Tíminn - 01.10.1980, Síða 11
Miövikudagur 1. október 1980.
Bílbeltí
auka
öryggi
AB — Hingað til lands er kominn
Sviinn dr. Rune Andréasson, ráð-
gjafi Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar. Dr. Andréasson er hing-
að kominn á vegum heilbrigöis-
ráðuneytisins og Alfa (nefndar
Alþjóðaárs fatlaðra).
Dr. Rune Andréasson hefur
unnið starf brautryðjandans,
hvaðsnertir lögbindingu á notkun
bilbelta. Segja má að þaö sé starfi
hans að þakka að notkun bilbelta
hefur nú veriö lögbundin i yfir 30
Evrópulöndum.
A blaðamannafundi sem heil-
brigöisráðherra Svavar Gestsson
boðaði til i gær greindi Dr.
Andréasson frá notkun bilbelta i
Sviþjóö og tiðni slysa.
Hann sagði að siðan notkun bil-
belta var lögbundin i Sviþjóð
hefði tiðni slysa stórminnkaö og
eðliþeirra slysa sem eiga sér staö
breyst, þ.e. þau væru ekki jafn
alvarleg.
Sviar hafa náð þeim áfanga að
úti á vegum nota um 90% bilbelti,
en i borgum 75%. Þeir hafa náð
þessari háu prósentutölu með þvi
að sekta þá sem staðnir eru að þvi
að nota bilbeltin ekki um 50 krón-
ur sænskar. Það hefur sýnt sig að
þessi sekt hefur reynst nauðsyn-
legt hjálpartæki við að fram-
fylgja lögunum, þvi Norðmenn
höfðu samskonar lög en enga
sekt, en vegna sibrota sáu þeir sig
tilneydda s.l. sumar að koma
sektinni inn einnig.
Það er rétt að geta þess aö á
mörgum sviðum stöndum við
Islendingar nágrönnum okkar á
Noröurlöndum jafnfætis eða jafn-
vel framar þegar 'statistik' okkar
er borin saman viö þeirra en þvi
miöur er þá sögu ekki að segja
þegar borin er saman tiðni um-
ferðarslysa hérlendis við tiðnina
á hinum Norðurlöndunum.
Það hlýtur líka að segja sina
sögu að notendur bilbelta hér-
lendis eru aðeins á bilinu 10-12%,
og bilbeltislaus maður getur að-
eins foröað sér frá meiðslum i
umferöarslysi eða árekstri ef
bifreið sú sem hann ekur i ekur
með innan við 7 kilómetra hraða
á klukkustund.
Það hlýtur þvi aðeins að vera
spurningin um það hvenær við
lögbindum notkun bilbelta, en
ekki spurning um það hvort við
lögbindum notkun þeirra.
Lars Hofsjö
sýnir I
FÍM-salnum
AB — Sviinn Lars Hofsjö mun
halda sýningu á verkum sinum i
sal FtM að Laugarnesvegi 112 frá
27. sept. til 12. okt. og verður sýn-
ingin opin daglega frá 17-22 en frá
14-22 um helgar.
Lars er fæddur i Stokkhólmi
1931, og stundaöi hann nám við
Kqnstf&ck-skólann og siðar viö
Listaháskólann i Stokkhólmi.
Hann starfar aö mestu sjálfstætt,
entalsvert með arkitektum varð-
andi skreytingar á húsum (litur,
form, skipulag trjágaröa
o.s.frv.). Hann hefur unnið mikið
viö skreytingar opinberra bygg-
inga og hlotið til þess opinbera
styrki.
Lars Hofsjö hefur haldið fjölda
einkasýninga og er sýning hans i
sal FIM þakklætisvottur félaga
FIM til hans fyrir vel unnin störf
að félagsmálum norrænna mynd-
listarmanna, en hann var um
árabil formaöur Norræna mynd-
listarbandalagsins.
A sýningunni verða teikningar
af tillögum hans varöandi skreyt-
ingar á seinni árum, en auk
þeirra veröa vatnslitamyndir,
grafik og nokkur veggteppi.
Hortensjarken-
TRILLUBÁTA
útvegum við með stuttum fyrirvara frá Noregi
í bátnum er 18 hestafla diselvél — Ganghraði8 milur. Nánarí
Báturinn er 6,25 m langur — 2,45 m breiður, hæð stýrishúss 1,80 m. .
Vegur með vél 1200 kg. Burðarmagn 2 tonn. Verð á gengi i dag ca. kr. lipplýsingar í
8.50o.°o°.- síma 86-700
Áhugafólk um
ættfræði
Eigum fyrirliggjandi eftirfarandi ljós-
ritaðar ættfræðibækurrNiðjatal séra Þor-
valds Böðvarssonar prests i Holti undir
Eyjafjöllum og Björns Jónssonar i Ból-
staðahlið.
Ættarskrá séra Bjarna Þorsteinssonar i
Bólstaðahlið.
Ættarskrá séra Bjarna Þorsteinssonar
prests á Siglufirði.
Ættartölubók Bjarna Jóhannessonar
(Sellands-Bjarna). önnumst alla almenna
ljósritunarþjónustu.
1 undirbúningi er útgáfa á ættfræðihand-
riti Jóns Espólin.
Allar nánari upplýsingar um verðið fást i
sima 39330. ——
SAMSKÍPTI^
Ljósritun -Teikningaljósritun - Útgáfa
Ármúli 27 105 Reykjavík Simi 39330
Auglýsið í Tímanum
Tilkynning
Þeir sem telja sig eiga bila á geymslu-
svæði „Vöku” á Ártúnshöfða, þurfa að
gera grein fyrir eignarheimild sinni og
vitja þeirra fyrir 15. október n.k.
Hlutaðeigendur hafi samband við af-
greiðslumann „Vöku” að Stórhöfða 3 og
greiði áfallinn kostnað.
Að áðurnefndum fresti liðnum verður
svæðið hreinsað og bilgarmar fluttir á
sorphauga á kostnað og ábyrgð eigenda,
án frekari viðvörunar.
Reykjavik, 29. september 1980
Gatnamálastjórinn i Reykjavik
Hreinsunardeild.
Útboð — Uppsteypa
Barnavinafélagið Sumargjöf óskar eftir
tilboðum i að steypa upp nýbyggingu við
Eiriksgötu.
Gögn verða afhent hjá Arkitektastofunni
s.f. Ármúla 11, Reykjavik frá og með 30.
sept. n.k. Tilboð verða opnuð 14. okt. n.k.