Tíminn - 25.09.1980, Síða 7

Tíminn - 25.09.1980, Síða 7
Fimmtudagur 25. september 1980. 7 Einkaréttur á útvarpi og hlutverk útvarpsráðs Nokkuð ber um þessar mundir á gagnrýni á eftirfar- andi grundvallaratriði útvarps- laga. „Rikisútvarpið hefur einka- rétt á útvarpi, það er útsendingu til viðtöku almennings á tali, tónum,myndum eða öðru efni, hvort sem er þráðlaust, með þræði eða á annan hátt”. Heyr- ist ekki ósjaldan talað um ófrelsi eða opinbert vald i þvi sambandi. Þennan einkarétt til útvarps, sem vissulega er ekki sér- islenskt fyrirbæri, heldur svipað fyrirkomulag, og t.d. hefur tið- kast annars staðar á Norður löndum má væntanlega rekja til tæknilegrar aðstöðu og kostnað- ar á þeim tima sem útvarp var að þróast á fyrri hluta aldarinn- ar. Þá var i raun vart hugsan- legt að aðrir aðilar en stjórnvöld heföu bolmagn til að koma á útvarpsrekstri sem næði lands- mönnum öllum og hefði fram að færa fjölbreytta dagskrá. Það er i sjálfu sér til marks um aö þetta hafi reynst rétt leið og að vel til tekist, að á hálfrar aldar ferli hefur ótrúlega litið borið á óskum um breytingar á þessari skipan. Nú hefur tækniþróun hins vegar leitt til umræðna um að timabært sé að leyfa fleirum en Rikisútvarpinu aö útvarpa, og þá eftir vissum reglum sem settar yrðu.l nágrannalöndum okkar sumum hefur svipuð umræða verið i gangi, t.d. i Nor- egi og Sviþjóð. Hafa Sviar þegar stigið skref i frjálsræðisátt sem vikið verður að siðar, en Norð- menn doka enn við. Ég er þeirrar skoðunar að timabært sé að rýmka nokkuð til á þessu sviði, en þá meö þeim hætti að það skaði ekki starf- semi Rikisútvarpsins, sem gegna mun jafnmikilvægu hlut- verki eftir sem áður. Opinbert vald eða óhlutdrægur og viðsýnn fjölmiðill? Málflutningi gegn einkarétti Rikisútvarpsins er oft beint inná þá ósanngjörnu braut að i allri starfsemi þess og dagskrárgerð sé opinberu valdi beitt til að viðhalda ófrelsi og jafnvel ritskoðun. Þeir sem þessu halda fram virðast sumir hverjir einkum tengja hugtakið frclsi, fjálsræði til útvarps einhliða áróðurs eða boðskapar, eöa frelsi til að nota útvarp i fjáraflaskyni. En skyldi slikt fremur eiga skilið heitið „frjálst útvarp” en útsending Rikis- útvarpsins? Ekki er með nokkurri sann- girni unnt að halda þvi fram að Rikisútvarpið hefti tjáning arfrelsi einstaklinga eða hópa. Stofnunin gerir sér aö minu mati far um að uppfylla mark- mið 3. gr. útvarpslaga, sem voru rakin i fyrri grein. 1 regl- um um fréttaflutning er lögð á þaö megináhersla að gæta fyllstu óhlutdrægni. Sjónar- miðum allra skoðanahópa skulu gerð skil og leita skal öruggra heimilda áður en fréttir eru birtar. Um aöra dagskrárgerð en fréttaflutning er það að segja, að sjaldgæft er að einstakling- um eða félagasamtökum sem bjóöa fram efni sé visað á bug, nema þá að annað tveggja eigi við að efni eða framsetning teljist lélegra en svo að boölegt þyki, eða þá aö þeim efnisþætti sem fram er boðinn hafi nýverið veriö gerð þau skil að ekki þyki viö hæfi að ætla honum meira rými i bili, þvi að dagskrártimi er ekki ótakmarkaður. Ég fullyrði hiklaust að þær reglur sem fylgt er varðandi