Tíminn - 13.08.1980, Page 5
Miðvikudagur 13. ágúst 1980
5
Öryggismálanefnd:
Greinargerð vegna umræðu
og skrifa um kjarnorkuvopn
1 þessari greinargerð verða
raktar þær athuganir og gögn er
komið hafa fram f sambandi við
könnun og umfjöllun öryggis-
málanefndar vegna umræðu og
skrifa um staðsetningu kjarn-
orkuvopna á íslandi Rétt er að
taka fram, að nefndin hefur ekki
enn fengið öll þau gögn í hendur,
sem leitað hefur verið eftir og er
umfjöllun nefndarinnar ekki
lokið.
I. Nefndin hefur safnað eftir-
farandi gögnum og tilvisunum
þar sem staðhæft er, að kjarn-
orkuvopn séu staösett á Islandi:
— The Defense Monitor, febrú-
ar 1975, (Center for Defense
Information, Washington
D.C.)
— Bulletin of Peace Proposals,
Nr. 3,1975. (kaflar úr Defense
Monitor, feb. 1975)
— Bulletin of the Atomic Scient-
ist, mai 1975. (grein eftir
Barry Schneider aöalgreina-
höfund Defense Monitor, feb.
1975)
— Congressional Record, mars
7. 1975, 94th Cong. lst. Session
bls.5761-5763. (endurprentun
á Defense Monitor)
— Disarmament and Destruc-
tion, SIPRI 1975.
— Arms Uncontrolled, SIPRI:
Hvarvard UNIVERSITY
• Press 1975.
— Ambio, Vol. IV, Nr. 5-6, 1975
(grein eftir Frank Barnaby
forstööumann SIPRI)
— Armaments and’ Disarma-
ment in the Nuclear Age,
SIPRI 1976
Tölvukönnun, sem gerö var á
vegum nefndarinnar i Banda-
rikjunum á þvi hvort slikar
staöhæfingar koma fram i fleiri
erlendum timaritum eöa dag-
blööum leiddi ekkert nýtt I ljós.
Eins og séö veröur á listanum
hafa staöhæfingar um tilvist
kjarnorkuvopna á Islandi komiö
fram hjá tveimur stofnunum
og/eöa einstaklingum, sem þar
hafa starfaö, Center for Defense
Information, Washington D.C.
og Stockholm International
Peace Resarch Institute
(SIPRI).
Frank Barnaby forstööumaö-
ur SIPRI hefur staöfest, aö upp-
lýsingar þeirrar stofnunar
koma frá Center for Defense In-
formation (CDI) og er þvi ljóst,
aö frumheimildin fyrir þeim
skrifum, sem talin eru hér á
undan er The Defense Monitor
febrúar 1975. Aöalgreinahöf-
undur þessarar útgáfu mun
hafa veriö Barry Schneider,
sem á þeim tima starfaöi hjá
CDI.
Ekki hefur tekist aö ná tali af
Barry Schneider en William M.
Arkin, sem starfar viö CDI haföi
eftir Schneider, aö hann heföi
komist aö þessari niöurstööu
eftir aö hafa átt viötöl viö menn
er störfuöu hjá bandariska ut-
anrikis- og varnarmálaráöu-
neytinu. Heföi Schneider sagt,
aöhann væri tiltölulega viss um
(reasonably confident), að um
réttar upplýsingar væri aö
ræöa.
1 viötali viö David Johnson og
William Arkin I Washington þ.
16.6. s.l. sagðist Johnson, sem
hefur umsjón meö rannsóknum
CDI, minnast þess, aö þegar
The Defense Monitor var gefinn
út i febrúar 1975 hafi hann per-
sónulega ekki taliö heimildir
nægilega áreiðanlegar og viljaö
kanna máliö frekar. Gene La
Rocque fyrrv. aömíráll og for-
stööumaöur stofnunarinnar
heföi hinsvegar tekiö ákvöröun
um útgáfu.
Il.íyfirlýsingu Center for De-
fense Information sem birst
hefur opinberlega hérlendis er
gerö grein fyrir afstöðu stofnun-
arinnar varöandi þessi mál þar
sem byggt er á likum.
