Tíminn - 23.11.1980, Síða 17
16
lAJJMil!
Sunnudagur 23. nóvember 1980
HIN TAPAÐA
STYRJÖLD
DANA VIÐ
EITURLYFIN
Sumarið 1970 gerðist það einn góðan
veðurdag, að hópur fólks settist á dyra-
þrep menntamálaráðuneytisins danska og
hóf þar hassreykingar. Þetta var gert ráð-
villtu samfélagi og deigum yfirvöldum til
ögrunar. Þarna voru ekki að verki
ábyrgðarlausir unglingar, heldur sumir
þekktustu menn Dana, þar á meðal rit-
höfundarnir Klaus Rifbjerg og Ebbe
Klövedal Reich. Þetta fólk taldi sig vera
að berjast fyrir frelsi mannsins til þess að
slita af sér fjötra samfélagsins. Seinna
skrifaði Ebbe Reich timaritsgreinar, þar
sem hann varði, ef ekki mælti með notkun
LSD.
Þegar þetta geröist, höföu hin
nýju fíkniefni tiökast i heilan
áratug, og frá og meö árinu 1965
var eiturlyfjaneyzla unglinga
oröin opinber staöreynd i Dan-
mörku. Mikil brögö voru þó ekki
aö sliku þá. En meöal ungs fólks
kviknaöi sú hugmynd, aö hass-
Á ystu
reykingar, sem taldar voru
meinlausar, gætu verið eins
konar lækning á drykkjuskap og
óreglu, komiö i staö áfengis og
ýtt þvi til hliöar.
í kringum 1968 dró til nýrra
tiöinda. Mögnuö ókyrrö kom
upp i skólum, einkum háskól-
um, og um skeiö var þar allt i
hers höndum i mörgum löndum.
Þetta fyrirbæri hefur kallazt
uppreisn æskulýösins. Samtimis
breiddist út eins og eldur i sinu,
aö fólk færi aö gera nokkurs
konar tilraunir með sjálft sig.
Leitað var nýrra leiða, nýrra
lifshátta I gömlu samfélagi.
Ungt fólk leitaöi i stórum hópum
á náöir alls konar fiknilyfja.
Sumt ánetjaöist þeim, sumu
stóö nægjanlegur stuggur af
þeim til þess aö hörfa til baka i
tæka tiö.
Yfirvöld uröu ekki uppnæm.
Þau lifðu i þeirri trú, aö ásóknin
•i fikniefnin væri tizkubylgja,
sem myndi hjaöna nálega jafn-
skjótt og hún reis, og hver hafði
hugsunarlitiö upp eftir öörum
eins og oft tiökast i opinberri
umræðu, aö þetta væri eins og
kvef, sem legöist á marga, en
gengi fljótt yfir. Lint var á öllu
tekiö, er snerti fikniefnin, ögn
andæft, en ekki snúizt til.
snarprar varnar, hvað þá gagn-
sóknar. Þaö var talið of
kostnaöarsamt, og þvi átti aö
sjá, hverju fram yndi og biða
þess, aö „kvefiö” rénaöi.
En eiturlyfjaneyzlan haföi
ekki eðli kvefpesta. Hún gróf
um sig, át sig dýpra og dýpra,
unz yfirvöld vöknuöu við þann
vonda draum, aö hún hafði vax-
iö þeim yfir höfuö og lagt i rústir
lif tugþúsunda manna meöal
jáfnfámennrar þjóöar og Danir
eru.
Nú er talið, að i Danmörku
séu aö minnsta kosti fimmtán
þúsund manna, sem eru for-
fallnir eiturlyfjaneytendur. A
þessu ári munu i kringum eitt
hundraö og sextiu deyja þar
eiturlyfjadauða. Hinn 149. i röö-
inni geispaði golunni i almenn-
ingsgaröi i Kaupmannahöfn um
þab leyti, er guöspjall prestanna
hljóðar upp á skattpeninginn, og
haföi að kodda morgunblað, þar
sem fjallað var um fikniefni
undir risastórri fyrirsögn: Vér
ákærum...
Hin sömu yfirvöld, sem ekki
þótti vert að leggja i kostnaö til
þess aö stemma stigu við fikni-
lyfjafaraldrinum á meöan hann
haföi ekki fyllilega náö sér á
strik,sjá nú fram á, að jafnvirði
um átta milljarða islenzkra
veröur aö leggja fram árlega til
þess að kosta meðferð eitur-
lyfjasjúklinga, sem þó eiga ekki
nema hæpnar vonir um bata.
