Tíminn - 23.11.1980, Side 6
6
Sunnudagur 23. nóvember 1980
M
ýar <&
MMMr
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri:
Steingrimur Gfslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt-
ir. Afgreiðsiustjóri: Siguröur Brynjólfsson. —Ritstjórar: Þórar-
inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrfmsson.
Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur
Stefánsdóttir, Elisabet Jökulsdóttir, Friörik Indriöason, Friöa
Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Iieiöur Helgadóttir, Jónas Guö-
mundsson, Jónas Guömundsson (Alþing), Kristin Leifsdóttir,
Ragnar örn Pétursson (iþróttir). Ljósmyndir: Guöjón Einars-
son, Guöjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir.
Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria
Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og augiýsingar:
Síöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Augiýsingasimi: 18300.
Kvöldsimar: 86387,86392.—Verö I lausasÖlu : kr. 280. Askriftar-
gjald á mánuöi: kr. 5500.— Prentun: Blaöaprent hf.
Stj órnarandstæðingar
undirbúa efnahagstillögur
Einn fyrrverandi þingmaður Alþýðuflokksins,
Finnur Torfi Stefánsson, auglýsti á siðastl. sumri
eftir stjórnarandstöðu. Hann hélt þvi fram, að hún
fyrirfinndist ekki á íslandi.
Auglýsing Finns Torfa hefur borið nokkurn ár-
angur. Dag eftir dag að undanförnu hafa ræðuglöð-
ustu þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokks geystst fram á leiksviðið i Alþingishúsinu og
haldið uppi löngu málþófi.
Erindi þeirra hefur verið að krefja rikisstjórnina
sagna um fyrirætlanir hennar i efnahagsmálum.
Sérstaklega hafa þeir krafizt þess, að þær yrðu
kynntar fyrir Alþýðusambandsþing.
Rikisstjórnin hefur lýst yfir þvi, að hún sé ekki
viðbúin að gera það. Það er vissulega miður. Ef vel
hefði verið, hefðu aðgerðir af hálfu hennar átt að
vera gerðar alllöngu fyrir Alþýðusambandsþing.
Vandinn verður meiri af þeim sökum.
En taka verður tillit til þess, að rikisstjórnin er
samsteypustjóm og það er eðli slikra stjórna, að sá
ræður oft mestu, sem hæggengastur er og heldur
föstustum tökum i óbreytt ástand.
Rikisstjórnin er hins vegar ekki eini aðilinn, sem
að réttu lagi ætti að hafa birt tillögur til lausnar
efnahagsvandanum áður en Alþýðusambandsþing
kæmi saman.
Það er ekki siður skylda stjórnarandstöðunnar að
gera kjósendum grein fyrir, hvernig hún vill leysa
vanda efnahagslifsins. Einkum er þetta skylda
hennar, ef hún er ekki sammála rikisstjórninni. Þá
er það hennar að sýna fram á, að hún geti leyst
efnahagsmálin öðruvisi og betur en rikisstjórnin.
Það skal upplýst hér stjórnarandstöðuflokkunum
til málsbóta að þeir eru að undirbúa slikar tillögur.
Geir Hallgrimsson hefur falið Mr. X, sem áður
hefur komið við sögu, að veita forustu sérstökum
vinnuhópi, sem á að undirbúa tillögur Sjálfstæðis-
flokksins um lausn efnahagsvandans.
Eins og kemur fram i bókinni Valdatafl i Valhöll
segir Geir ekki eitt i dag og annað á morgun. Hann
hefur þvi lagt fyrir vinnuhópinn að tillögurnar verði
i aðalatriðum byggðar á leiftursóknarstefnu Sjálf-
stæðisflokksins frá siðastl. hausti.
Kjarni tillagnanna á að verða þessi: Allar verð-
bætur samkvæmt visitölu skulu afnumdar. Verðlag
skal gefið frjálst og rikisstofnanir fái þær hækkanir,
sem þær hafa farið fram á. Skráning vaxta skal
hætt, og lánsfé skal boðið upp á frjálsum markaði.