Starfsmaöur nefndarinnar
átti viötal viö Gene La Rocque
forstööumann CDII Washington
D.C. þ. 20.6. s.l. Tók La Rocque
mun ákveðnari afstööu i viötal-
inu heldur en gert er i yfirlýs-
ingu stofnunarinnar og hélt þvi
raunar beinlinis fram, aö á Is-
landi væru staösett kjarnorku-
vopn. Var meginröksemdin sú,
aö þaö væri föst regla hjá
bandariska flotanum aö staö-
setja vopnin þar sem áætlaö
væri aö nota þau. Sama sinnis
var aöstoöarforstööumaöur CDI
Bertram K. Gorwitz fyrrv.
hershöfðingi. Aö visu sagðist La
Rocque dcki vera alveg 100%
öruggur vegna þess aö flotinn
gæti auöveldlega flutt vopnin
burtu á mjög skömmum tima og
kynni hann aö hafa gert þaö
þegar. Aöspuröur hvernig
þekkja mætti kjarnorkuvopn,
sagöi La Rocque aö i útliti væru
þau ekki frábrugðin öörum
vopnum. Hinsvegar væru oddar
þeirra rauðmálaöir en i sjálfu
sér væri allt eins hægt aö mála
þá i öörum lit ef ætlunin væri, aö
þau þekktust ekki.
Er La Rocque var spurður
heimilda fyrir niöurstööu „The
Defense Monitor” feb. 1975
svaraði hann þvi til, aö Center
for Defense Information heföi
meö 156 riki i heiminum aö gera
ogheföi ekki tima til aö fara of-
an I mál, sem væri orðiö fimm
ára gamalt.
Starfsmaöur nefndarinnar
hefur haft samband viö Milton
Leitenberg, sem um þessar
mundir starfar fyrir SIPRI.
Hefur Leitenberg á grundvelli
áheyrna i bandariska þinginu
kannaö stefnu Bandarikja-
manna meö tilliti til kjamorku-
vopna i Evrópu. Sagöi hann i
samtali þ. 22.5. s.l. aö hann vissi
til þess aö hér væru tæki, sem
borið gætu kjarnorkuvopn en
þaö þýddi hinsvegar ekki aö þau
væru staösett hér.
1 yfirlýsingu Center for De-
fense Information er minnst á
setningu i upplýsingabæklingi
varnarliösins þar sem stendur
aö landgönguliöar flotans hafi
með öryggisgæslu aö gera skv.
reglum, sem kveöiö er á um i
handbók flotans um öryggis-
gæslu kjarnorkuvopna. Er þetta
talin sönnun fyrir þeim mögu-
leika, aö hér séu staðsett kjarn-
orkuvopn eöa aö þau verði flutt
hingaö á hættu- eöa ófriöartim-
um.
Fræöimenn á sviöi öryggis-
mála hjá Brookings Institutíon
ogCongressional Research Ser-
vice i Washington voru spuröir
álits á þessu atriöi. Voru menn á
einu máli um, aö sennilega væri
gert ráö fyrir flutningi kjarn-
orkuvopna til lslands á hættu-
eöa ófriöartimum en töldu ólik-
legt, aö hér væru staösett slik
vopn.
III. Island fellur undir her-
stjórnarsvæöi CINCLANT
(Commander in Chief,
Atlantic). Reynt hefur veriö aö
kanna hvernig kjarnorkuvopn
koma inn á þetta herstjórnar-
svæði. Hefur árangur þeirrar
athugunar verið takmarkaöur
enda hefur ekki unnist tími til aö
afla gagna sem skyldi. Rétt
þykir þó aö benda á eftírfarandi
sem fram kemur i áheyrnum
bandariskrar þingnefndar.
Ef við snúum okkur nú aö
CINCLANT þá sjáum viö, aö
þar er beitingu háttaö á ann-
an veg, aö þvi leyti aö meiri
hluti hins taktiska kjarnorku-
vopnaherafla tilheyrir flotan-
um og er aöeins hluta hans
beitt i framvarnarstöðu á
hverjum tima. CINCLANT
hefur nú á aö skipa (útstrik-
aö) taktiskum kjarnorku-
vopnum og eru (útstrikaö)
staösett i framvarnarstööu.