Þetta er samt ekki nema hluti
þess kostnaöar, sem á sam-
félagiö leggst. 1 kjölfar eitur-
lyfjaneyzlunnar hafa afbrot
stóraukizt, og þaö dregur aftur
á eftir sér aukinn lögreglukostn-
JUTTOaaAlHTTAM MÚX8A
nöf
Njósnasaga
eftir
Adam Hall
Ot er komin á vegum IÐUNN-
AR skáldsaga A ystu nöf eftir
breska höfundinn Adam Hall.
Þetta er njósnasaga og er sögu-
hetjan Quiller sá sem frá var sagt
i bók höfundar, Njósnir I Berlin,
sem út kom á islensku I fyrra.
Um efni sögunnar A ystu nöf,
Ouiller i evöimörkinni, segir svo á
káfiubaki: „Hröpuö flutninga-
flugvél liggur grafin i eyöi-
merkursandinn, áhöfnin orðin
hrægömmum aö bráö. óhugnan-
legur farmur vélarinnar er gildra
hverjum sem nálgast hann.
Asetningur Quillers er aö kanna
hann nákvæmlega...”
OHIMM3M OO JAM
Alfheiöur Kjartansdóttir þýddi
A ystu nöf . Sagan er i tuttugu
köflum, 240 blaösiöur. Oddi
prentaöi.
Ný barnabók:
Vera
VERA eftir Asrúnu Matthías-
dótturheitirbarnabók sem er ný-
komin út hjá MÁLI OG MENN-
INGU.
1 bókinni er sagt frá Veru, sem er
5ára, og býr hjá pabba sínum, en
mamma hennará heima úti i bæ.
Vera litla er hress stelpa, en ekki
alltaf sátt viö hugmyndir full-
oröna fólksins um hvaö gott er og
hollt fyrir litla krakka. Hún veltir
þvl hlutunum fyrir sér og reynir
aö finna svör. Vera vill til dæmis
gjarnan aö móöir hennar biii hjá
henni, eins og pabbi, en þaö er
ekki hægt þvl þau eru skilin og
þaö getur veriö erfitt fyrir 5 ára
stelpu aö skilja viöhorf fulloröna
aö og framlög til fangelsa.öll
þau mannslif, sem farið hafa
forgöröum, og má þá bæöi hafa i
huga þá, sem lifs eru og liönir,
verða ekki metin til fjár.
Engin von er til, aö lát verði á
mannfallinu af völdum eitur-
lyfjanna I Danmörku næstu ár-
in, slður en svo. Þeim, sem i
Þetta er fyrsta bók Asrúnar, en
börnin sem eiga teikningar I bók-
inni hafa fylgst meö tilurö hennar
og teiknaö myndir viö efniö.
VERA er 86 bls. aö stærö, prentuð
ogsett i Prentstofu G. Benedikts-
sonar. Myndirnar á kápunni eru
verk barnanna, en Robert Guille-
mette sá um rööun þeirra.
fólksins. En Vera gerir meira en
aöhugsa, hún fer iútilegu, skoðar
sveitina og leitar aö álfum, og
margt fleira.
Sunnudagur 23. nóvember 1980
25
t{{i( 11(t
Yfirvöldin héldu , að fíkniefna-
faraldurinn væri tískubylgja,
sem þau líktu við kvefpest, en
vöknuðu við, að hann var orðinn
þjóðarsjúkdómur
valinn falla, hefur hraðfjölgað
meö hverju misseri, og fyrirsjá-
anlegt er, að svo veröur á kom-
andi árum.
Það er margt, sem þessu
veldur. Yfirvöldin vita ekki,
hvaöa tökum þau eiga aö beita
til þess að sporna gegn þessari
óáran. Sifellt lenda yngri og
yngri börn I þessu foraöi, og ör-
lög þessara barna eru raunai
ráöin fyrirfram. Eitt slikrs
dæma er Pia, tæplega tólf ára
gömul telpa i józkum bæ. Hún ei
ekki i foreldrahúsum, heldui
hefur brugöið á það ráö i hinni
frjálslyndu Danmörku aö fara
aö búa meö „vini” sinum, sem
er henni nokkrum árum eldri.
Foreldrar hennar, skólayfirvöld
og félagsmáladeildir fórna
höndum ráðþrota. Hún hefur
reykt hass um skeið, og nú er
hún aö fikra sig áfram á vegi
eiturlyfjaneytandans. Hún er
farin aö prófa morfin meö sam-
býlismanninum. Þessi stúlka
fæddist um þaö bil, er eitur-
lyfjabylgjan reiö yfir Dan-
mörku af fullum þunga, og hún
verður fyrirsjáanlega eitt
númeriö i þeim skara eitur-
lyfjaneytenda, sem sökkva i
djúpið og farast á niunda ára-
tugnum. Þaöan i frá verður hún
ekki lengur óviðráöanlegt
vandamál, heldur tala á dánar-
skýrslum heilbrigðisyfirvalda.