Ný viðhorf í miðlun útvarps- og sjónvarpsefnis dagskrárgerð og fréttaflutning séu i aðalatriðum til þess fallnar að vekja traust almennings á þeim, enda er Ríkisútvarpið eini fjölmiðillinn sem getur gert sér vonir um að viðhalda eðlilegu jafnvægi i fréttamiðlun og þjóðfélagsumræðu með hlut- leysi sinu. Norsk könnun um fréttamiðlun útvarps Til stuðnings bessari staðhæf- ingu langar mig að lýsa með fáum orðum niðurstöðum skoð- anakönnunar sem gerð var meðal norskra kjósenda fyrir Stórþingskosningar 1973, en bók um það efni eftir Ragnar Waldahl var kynnt i „Dagblad- et” i Osló i október 1975. Niður- stöðurnar geta verið fróðlegar fyrir okkur, þvi að aðstæður hvað varðar útvarpsrekstur eru ekki ósvipaðar i þessum tveim löndum. I Noregi er rikis- útvarp, NRK (Norsk Rikskring- kasting), ein dagskrá i hljóö- varpi, þótt nú hylli þar undir dagskrá tvö, og sjónvarpsdag- skrá sem að lengd og efni svip- ar nokkuð til okkar sjónvarps. Meginniðurstaða könnunar- Sendistöð útvarpsins á Rjúpnahæð. innar var sú að norskir kjós- endur bæru óvenjulegt traust til NRK.hvað varðaði jafnvægi og hlutleysi i fréttamiðlun. Ein- ungis litill hluti kjósenda lengst til vinstri eða lengst til hægri létu i ljós efa um að NRK væri óhlutdrægt. önnur rannsókn sem gerð hafði verið árið áður gaf svipaða niðurstöðu. Svo tölulegt dæmi sé nefnt töldu 79% spurðra fréttir um stjórnmál óhlutdrægar og trausts verðar. Til saman- burðar töldu 65% spurðra dóm- stólana hlutlausa! Ekki v-il ég með þessu fyllyrða að hér á landi yröu svör alveg á sama veg, en niðurstaðan er athyglisverð. Reyndar minnkar gildi svo afgerandi svara sé fréttameðhöndlun NRK um of varkár eða bitlaus en um það er ég ekki fær að dæma. Útvarpsráö Sá aðili sem endanlega ber ábyrgð á dagskrá hljóðvarps og sjónvarps er útvarpsráð, sem skipað er 7 mönnum sem kosnir eru hlutfallskosningu á Alþingi eftir hverjar þingkosningar. 1 6. gr. útvarpslaga er kveðið á um hlutverk útvarpsráðs með þessum hætti: útvarpsráð tekur ákvarðanir um, hversu útvarpsefni skuli haga i höfuðdráttum og leggur fullnaðarsamþykkt á dagskrá. áður en hún kemur til fram- kvæmda. Ráðið setur reglur eins og þurfa þykir til gæzlu þess, að fylgt sé ákvæðum 3. gr. Akvarðanir útvarpsráös um út- varpsefni eru endanlegar”. öllum mun ljóst að það er erfitthlutverk dagskrárstjórnar og útvarpsráðs að gera öllum til hæfis, þegar til ráöstöfunar er aðeins ein dagskrá i 16-17 klst. á sólarhring i hljóðvarpi og 3-4 klst. 6 daga,vikunnari sjónvarpi. Líklega verður þess langt að biða að dagskrá verði svo öllum liki, enda hefur ekki skort á gagnrýni á störf útvarpsráðs i gegnum árin. Oft hefur hún verið tviþætt. 