Tíminn - 13.08.1980, Blaðsíða 9
MiOvikudagur 13. ágúst 1980
9
Sveinn Biömsson
Þessa 'dagana stendur yfir á
KjarvalsstöOum sýning á verk-
um Sveins Björnssonar, list-
málara frá HafnarfirOi, eöa
nánar til tekiö frá 2.-23. ágúst,
en þriheilagt er nú á staönum,
þ.e. aO þrjár sýningar eru þar í
einu. Minnist ég þess ekkiaO svo
margar einkasýningar hafi ver-
iö haldnar þar samtimis áöur.
Sveinn Björnsson er án efa
einn mikilvirkasti málari okkar
um þessar mundir, viröist ó-
þreytandi viö myndsköpun en
hann hefur vinnustofu I Krýsu-
vik, þar sem vindarnir æöa og
regniö grætur og gufan brýst út
úr jöröunni meö miklum gný og
björgin titra.
1 þessu hamsiausa umhverfi
veröa myndir hans til, á jörö,
sem viröist geta sprungiö þá og
þegar.
Sveinn B jörnsson
Sveinn Björnsson hefur löng-
um fariö sinar eigin leiöir I
myndlistinni, ótaminn og villtur
bæöi i lit og formi. Myndir hans
eruoftóhugnanlegar, ljótar eins
og svööusár á myndfleti, en i
þeim er samt oftast einhver
undarlegur kraftur, eins og I
svörtum fjöllunum i Krisuvík og
sú ógn er undir býr. Nei, Sveinn
Björnsson tekur myndlistina
engum vettlingatökum, og ef til
vill liggja töfrar hans einmitt
þarna, að vera einfari, öngvum
likur.
Sveinn Björnsson hefur unniö
höröum höndum aö sinni list um
ævina, stundaö hana meö sjó-
sókn og annarri erfiöisvinnu, og
það var ekki fyrr en á miöjum
aldri aö honum tókst aö komast
á listaskóla erlendis. Hann
hefur þvi alla tiö barist hart
fyrirtilveru sinni og þeim mun-
aöi, aö fá að mála þessar
drungalegu kröftugu myndir, og
einnig þess vegna tökum viö
þeim meö sérstökum hætti.
Hér áöur fyrr á árunum hlaut
list Sveins Björnssonar ekki
mikla náö, hvorki fyrir augum
almennings eöa þeirra er rita i
blööin um myndir, þaö væri
synd aö segja. En smám saman
Jónas
Guðmundsson:
Myndlist
hefur honum tekist aö hasla sér
völl og vinna sér álit. Ég veit
ekki hvort myndir hans hafa
mildast eöa hvort viö höfum lát-
iö undan þessum ofsa. Allavega
þá kann undirritaöur nú vel aö
meta þessi háværu verk, og það
er þó siöur en svo nokkur logn-
molla yfir sýningu hans á Kjar-
valsstööum nú.
Einstakar myndir
A sýningu Sveins Bjömssonar
eruaöþessusinni 85 verk, sam-
kvæmt skrá. Flest oliumálverk
ogþaö er engum vafa undirorp-
iö, aö þetta er langsterkasta
sýning málarans til þessa, af
þeim er ég hefi séö. Þama er aö
finna margvislegustu viöfangs-
efni, og mörg em nú tengd hin-
um nýja vinnustaö og sambúö-
inni við jöröina, sem er að
springa, eöa Krýsuvik. Viö
Kleifarvatn, Kleifarvatns-
sknmsliö og nokkrar fleiri.
Þaö er öröugt aö útskýra mál-
verk á prenti. Enda varla unnt
að ætlast til þess. Þó verður
varla annaö séö, en aö meö ein-
hverjum hætti nái málarinn nú
betri samstillingu milli tilfinn-
inga sinna og málverksins en
áöur. Vil ég nefna myndir eins
Og Litla fiugan min, Þjóöareign,
Ahrif örlaganornarinnar, Ver-
öld sem var og ef til vill mætti
nefna fleiri er búa yfir einhverj-
um nýjum eiginleikum, er virö-
ast svo hugstæöir.
Þetta er hressileg, áhugaverö
sýning, er listunnendur ættu
ekki aö láta fram hjá sér fara.
Enn heldur FAHR
forystunni r-
Nýiar endurbættar
stjörnumúgavélar:
nýjar vinnslubrerddir
aukin afköst
ÁRMIJLA11
Útboð - Jarðvinna
Tilboð óskast i að grafa grunn og leggja
holræsi við Fjölbrautaskólann i Breið-
holti, Reykjavik.
Útboðsgögn eru afhent á Teiknistofunni
Óðinstorgi, Óðinsgötu 7, Reykjavik gegn
30 þús. kr. skilatiyggingu.
Tilboð verða opnuð 19. ágúst n.k.
Við þökkum
þér innilega fyrir
hugulsemina að
stöðva við gang-
brautina
yUMFERÐAR
RÁÐ
Barnaleiktæki
íþróttatæki
Þvottasnúrugrindur
Vélaverkstæði
BERNHARÐS HANNESSONAR
Sufturlandsbraut 12. Slmi 35810
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að 25% dráttarvextir falla á launa-
skatt fyrir 2. ársf jórðung 1980 sé hann ekki
greiddur i siðasta lagi 15. ágúst.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts íyrir júli mán-
uð er 15. ágúst. Ber þá að skila skattinum
til innheimtumanna rikissjóðs ásamt sölu-
skattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið 5. ágúst 1980