Tíminn - 01.10.1980, Side 9
Miðvikudagur 1. október 1980.
9
Mikil umræöa um mannlifið fer fram á milli þeirra Sigrfðar Hagalln og
Glsla Halldórssonar um leið og þau stytta sér stundirnar við að spila
romml.
Rommí spilað aftur á
fjölunum i Iðnó
AB — Annan október verður
fyrsta sýningin á bandariska
verðlaunaleikritinu „Rommi”
eftir D.L. Coburn á nýbyrjuðu
leikári Leikfélags Reykjavikur.
Leikritið er tekið til sýninga frá
fyrra leikári, en það var frumsýnt
i mai s.l. en þá einungis fyrir
fastagesti leikhússins. Sýningin
hlaut einstaklega góðar viðtökur
og blaðaummæli, og þóttu þau
Sigriður Hagalin og Gisli
Halldórsson bæði fara á kostum i
hlutverkum sinum. Jón Sigur-
björnsson er leiksljóri, Jón Þóris-
son gerði leikmynd, Daniel
Williamsson sér um lýsingu og
Tómas Zoéga gerði þýðinguna.
Smalastúlkan og
útlagarnir og Övitar
aftur á fjalirnar
Sýningará Smalastúlkunni og ót-
lögunum eftir Sigurð Guðmunds-
son og Þorgeir Þorgeirsson hefj-
ast að nýju i Þjóðleikhúsinu
laugardaginn 4. október kl. 20.00.
Leikritiö var frum'sýnt 24. april
siðast liöinn og hlaut þá frábærar
viðtökur, enda kom sýningin
mörgum á övart. Þvi þó svo i
leiknum sé notað hið kunnuglega
útilegumannaminni, þá er verkið
mjög nútimalegt með sinni djörfu
umræöu um ástina og frelsið og i
raun mjög ólikt t.d. Skugga-
Sveini Matthiasar Jochumssonar,
en ýmsir virtust halda aö þessi
leikrit væru mjög keimlik.
Þá kemur hiö geysivinsæla
barnaleikrit Þjóöleikhússins,
óvitar, eftir Guðrúnu Helga-
dóttur aftur á fjalirnar nú næst-
komandi sunnudag 5. október kl.
15.00. Leikritið var sýnt alls 46
sinnum á siðasta leikári og voru
áhorfendur orðnir rúmlega 23
þúsund talsins er sýningum lauk i
vor. Er ætlunin aö sýna óvita i
október og nóvember.
Félagsstarf aldraðra
I Bústaðasöfnuði
AB — Margs konar starfsemi,
sem legið hefur niðri yfir sumar-
mánuöina, hefst nú að nýju.
Þ.á.m. er félagsstarf aldraðra i
Bústaöasöfnuöi. . ...
A liðnum vetrum
hefur öldruöum verið boðið til
kirkjunnar hvern miðvikudag.
Þar hefurmargs konar starfsemi
fariö fram, s.s. bibliulestur,
bænaflutningur, spilaö hefur
verið á spil, útsaumur kenndur
o.fl.
Þessa daga hefur einnig veriö
boðið upp á kaffi og veitingar. Þá
hefureinnig veriö spilaö og sung-
ið. Starfsemin i vetur veröur með
svipuöu móti og verið hefur.
A fimmtudagsmorgnum veröur
öldruðum nú boðið uri á fótsnyrt-
ingu, og upp á hársnyrtingu verð-
ur boðið einu sinni I viku.
Allar nánari upplýsingar eru
veittará skrifstofu Bústaðakirkju
virka daga milli 9 og 11 á morgn-
ana og er siminn 37801.
Vetrarstarf Flugbj örgunarsveitarinnar:
að hefjast
AB — Út er komiö annaö tölublað
fréttabréfs Flugbjörgunarsveit-
arinnar I Reykjavik.
Meðal efnis i fréttabréfi þessu
erfrásögn af fyrirhuguðu vetrar-
starfi sveitarinnar, en þar má
nefna skriðjökulæfingar, og ár-
legan haustfund sem haldinn
verðurifélagsheimili F.B.S.-R. 8.
október, kl. 20.30.
Þá er einnig sagt frá fyrirhug-
uöu afmælishófi sveitarinnar, en
hún verður 30 ára á þessu ári.
Grein um heppilegan fótabúnaö
fyrirfjallamenner einnig i frétta-
bréfi þessu, svo og fréttir af
hjónaferö sem farin var I sumar
ogsmáskýrsla frá Biladeild Flug-
björgunarsveitarinnar.