1 fyrsta lagi má telja efnislega gagnrýni á ein- staka liði eða uppbyggingu dag- skrár. Slik gagnrýni hlýtur ætið að vera á kreiki og meira en það, hún er nauðsynleg forsenda þess að útvarpið sé lifandi fjöl- miðill. Það væri vissulega merki deyföar og afskiptaleysi ef hennar gætti ekki. 1 öðru lagi er svo allajafna háværari þáttur gagnrýninnar sem snertir hina pólitisku um- fjöllun útvarps. Oftast er það fréttamiðlunin sem gagnrýnd er fyrir að vera lituð. Athuga- semdir um einstakar fréttir koma jafnvel stundum frá útvarpsráðsmönnum sjálfum og hefur það orðið tilefni þess að þeir séu kallaðir pólitiskir varðhundar sem sjá eigi til þess að fréttir þræði hagstæöar brautir. Ég tel það miður, ef ráðsmenn lita á það sem hlut- verk sitt að vaka yfir þvi að ein- stakar fréttir séu þeim að skapi. Útvarpið hefur glöggar reglur um fréttaflutning sem frétta- mönnum ber aö hlita, en innan þess ramma er ekki annað við- unandi en þeir fái að leggja sjálfstætt mat á það, hvað frétt- næmt sé hverju sinni. En gæta verður þess þó að öll sjónarmið viðkvæmra mála fái umfjöllun, og telst þaö eitt af verkefnum útvarpsráðs. Það er athyglisvert að gagn- rýni á fréttir stjórnmálalegs eðlis kemur oftast frá aðilum sem yfirlýst er að séu annað hvort lengst til vinstri eða lengst til hægri i stjórnmálum. Er það i samræmi við niðurstöður þeirrar norsku könnunar sem fyrr var nefnd. Slikir hópar virðast leggja dálitið sérstætt mat á óhlutdrægni. Það er hins vegar til marks um gildi 3. greinarinnar að að- finnslur einstakra útvarpsráös- manna af þessu tagi leiða sjald- nast til ályktana ráðsins, sem setji fréttamönnum þrengri skorður en almennar fréttaregl- ur segja til um. Samvinna um mótun dagskrár Nú er það rétt að útvarpsráð er pólitiskt i þeim skilningi, að það er kosið af stjórnmála- mönnum á Alþingi og i þvi sitja jafnan stjórnmálamenn, ajn.k. að hluta. Meðan sú skipan er við liði leggur hún þær skyldur á herðar stjórnmálaflokkanna aö reyna að velja i ráðið menn (konur og karla) sem áhuga hafa á þvi meginhlutverki ráðs- ins að móta dagskrá. Þvi að það er nú einu sinni svo að einungis litið brot af dagskrá útvarps og sjónvarps er stjórnmálalegs eðlis. Megnið er almennt dag- skrárefni þar sem áhugi manna mótast af allt öðru en stjórn- málaskoðunum. Þeirri spurningu er oft varpað fram, hvort ekki ætti að breyta skipan útvarpsráðs og e.t.v. einnig starfssviði þess. Ég tel að ástæða væri til efnis- legrar umfjöllunar um þessa þætti. Núverandi fyrirkomulag hefur kosti og galla. Það, að ráöið skuli kosið af Al- þingi vekur ætiö efasemdir hjá nokkrum hópi manna. Hitt ber á aö lita, að væri ráðið skipað með öðrum hætti, t.d. á þann veg að i þvi væru fulltrúar ým- issa hagsmuna- og menningar- samtaka svo dæmi sé nefnt, er næsta vist að innan þess yrði mun harðari barátta og tog- streita milli andstæðra hópa i kjaramálum, trúmálum, menn- ingarmálum o.fl. o.fl. sem ekki er fyrirfram vist að yrði dag- skránni i heild til góðs. Það er einnig umhugsunar- efni burtséð frá skipan ráösins, hvort þaö skuli leggja sam- þykkt á dagskrá fyrirfram eins og nú er.eöa hvort ráöið á að vera umsagnar- og ráðgjafar- aðilisem metur dagskrána eftir á. Eitthvað á þá leið mun háttaö störfum allfjölmenns útvarps- ráðs i Noregi. Hvað sem liður vangaveltum sem þessum er það aðalatriðið að útvarpsráð og dagskrár- stjórn vinni að þvi i góðri sam- vinnu að móta dagskrá með þeim hætti að hún sé fjölbreytt og viðsýn mynd af flestu þvi sem i þjóðfélaginu hrærist.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.