Hinn taktiski kjarnorku-
vopnaherafli CINCLANT
samanstendur af (útstrikaö)
A6/A7 sprengjuflugvélum,
sem staösettar eru á flugmóö-
urskipum annars flotans. At-
hygli er vakin á þvi aö CIN-
CLANT hefur á aö skipa
taktiskum kjarnorkuvopnum
til átaka og vama i formi
stórskotaliös- og staöbund-
inna kjarnorkuvopna land-
gönguliössveitanna. Þau eru
geymd (útstrikaö) eins og
flestar kafbátaleitarvéla
CINCLANT og þær kjarn-
orkudjúpsprengjur, sem þeim
eru ætlaöar. Allur er þessi
vopnabúnaöur tilbúinn til
þess aö vera fluttur á átaka-
svæöin á hættutimum. 1)
+ lenskatextanum er „theater
nuclear forces”. Er það orö-
tak ásamt „tactial nuclear
forces” notaö um kjarnorku-
vopn, sem borin eru af tækj-
um, sem draga tiltölulega
stuttar vegalengdir. Viömiö-
unin er þá tekin af hinum
löngu vegalengdum milli
Bandarikjanna og Sovétrikj-
anna.
1) Department of Defense
Authorization for Appropria-
tions for Fiscal Year 1980.
Hearings before the Comm-
ittee on Armed Services Un-
ited State Senate. Part. 6. bls
3428.)
Samkvæmt upplýsingum,
sem nefndin hefur aflað munu
flestar kafbátaleitarvéla CIN-
CLANT vera staösettar i Bruns-
wick, (fimm flugsveitir /40-45
vélar), sem liggur noröur af
New York borg. Eins og hér
kemur fram er aöeins hluti hins
taktiska kjarnorkuherafla I
framvarnarstöðu á friöartim-
um. Bendir þetta til þess, að
fremur er gert ráö fyrir flutn-
ingi vopnanna á átakasvæöin á
hættu eöa ófriöartimum, en aö
staösetja þau þar á friöartim-
um.
IV.Frank Barnaby og Milton
Leitenberg hjá SIPRI hafa báö-
ir lagt áherslu á þaö i samtöl-
um, aö auövelt sé aö komast aö
raun um hvort kjarnorkuvopn
eru staösett á lslandi meö þvi aö
kanna hvernig öryggisgæsiu
vopna er háttaö hér á landi.
Sagöi Leitenberg aö venjulega
væru tvöfaldar giröingar til
staöar, svæöiö væri upplýst all-
an sólarhringinn og vopnaöir
veröir viö gæslu. Barnaby lýsti
þessu á sama hátt en bætti þvi
jafnframt viö, aö varöturnar
væru oftast til staöar og raf-
eindabúnaöur tengdur viövör-
unarkerfiværi staösettur á milli
giröinganna.
Upplýsingar um þaö hvernig
öryggisgæslu kjarnorkuvopna
er háttaö eru ekki opinberar
nema aö mjög takmörkuöu
leyti. Eftirfarandi atriöi þessu
varöandi koma fram i áheym-
um bandariskrar þingnefndar.
Almennt gildir aö sjálf kjarn-
orkuvopnin eru geymd i byrgj-
um (igloos), sem búin eru stái-
huröum. Viövörunarkerfi er
tengt innganginum og eru lásar
þannig úr garöi geröir, aö fleiri
en einn mann þarf tíl aö opna
þá.
Frá fyrri hluta áttunda ára-
tugar hafa áætlanir veriö I
framkvæmd, sem miðaö hafa aö
þvi aö auka öryggisgæslu kjam-
orkuvopna hvort sem er innan
Bandarikjanna eöa utan. Hefur
þetta veriö gert til aö hindra
skæruliða eöa aöra aöila i aö
komast yfir slik vopn.