Rikisútgjöld skulu hækkuð um minnst 35 milljarða
króna og skal nákvæm grein gerð fyrir þvi, hvernig
þeim niðurskurði skuli háttað.
Kjartan Jóhannsson vill ekki verða eftirbátur
Geirs. Hann hefur lika falið sérstökum vinnuhópi að
undirbúa efnahagstillögur af hálfu Alþýðuflokks-
ins. Kjarni tillagna Alþýðuflokksins mun eiginlega
rúmast i einu orði: Raunvextir.
Kappsamlega er unnið að þessari tillagnagerð, en
tillögurnar verða þó ekki birtar fyrr en eftir Al-
þýðusambandsþing. Þ.Þ.
Þórarinn Þórarinsson:
Erlent yfirlit
Réttarhöld Stalíns að
endurtaka sig í Kína
Hua Kuo-feng getur verið i hættu
Jiang Qing og Zang Chunqiao
1 PEKING er nú hafiö
óhugnanlegt sjónarspil, sem
minnir aö mörgu leyti á Stalins-
timann i Sovétrikjunum, þegar
Stalin var aö hefja málaferli
gegn ýmsum nánustu sam-
verkamönnum sinum, en yfir-
leitt lauk þeim meö dauöadóm-
um.
Formleg réttarhöld yfir „fjór-
menningaklikunni” og sex
mönnum öörum hófust i Peking
á fimmtudaginn, aö viöstöddum
35 dómurum og 880 völdum
boösgestum. Réttarhöldin hóf-
ust meö þvl, aö lesin var löng
ákæra á hendur sakborningum,
þar sem þeim var boriö á brýn
aö hafa leitt hinar mestu
hörmungar yfir þjóöina, sem
m.a. hafi valdiö dauöa 34.800
manns. Þá eru þeir ásakaöir um
morötilraun viö Mao og fjölda
annarra glæpa.
Hinir ákæröu báru sig mis-
jafnlega vel meöan ákæruskjal-
iö var lesiö upp. Jiang Qing,
ekkja Maos, reyndi. aö bera
höfuöiö hátt, en brast þó i grát
ööru hvoru.
1 fjórmenningaklikunni svo-
nefndu eru, auk Jiang Qing,
Wang Hongwen, sem um skeiö
var talinn liklegasti eftirmaöur
Maós, Zang Chunqiao, sem bú-
izt var viö aö hreppti sæti Chou
En-lais sem forsætisráöherra,
en Hua varö hlutskarpari, og
Yao Wenyuan, blaöamaöur frá
Shanghai, sem hefur veriö tal-
inn helzti hugmyndafræöingur
og mesti áróöursmaöur klik-
unnar.
Fjórmenningaklikan er búin
aövera I fangelsisiöan i október
1976, en hún var fangelsuö rúm-
um mánuöi eftir fráfall Maós.
Dómstóllinn mun fjalla sér-
staklega um mál fjórmenning-
anna og Chen Boda, sem um
skeiö var einkaritari Maós, en
mál hans er taliö tengjast máli
þeirra.
lööru lagi mun svo dómstóll-
inn fjalla um mál hinna sak-
borninganna fimm, sem voru
nánir samstarfsmenn Lin
Biaos. Þeir eru fyrrverandi
hershöföingjar, sem gegndu
mikilvægum embættum, þegar
vegur Lin Biao var mestur.
Lin Biao var um skeiö út-
nefndur sem eins konar arftaki
Maós og er talinn einn helzti for-
vigismaöur menningar-
byltingarinnar svonefndu. Sög-
ur herma, aö Lin hafi farizt i
flugslysi 1971, þegar hann var
aö flýja til Sovétrikjanna eftir
misheppnaöa tilraun til aö ráöa
Maó af dögum.
1 kinverskum fjölmiölum
ganga fjórmenningarnir og
Chen Boda oft undir nafninu Ji-
ang Qing-klikan, en hinir undir
nafninu Lin Biao-klikan. Sam-
heitiö er Lin Biao-Jiang Qing-
gagnbyltingarklikan.
