Fréttablaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 86
* Viðskiptav
Vildarklú
viðskipta
safna ve
að vera
NÝJU
SVONA SAFNAR ÞÚ
GLITNISPUNKTUM
• Kreditkortanotkun
• Viðskiptavinir í Vildarþjónustu*
• Bílalán hjá Glitni Fjármögnun
• Viðbótarlífeyrissparnaður
• Eignastýring
• Einkabankaþjónusta
• Tryggingar hjá Sjóvá
og margt fleira
Vildarklúb
SKRÁÐU ÞIG
NÚNA!
Þeir sem skrá sig fyrir
17. júní fá 10.000
Glitnispunkta strax!
Vill búa í sveit með stórfjölskyldunni
Atli Örvarsson hefur verið ráðinn
til að semja tónlistina við Holly-
wood-myndina Vantage Point en
hún skartar stórstjörnum á borð
við Sigourney Weaver, Forest
Whitaker og William Hurt í aðal-
hlutverkum. Valdís Óskarsdóttir
og Sigvaldi J. Kárason hafa verið
að klippa myndina en eru nú snúin
til annarra verka og í þeirra stað
er Stuart Baird tekinn við skær-
unum.
„Þetta má eiginlega þakka læri-
meistara mínum, Hans Zimmer,
en hann lagði sitt á vogarskálarn-
ar við að koma mér á framfæri við
framleiðendurna og liðka fyrir,“
segir Atli sem hefur verið búsett-
ur í Bandaríkjunum í tæp fjór-
tán ár. Zimmer ætti að vera kvik-
myndaunnendum að góðu kunnur,
hefur sex sinnum hlotið tilnefn-
ingu til Óskarsverðlauna og hlaut
þau 1995 fyrir Lion King.
Atli hefur síðan í mars á síðasta
ári verið hluti af teymi Zimmers
sem aðstoðar tónskáldið og semur
með honum tónverk fyrir kvik-
myndir. Síðast vann hópurinn tón-
listina við Pirates of the Caribb-
ean þrjú og er nú á fullu við að
semja músík við Simpsons-kvik-
myndina. „Allir þessir stóru karl-
ar í þessum geira hafa heilan her
af aðstoðarmönnum í kringum
sig en fæstir af þeim gefa lær-
lingunum einhverja viðurkenn-
ingu. Zimmer er hins vegar mik-
ill snillingur og gefur öllu sínu
starfsfólki „kredit“,“ útskýrir
Atli. „Reyndar var fyrsta verkefn-
ið mitt eftir að ég flutti mig yfir
til hans að endurgera tónlistina í
skemmtigarðinn í Disney World,“
bætir Atli við og hlær en sú tón-
list var í litlu samræmi við mynd-
ina. Atli stóð þá með hjálm yfir
rússíbönum og öðrum leiktækj-
um með upptökutæki og tók upp
gömlu tónlistina á meðan krakk-
arnir æptu og öskruðu. „Ákaflega
skemmtileg minning,“ segir tón-
listarmaðurinn.
Atli fluttist fyrst vestur um haf
þegar hann fékk inngöngu í skóla
í Boston 1993. Síðan hefur hann
skotið rótum í Bandaríkjunum þótt
hugurinn hafi alltaf leitað heim
öðru hvoru. Hann er núna búsett-
ur í Los Angeles þar sem fjöldi Ís-
lendinga býr og starfar, flestir við
kvikmyndagerð af einhverju tagi.
Og er mikill samgangur á milli,
meðal annars eru haldin þorrablót
og 17. júní fagnað með hefðbund-
um hætti. „Miðað við höfða-
tölu erum við Íslending-
ar sennilega valdamesti
minnihlutahópurinn
í Hollywood,“ segir
Atli.
„Djöfull er þetta gott, ég er ánægður með þetta,“
segir Sigurður Hjartarson, safnstjóri Reður-
safnsins á Húsavík. Samkvæmt heimasíðunni
OddEdge.com er safnið það skrítnasta í heimi og
skýtur þar Klósettsafninu, Blæðingasafninu og
Vúdú-safninu í New Orleans ref fyrir rass. Reð-
ursafnið var fyrst til húsa í Reykjavík en hefur
nú flust búferlum til Húsavíkur þar sem Norð-
lendingar hafa tekið því ákaflega vel. „Þetta er
fín auglýsing fyrir mig,“ bætir safnstjórinn við.
Á safninu má sjá allskyns reði af öllum stærð-
um og gerðum þótt enn vanti þann mennska.
Hins vegar má sjá forhúð og eistu úr tveim-
ur íslenskum karlmönnum. „Páll Arason hefur
náttúrulega gefið mér sinn,“ segir Sigurður og
upplýsir að sá mæti maður hafi orðið nítíu og
tveggja ára í gær. Sigurður fær reglulega gjafir
frá fólki sem vill aðstoða hann við að bæta safn-
ið. Síðast bárust honum „tólin“ undan stóðhesti
og bíða þau nú þess að komast í sýningarsalinn.
„Það er erfitt að fá slíkt í heilu lagi því yfirleitt
er búið að taka eistun,“ bætir Sigurður við.
Safnstjórinn segir stolt búrhvalsins vekja
mestu athyglina enda engin smásmíði, heilir 170
cm og sjötíu kíló. „ Og þetta er bara einn þriðji
af honum,“ útskýrir hann en flestir ferðamenn
vilja láta taka mynd af sér fyrir framan ferlíkið.
Sá minnsti hefur líka mikið aðdráttarafl en það
eru djásnin undan hamstri. Þau eru hins vegar
svo lítil að smásjá þarf til að geta séð þau al-
mennilega.
Sigurður er bjartsýnn á framhaldið. Safnið sé
nú loks rekið á núlli og hann hafi meira að segja
greitt sér laun í fyrsta skipti um jólin. Hundrað
þúsund krónur, hvorki meira né minna.
Reðursafnið skrítnast í heimi