Fréttablaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 82
BIB is a progressive four-year, full-time business programme taught in English for students
aged 15+ -20 who are preparing for further business studies in a global environment
WWW.VERSLO.I
S
BIB
BACCALAUREATE IN INTERNATIONAL BUSINESS
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
AFSLÁTTUR
35%
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
A-riðill:
B-riðill:
C-riðill:
D-riðill:
E-RIÐILL:
G-riðill:
Leikur Dana og Svía í F-
riðli undankeppni EM er á leið í
sögubækurnar. Svíar spiluðu frá-
bæra knattspyrnu og komust í 3-
0 en með ótrúlegri eljusemi og
góðum leik náðu Danir að jafna í
3-3. Allt var á suðupunkti á Parken
á lokasekúndunum þegar Christi-
an Poulsen kýldi einn Svíann í
magann og Herbert Fandel dóm-
ari leiksins vísaði honum af velli
og dæmdi vítaspyrnu.
Í því óð dönsk boltabulla inn á
völlinn og kýldi Fandel en Michael
Gravgaard náði að draga úr högg-
inni og henda árásamanninum í
burtu. Fendel efndi til ráðstefnu
með fjórða dómaranum og kallaði
alla leikmenn af velli. Hann ákvað
síðan að dæma Svíum 3-0 sigur í
leiknum og mega Danir eiga von
á þungri refsingu frá UEFA vegna
skandalsins sem skók Parken.
Vonir Dana um að komast áfram
eru nánast orðnar að engu.
Jon Dahl Tomasson, fyrir-
liði Dana, var ekki ánægður með
niðurstöðuna. „Þetta var skandall.
Hvern fjandann var áhorfandinn
að gera? Svona lagað á ekki heima
í fótbolta. Ég óttast hið versta,
hvað UEFA gerir í málinu skilur
eftir sig tómarúm í hugum okkar.“
Morten Olsen, þjálfari Dana, var
gjörsamlega brjálaður. „Þetta er
svartur dagur fyrir danska knatt-
spyrnu,“ sagði Olsen. Á heimasíðu
UEFA kemur fram að sambandið
geti ekki staðfest úrslitin fyrr en
aganefnd þess kemur saman og
fer yfir málið.
Spánverjar unnu Letta á úti-
velli og komust þar með upp í
þriðja sæti riðilsins. Spánverjar
voru betri aðilinn en eftir að hafa
komist yfir með sjálfsmarki Letta
voru þeir heppnir að halda marki
sínu hreinu áður en Xavi tryggði
þeim sigurinn.
Ótrúlegum leik Dana og Svía í gær lauk með mikilli
dramatík þegar dómarinn flautaði leikinn af á loka-
sekúndunum og dæmdi Svíum 3-0 sigur.