RÉTTARHÖLDIN gegn tvi-
menningunum, sem nú eru loks
formlega hafin, hafa veriö
vandlega undirbúin af kinversk-
um fjölmiölum um nokkurra
mánaöa skeiö. Fjölmiölarnir
hafa veriö aö birta nýjar og nýj-
ar frásögur um glæpi þeirra.
Margir vestrænir fréttaskýr-
endur, sem rætt hafa um þessi
mál undanfariö, hafa gizkaö á,
aö hér búi meira undir en aö
dæma tvimenningana eftir dúk
og disk. 1 raun sé hér stefnt aö
þvi aö steypa Hua Kuo-feng
endanlega af stóli.
Þessi ályktun er m.a. dregin
af grein, sem birtist fyrir
nokkru i Dagblaði alþýöunnar,
sem er aöalmálgagn kinverska
Kommiinistaflokksins.
Greín þessi er eftir þekktan
sagnfræöing, Li Honglin, sem
hefur veriö samstarfsmaður
Dengs, sem nú er mesti valda-
maöur Klna. I greininni segir,
aö meöan keisarastjórn var i
Kina, hafi keisarinn haft rétt til
að útnefna eftirmann sinn. Slik-
an rétt geti enginn leiötogi I
kommúnistisku riki haft. Það sé
fólkiðen ekki fráfarandi leiötogi
sem hafi þennan rétt.
Hér þykir geirnum vera beint
gegn engum öörum en Hua. Maó
er talinn hafa ráöiö þvi aö Hua
var skipaöur forsætisráðherra,
þegar Chou En-lai féll frá i april
1976. Þegar Maó féll svo sjálfur
frá i september sama ár, var
hann búinn að útnefna Hua arf-
taka sinn sem formann flokks-
ins.
Siöan hefur Hua veriö bæöi
formaöur flokksins og forsætis-
ráöherra þangaö til á fundi kin-
verska þingsins i sumar, þegar
hann varö að láta forsætisráö-
herraembættiö af hendi. Viö þvi
tók Zhao Ziyang, sem hefur not-
ið hylli Dengs aö undanförnu.
ÝMISLEGT þýkir nú benda til
að þaö eigi eftir aö koma I ljós,
aö Hua hafi haft náiö samstarf
viö þorparana fjóra og veriö
sérstaklega I náöinni hjá þeim.
Þaö vakti á sinum tima mikla
athygli, þegar Hua hófst skyndi-
lega til æöstu valda, en hann
mátti þá heita óþekktur. Nú eru
þær sögur á kreiki, aö næstu
fjögur árin á undan hafi Hua
verið æösti yfirmaöur öryggis-
gæzlunnar i landinu og beri þvi
beint eöa óbeint ábyrgð á
fangelsun Dengs og annarra
þeirra leiðtoga, sem þorpararn-
ir fjórir voru mótfallnir. Völd
þorparanna fjögurra byggöust á
þvi, að Maó var á bandi þeirra.
Hafi Hua átt fjórmenningun-
um völd sin að þakka, hefur
hann launaö þeim illa. Þeir voru
fangelsaöir rúmum mánuöi eft-
iraö Maólézt. Hua sættist siöar
við Deng, en sitthvað þykir
benda til aö Deng hafi aldrei
treyst honum vel.
Liklegt þykir, aö þaö muni
skýrast á flokksþingi Kommún-
istaflokksins, sem haldiöveröur
i Peking i janúar, hvort Hua
heldur stööu sinni sem formaö-
ur flokksins. Sennilega veröur
réttarhöldunum yfir Lin Biao-
Jian Qingklikunni þá lokiö.
Margir fréttaskýrendur velta
þvi fyrir sér, hvernig myndin af
Maó, sem auglýstur hefur veriö
sem hinn mikli leiðtogi, veröur
oröin að öllum þessum mála-
rekstri loknum.
Hua flytur kveöjuorö við útför Maós. Viö hliöhans standa WangHongwen, Zang Chunqiao og Jiang Qing