Nýtt keðjubréfaæði:
Hver vfll 16.487 komir?
Rétt einu sinni enn er hafinn
keðjubréfafaraldur hér á landi.
Fyrir nokkrum árum gengu
keðjubréf manna á meðal og
var ýmist haft i hótunum ef
keðjan yröi rofin eða lofað há-
um fjárupphæðum til handa
þeim sem ekki rufu keöjuna en
létu þá eitthvað af hendi rakna
til þeirra sem ofar voru á keðju-
bréfalistanum I þeirri von að fá
það margfaldlega endurgoldiö
frá þeim sem slðar voru á list-
anum. Eitt sinn gekk áfengis-
faraldur i formi keðjubréfa eins
og eldur i sinu um landið og
hrepptu sumir hverjir griðar-
legar birgðir af viskii eöa koni-
aki i þeim leik. Nokkru siöar
upphófust hópferöir á af-
vötnunarstofnanir i Amerlku og
slikar stofnanir spruttu upp eins
og gorkúlur hér á landi, og sér
ekki enn fyrir endann á þvi hve-
nær þörf fyrir þær verður full-
næet.
Keðjubréfið sem nú er i
gangi brýtur áreiðanlega i
bága við jafnréttislöggjöfina.
Þaö er eingöngu ætlað mestu
kúgurum og yfirgangsseggjum
allra tima, kvæntum karlmönn-
um og hljóðar svona:
,,Kæri vinur.
Upphaf þessarar kveðju er
hugsjónin um það að færa
þreyttum eiginmönnum ævar-
andi sáluhjálp og hamingju.
Ólikt flestum keðjum þá kostar
þessi enga peninga. Þú sendir
einfaldlega eintak af þessu bréfi
til5 giftra vina þinna.sem sitja i
sömu súpunni og þú. Siöan
pakkarðu konunni þinni inn og
sendir hana til þess manns, sem
erefstur á meðfylgjandi lista og
bætir nafni þinu neðst á listann.
Þegar nafn þitt er komiö efst
á listann, þá muntu fá 16. 487
konur og sumar munu vera al-
gjört æði.
ÞU verður aö hafa trú á keðj-
unni. Einn maöur rauf keöjuna
og fékk konuna sina til baka.
Láttu þetta ekki koma fyrir þig.
P.S.
Þegar þetta bréf er skrifað
hafði einn vina minna fengið 365
konur. Hann var jarðsettur I
gær og það tók 7 liksnyrtinga-
menn 36 klukkustundir að ná
brosinu af andlitinu hans.
Kostir þess að vera giftur eru
ótviræðir. Þess vegna er þér
ráðlagt, að gera þinar ráðstaf-
anir og vera með i keðjunni”.
Þarna hafið þið það. Nei, ekki
hlaupa að póstkassanum.
Skák-„frimerki” gefið út af Skáksambandi íslands
AB — Skáksamband Islands
hefur gefiö út skák-,,frimerki” I
tilefni þess að liöin eru 50 ár frá
þvi Islendingar tóku i fyrsta sinn
þátt I ólympiuskákmóti og I fjár-
öflunarskyni vegna þátttökunnar
i ólympiuskákmótinu i Valletta á
Möltu á þessu ári.
I einni blokk eru 10 merki og
veröur blokkin seld á kr. 1000,-
Merkin munu fást keypt I fri
merkjaverslunum, hjá skákfélög-
um og Skáksambandi Islands.
Gisting á Hótel Esju er til reiðu
Viö bjóöum þér þægilega gistingu á
góðu hóteli. Herbergin eru vistleg og
rúmgóð, — leigð á vildarkjörum að vetri
til. Héðan liggja greiðar leiðir til allra
átta. Stutt í stórt verslunarhverfi.
Laugardalslaugin og Laugardalsvöllur í
næsta nágrenni.Strætisvagninn
stoppar við hóteldyrnar,með honum
ertu örfáar mínútur í miðbæinn.
Á Esjubergi bjóðum við þér f jölbreyttar
veitingar á vægu verði.
Á Skálafelli, veitingastaðnum á 9. hæð
læturðu þér líða vel, — nýtur lífsins og
einstaks útsýnis. .
Hér er heimili *
þeirra sem Reykjavík gista,
Suöurlandsbraut 4 ,sími 82200 Reykjaví k.