Tíminn - 23.11.1980, Blaðsíða 23

Tíminn - 23.11.1980, Blaðsíða 23
Sunnudagur 23. nóvember 1980 31 Þjóðvegur á Finnmörk, skammt frá Masi. NU eru meira en tiu ar liðin, og Masi er enn ofan vatns. Lifið þar er eins og það hefur verið, en fólkið veit ekki, hvað á þvi kann að dynja. Þaö hefur áður oröiö að flýja undan útlendum hermönnum, gráum fyrir járn- um, sem brenndu og rústuðu, og enn getur til þess komið, að það verði að flýja undan innlendu ofurefli, sem kemur með vinnu- vélar sinar og vatnsflaum. Masi hefur, bæöi i orðræðum og blaöagreinum verið lýst sem mýrarfláka og ömurlegri hrjósturbyggö og i dagblaði á Finnmörk var eitt sinn sagt: „Þeir, sem trúa þvi, að fjögur hundruð manns eigi heima i Masi að tiu árum liðnum, ættu lika að trúa á ævintýrin og jóla- sveinana”. Fólkið i Masi segir, að af- leiðingarnar af virkjuninni veröi ekki þær einar, aðbyggðin þar farist. Fleira muni fylgja með. Það segir, að ásókn veiði- manna, bæði skotmanna og stangveiðimanna, hafi þegar skert lifsskilyröi sin, og það kvartar yfir þvi, aö ferðafólk, sem fær að slá tjöldum hvar sem þvi sýnist, skilji eftir hauga af sorpi og rusli, sem vindur ber siöan vitt um. Viö sliku reyni yfirvöld og stjórnmálamenn ekki aö reisa neinar skorður, heldur láti eins og þeim sé ókunnugt um það. Komi nú til þess, að Altafljót verði virkjað, hafi það i för meö sér, að tvö til þrjú hundruð verkamanna haf- izt við á þessum slóðum i átta ár, og við þaö muni átroðningur enn aukast til stórra muna. Þvi til viðbótar er svo sú hætta, sem kyrrlátu samfélagi verður stefnt i meö margra ára sambúð við slikan mannfjöida, sem dreginn er saman úr öllum átt- um, með þeim drykkjuskap og róstum, er oft fylgja þess konar vinnuhópum. Þegar svo verkinu væri lokið og byggöin kaffærð, mætti horf- ast i augu viö röskun á veður- lagi. ísalög á uppistöðulóninu og kuldi frá þvi myndu spilla veðurfari og gróðri á stóru svæði og lifsskilyrði versna. Til margs konar mótmælaað- gerða hefur komið á liðnum ár- um, og fjöldi fólks hefur fórnað bæöi tima og peningum til þess aö koma i veg fyrir, að Masi verði sökkt. Þar er skemmst að minnast, er hópur Sama tók sig upp og fór alla leiö til Oslóar og svelti sig þar fyrir framan þing- húsið. Þessir menn, sem i ör- væntingu sinni voru að reyna að bjarga byggð sinni, fengu held- ur óskemmtilegar viðtökur i höfuðstaðnum, og mörg orð, sem voru látin um þá falla og tilræði þeirra, bera fyrst og fremst vitni um kynþáttahleypi- dóma og réttleysi þeirra, sem eru fjarri miðstöðvum valdsins. Nú sfðast skarst harkalega i odda i októbermánuði. Njósnir bárust um að bilar og tæki úr eigu heimavarnarliðsins norska heföu verið flutt frá Suð- ur-Noregi til Alta, bæjar viö mynni Altafljóts, i þvi skyni að láta lögregluna nota þetta gegn þeim, sem andvigir voru virkjuninni og albúnir eru að varna þvi, aö hafzt sé að. Hart var viö brugðiö, er þetta spuröist, og vegum lokað. Margir starfsmenn heima- varnarliösins töldu þetta mis- notkun á tækjum þess og sögðu upp þjónustunni. Það hefur sið- an leitt til nýrra deilna, að þessu sinni innbyrðis i heimavarnar- liöinu. Þótt allt sé enn i óvissu um Altafljót, sem yfirvöldin vilja beizla, þótt fimm hundruð manna byggö fari undir vatn. Snúiðbaki við heimavarnarliðinu sökum misnotkunar á bilum þess og tækjum. það, líkt og veriö hefur i heilan áratug, hvað verður um byggð- ina iMasi, eru þar til menn, sem ekki láta þaö á sig bita. Þeir byggja og rækta og ráðast i fyrirtæki. Dæmi um það er Jan Nygard, prentsmiöjueigandinn, sem lét fyrir nokkrum misser- um búa út tjaldstæði handa ferðamönnum með þvi, er slik- um stað heyrir til. Einn bænd- anna, sem á heima neðst i byggðinni næst fljótinu, er að byggja fjós, þar sem rúmast tólf mjólkurgripir, og fáeinir ungir Samar eru að koma undir sig fótunum við búskap, ryðja land og búa i haginn fyrir sig. En kannski veröur fótunum kippt undan þeim og öllum öör- um, sem lifa i þessari byggð. Nýr, fullkominn peningakassi frá Inokoshi 5. Sérstakur takki sem segir hvað klukkan er: 6. Klukkan og minnið vinnur þó kassinn sé ekki i notkun: 7. ótal aðrir mögu leikar á forritun sem 9 t . - - - ' Fullk hentar hverjum og einum. °g "•'eiddur a,niíssinn l0 r PLASTPOK AR O1 8 26 55 NíisCos urm&> PLASTPOKAR O 8 26 55 INOKOSHI Plastpokaverksmiðja Odds Sigurðssonar • Bíldshöfða 10 * Reykjavík Byggingaplast ■ Plastprentun * Merkimidar og vélar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.