Kjarnorkuvopnageymslur
staösettar utan Bandarlkjanna
hafa haft forgang aö þessu leyti
og var áætlaö, aö I árslok 1980
yröi lokiö endurbótum á
öryggiskerfi þeirra. Nokkur
mismunur viröist vera á endur-
bótum, sem framkvæmdar hafa
veriö á vegum landhers, flug-
hers og flota en þó ekki i grund-
vallaratriöum. Þá hefur öryggi
verið mismunandi mikiö eflt
meö tilliti til staösetningar
kjarnorkuvopna. Þar sem mikil
hætta er talin stafa aö vegna
skæruliöa er öryggisbúnaöur og
varsla strangari o.s.frv.
Sem dæmi um hvernig,
endurbótum er hagað hefur
bandaríski flugherinn látiö
framkvæma eftirfarandi endur-
bætur á kjarnorkuvopna-
geymslum bæöi innan og utan
Bandarikjanna: Breytingar
hafa verið geröar á giröingum
eöa settar upp nýjar. Geröar
hafa veriö ráöstafanir til aö fá
aukalegt rafafl inn á svæöin i
þvi tilfelli aö skæruliöar reyndu
að rjúfa rafstraum. Stórum
svæöum utan giröingar hefur
verið haldiö opnum til aö
mannaferöa veröi fljótlega
vart. Nýjar læsingar hafa verið
settar á vopnageymslur. End-
urbætur hafa veriö geröar á raf-
lýsingu svæöa þar sem kjam-
orkuvopn eru geymd.
Gæslu viö kjarnorkuvopna-
geymslur er þannig háttaö, aö
öryggisveröir eru viö hliöin inn
á svæöin. Gert er ráö fyrir aö
um 15 vopnaöir hermenn geti
komið á staöinn innan fimm
minútna ef þess er talin þörf. Þá
er auk þess gert ráö fyrir
minnst 30 manna varaliöi.
Ljósrit úr:
The Defense Monitor, febrúar
1975.
Bulletin of Peace Proposals, Nr.
3 1975.
Ambio, Vol. IV, Nr. 5-6, 1975.
Armaments and Disarment in
the Nuclear Age, SIPRI ’76.
Iceland Defense Force: In-
formation Brochure (1978).
Útgáfulista bandariska flotans.
Centerfor Defence Information,
Statement on Iceland.
Department of Defence Aut-
horization for Appropriations
for Fiscal Year 1980. Hearings
before the Comittee on Armed
Services United States Senate,
Part 6.
Hljómsveit QissurAr Qeirssonor Selfossi
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
VÆNTANLEGIR
VIÐSKIPTAVINIR:
RÉTTARBÖLL, ALMENN
BÖLL, EINKASAMKVÆMI,
ÞORRABLÓT, JÓLABÖLL
OG FLEIRA.
ERUM TIL ALLS VISIR.
PANTIÐ TIMANLEGA.
Upplýsingnsími:
99-IW
Auglýsing um aðalskoðun
bifreiða í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur í ágústmánuði 1980
Miövikudagur U.ágúst R-46301 til R-46800
Fimmtudagur I2.ágúst R-46801 til R-47300
Föstudagur 13.ágúst R-47301 til R-47800
Mánudagur 18.ágúst R-47801 til R-48300
Þriðjudagur lð.ágúst R-48301 til R-48800
Miövikudagur 20.ágúst R-48801 til R-49300
Fimmtudagur 21.ágúst R-49301 til R-49800
Föstudagur 22.ágúst R-49801 til R-50300
Mánudagur 25.ágúst R-50301 til R-50800
Þriöjudagur 26.ágúst R-50801 til R-51300
Miövikudagur 27.ágúst R-51301 til R-51800
Fimmtudagur 28.ágúst R-51801 til R-52300
Föstudagur 29.ágúst R-52301 til R-52800
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins,
Bildshöfða 8 og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 08.00 til
16.00.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé
greiddur og vátrygging fyrir hverja bif-
reið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera *
gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tima. Á leigubif-
reiðum til mannflutninga, allt að 8 far-
þegum, skal vera sérstakt merki með bók-
stafnum L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni
til skoðunar á auglýstum tima verður
hann látinn sæta sektum samkvæmt um-
ferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð
hvar sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
11. ágúst 1980.
Sigurjón Sigurðsson.