróttum fer sivax-
andi.
t skeiöinu munu keppa tveir
hestar frá Grimsey, og er þaö ný-
lunda. Hestarnir eru feögar og
keppa i 250 og 150 metra skeiði. Á
kappreiðunum munu margir
frægustu hestar landsins keppa.
Siödegis á laugardag veröur
hestauppboö á Melunum. Veröa
seldir nokkrir tugir hesta frá
Krossanesi og Vallarnesi.
Reiknaö er meö að fjöldi hesta
sæki mótiö en góö aöstaöa er til aö
taka á móti fólki, tjaldstæöi eru
næg og margs konar veitingar á
boöstólum.
— í fyrra sem gefa varla undir 40.000 hitaeiiiingum á mann
HEI — A s.l. ári voru framleidd
hérá landi 1.920 tonn af sælgæti,
en innflutningur nam 337 tonn-
um. Samtals gerir þetta þvi
2.257 tonn á árinu, aö þvi er
fram kom I greinargerö Versl-
unarráös tslands um fram-
leiöslu og innflutning sælgætis.
Til samanburöar, var innlenda
framieiöslan 888 tonn áriö 1969
og innflutningur 156 tonn, eöa
samtals 1.044 tonn.
Neyslan hefur þvi meira en
tvöfaldast á þessum 10 árum og
má segja aö hitn hafi aukist ár-
lega, nema aö um smávegis
samdrátt hefur oröiö aö ræöa
áriö 1975.
Samkvæmt þessu viröist aö
um 10 kiló af sælgæti hafi lent
upp I munn hvers Islendings á
s.l. ári, aö meöaltali. Miöaö viö
núgildandi smásöluverö, er
5.000 kr. á kiló tæpast ofreiknaö
sem jafnaöarverö. Sennilega er
það töluvert hærra. En þaö
mundi þá þýöa 50 þós kr. sæl-
gætisUtgjöld á mann yfir áriö.
I
Siöan er önnur hlið á málinu,
sem margir eru viökvæmir fyr-
ir, en þaö eru hitaeiningarnar. I
sykri eru um 400 hitaeiningar I
lOOgrömmum, en meira er t.d. I
sUkkulaöi. En ef viö göngum Ut
frá þessum 400, veröur árs-
skammturinn aö meöaltali
40.000 hitaeiningar á mann.
Dagleg hitaeiningaþörf fólks i
léttri vinnu er sögö um 2.000 til
2.500, þannig aö sælgætiö upp-
fyllir hitaeiningaþörfina I 16-20
daga á ári til jafnaöar. Þá er
sagt aö um 7.000 hitaeiningar
þurfi i eitt kg af fitu á mannslík-
amanum, þ.e. sá sem minnkar
viö sig sem þvi nemur léttist um
eitt kiló og öfugt. Þannig má þvi
ætla aö um 5,7 kg af likams-
þunga hvers tslendings að
meöaltali sé komið af neyslu
sælgætis. Aö sjálfsögöu skal þvi
ekki haldiö fram aö tslendingar
hafi aö jafnaöi þyngst um 5,7 kg
i fyrra. En þaö er þá vegna þess
aö sælgætiö hefur komiö I staö
annarra matvæla og þá kannski
eilitiö hollari.
Þá skal tekiö fram, aö i þessu
yfirliti er aöeins átt viö sælgæti,
en aðrar bætiefnasnauöar syk-
urvörur, t.d. gosdrykkir, ekki
meðtaldar.
Selja að-
gang í
Mörkina
— kemur i stað tjaldgjalda
Um Verslunarmannahelgina
veröur tekin upp sú nýbreytni aö I
staö innheimtu tjaldgjalda af
feröamönnum þá veröur inn-
heimt eitt gjald, kr. 2.000.- af
hverjum fullorönum sem i Þórs-
mörk fer. Er þessi nýbreytni gerö
I þvi skyni aö auövelda innheimtu
jafnframt þvi sem henni er ætlað
aö standa undir þvi aukna eftirliti
og þjónustu sem ákveðiö hefur
veriö ab veita feröafólki á svæö-
inu um þessa helgi. Aöilar
frá slysavarnardeildinni á Hvols-
velli veröa á svæöinu frá föstu-
degi til mánudags ásamt starfs-
mönnum skógræktarinnar.
Vonir eru bundnar viö þaö að
meö þessu fyrirkomulagi megi
auka öryggi allra þeirra sem í
’ Þórsmörk leita þessa helgi og
gera þeim vistina ánægjulega.
Jafnframt veröur löggæsla á
svæöinu.
Unniö aö sælgætisframleiöslu
Sælgætísneysla
um 10 kg á mann
Runólfur Runólfsson handleikur skófluna
Ibúðir fyrir
aldraða í Vík
Mánudaginn 21. jóli var fyrsta
skólfustungan tekin fyrir Ibúöir
fyrir aldraöa I Vik i Mýrdal.
Skólfustunguna tók Runólfur
Runólfsson, vistmaöur á Elli-
heimilinu i Vik og voru aörir vist-
menn viöstaddir þá athöfn. Eftir
aö hafa tekiö skóflustunguna af-
henti Runólfur 600.000. króna gjöf
til byggingarinnar frá sér.
1 þessum fyrsta áfanga sem nú
er ha&n bygging á eru fjórar
ibilðir ásamt sameiginlegri setu-
stofu og göngum alls um 300 fer-
metrar aö flatarmáli, en i fram-
tiöinni er fyrirhugaö aö húsin
veröiþrjú sambyggö meö 12 ibúö-
um ásamt sameiginlegu rými alls
að flatarmáli 1140 fermetrar.
Byggingarnar teiknar Jes Einar
Þorsteinsson arkitekt, en verk-
taki viö fyrsta áfanga er bygging-
arfélagið Klakkur i Vik. Aö bygg-
ingu þessari standa þrir aöilar,
Minningarsjóöur Halldórs Jóns-
sonar o.fl., Hvammshreppur og