Meðal þúsunda annarra.
Eitt af þvi, sem ýtir stórum
undir eiturlyfjaneyzlu ungs
fólks, er atvinnuleysið, sem þvi
er búið I Danmörku. Þvi er of-
aukið við nytsöm störf, en þaö
fær miklar atvinnuleysisbætur.
Þaö reikar um án markmiös, og
þaö hefur fjárráð, og i leiðind-
um sinum og gremju yfir til-
gangsleysi þess konar tilveru á
þaö ekki mörg skref inn i veröld
fikniefnanna.
Mikill fjöldi eiturlyfjaneyt-
enda hefur hlotið dóm fyrir-
ýmis konar afbrot, eiturlyfja-
sölu, þjófnað, skjalafals og
margháttaöa stórglæpi. Þeir
eru vistaöir i fangelsum, og
stefnan hefur veriö aö dreifa
þeim meöal fanga af ööru tagi,
trúlega i þeirri von, aö þeir
samlöguöust þá frekar öðru
Rithöfundurinn Ebbe Klövedal Reich tók sig til fyrir tlu árum og
reykti hass I aiira augsýn á þrepum menntamálaráöuneytisins
danska, grunlaus um annaö en hann væri aö vlsa þjóö sinni rétta
leiö. Seinna mæiti hann LSD bót I timaritsgreinum. Þegar þetta
geröist, var eituriyfjafaraldurinn I þann veg aö veröa aö
þjóöarsjúkdómi i Danmörku.
fólki en sinum likum. Reynslan
er aftur á móti sú, aö þeir eru
sýkilberar i fangelsunum. Fæst-
um, sem þar eru, finnst semþeir
eigi úr háum sööli að detta, og
fullir minnimáttarkenndar og
andþjóöfélagslegra yiöhorfa eru
þeir I sérstakri hættu.
En þyngst er kannski á
metunum, ab hér á djöfull til-
litslausrar gróöafiknar leikvöll
viö sitt hæfi. Ekki skortir
markaöinn, þaö má ráöa af
fjölda beinna eiturlyfjaneyt-
enda, og markaöurinn tryggir
hátt verb og mikinn gróöa. Þaö,
sem af er þessu ári, hefur
danska lögreglan lagt hald á tiu
kilógrömm af heróini, sem nægt
heföi I tvö hundruð þúsund.
sprautur, og er þaö nær fimmtiu
sinnum meira en náöist fyrir
fimm árum. Kannski veröur
ekki fullyrt, aö aukning á
heróin-smygli svari til þessarar
tölu, þar eð vera má, að lögregl-
an hafi veriö ötulli eöa heppnari
nú en hún var fyrir hálfum ára-
tug. En á hinn bóginn segir þaö
sig sjálft, aö þetta er ekki nema
hluti þess heróins, sem smyglaö
hefur veriö til Danmerkur á ár-
inu, auk allra annarra fikniefna,
margra tegunda, þvi aö hvorki
myndu eiturlyfjasalarnir hafa
sig i frammi, ef gróöalikurnar
væru ekki meiri en áhættan, né
fimmtán þúsund manns neyta
eiturlyfja aö staðaldri, auk
þeirra, sem skemmra eru
komnir á fikniefnabrautinni, ef
verulega væri þrengt aö fram-
boöinu.
1 þessari baráttu allri er þaö
cannski vonleysið um verulegan
sigur, sem skaðlegast er. Það
dregur mátt úr mönnum, slævir
þá og deyfir. 1 þeim sporum
veröur mörgum litið um öxl, og
þeim koma i hug þau orö, sem
einn af þingmönnum jafnaðar-
manna, forvigismaöur i réttar-
farsmálum, lét falla i haust:
— Okkur var einu sinni lögö
ábyrgö á herðar, en viö stóöum
ekki undir henni.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPtTALINN
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á hand-
lækningadeild til 1. árs frá 1. janúar
n.k. Umsóknir er greini menntun og
fyrri störf sendist Skrifstofu rik-
isspitalanna fyrir 19. desember n.k.
Upplýsingar veita yfirlæknar deildar-
innar i sima 29000.
Reykjavik, 23. nóvember 1980,
Skrifstofa rikisspitalanna
Eiriksgötu 5, simi 29000.
VARIST STEIN-
SKEMMDIR
OG LEKA
KLÆÐIÐ MEÐ BLIKKI. FRAMLEIÐUM
ALLAR GERÐIR BLIKKHLÍFA.
S)bUKKVÍR S)£S&veb
Skeljabrekka 4 - 200 Köpavogur - Sími: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Simi: 99-2040