Tíminn - 17.12.1980, Side 3
Miðvikudagur 17. desember 1980
3
Súrálsverð hækkar í hafi
að meðaltali um 5440%
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra telur skýringar Alusuisse á hækkunum ekki trúverðugar
AB — ..Aðstoðarforstjóri Alu-
suisse kom hingað til lands og
flutti okkur skýringar sínar
munnlega, án nokkurra skrif-
legra gagna. Við fyrstu sýn virð-
ast mér þessar skýringar ekki
trúverðugar”, sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra á
blaðamannafundi sem hann boð-
aði til i gær og kynnti þar niður-
stöður athugunar á verðlagningu
á siíráli til tslenska álfélagsins
hf., sem staðið hefur frá því i júni
sl.
Niðurstaða þessara athugana
ersií að innflutningsverð á siíráli
til Islands er miklu hærra en eðli-
legt má telja miðað við útflutn-
ingsverð frá Astralfu. Þegar bor-
in eru saman sambærileg verð,
fob-verð i báðum tilvikum, kemur
i ljós, að á timabilinu janúar 1974
til júni 1980 hefur súrálsverð
hækkað i hafi sem nemurað með-
altali um 54,1%, eða samtals 47,5
milljónum dollara á verðlagi
hvers árs. Það má geta þess til
samanburðar að heildargreiðslur
ISAL fyrir raforku voru 31,5 mill-
jónir dollara á sama timabili.
Súrál er einn megin kostnaðar-
liðurviðálbræðslu og hefur mikil
áhrif á arðsemi hennar. Þar sem
ISAL er undanþegið islenskum
skattalögum en greiðir fram-
leiðslugjald, sem er takmarkað
við 55% nettóhagnað bræðslunnar
og sem skal ekki vera lægra en
35% af nettóhagnaði, hefur verð-
lagning súráls bein áhrif á það
framleiðslugjald, sem fyrirtæk-
inu er skylt að greiða til islenska
rikisins. Hér gæti þvf verið um
milljarða tekjutap fyrir rikissjóð
að ræða.
A grundvelli upplýsinga þeirra
sem aflað var i athugun þessari
var hægt að bera saman fob-verð-
segir Ragnar Halldórsson forstjóri ISAL
um fréttatilkynningu iðnaðarráðuneytis
AB - ,,Þetta er greinilega pólitisk
árás á ÍSAL. Þessi meðaltals
hækkun sem kemur fram i þess-
ari skýrslu er á engan hátt grun-
samleg, þvi lagðar hafa verið
fram upplýsingar frá Alusuisse
sem sýndu fram á hvað gangverð
á súráli er á milli óskyldra fyrir-
tækja, og það var ekkert frá-
brugðið þvi sem við borgum.”
sagði Ragnar Halldórsson for-
stjóri ÍSAL i viðtali við Timann i
gærkveldi.
Ragnar sagði jafnframt að i
skýringunum frá Alusuisse hefði
komið fram hvernig á þessum
mismun stæði. Hann sagði að
hann væri tilkominn vegna samn-
inga við stjórnvöld i Ástraliu um
að byggja upp áliðnað i þvi landi.
Astralir væru ekki nema 14
milljóna þjóð, en væru þrátt fyrir
það orðnir stærstu súrálútflytj-
endur i heimi. Það hefði náttúr-
lega aldrei orðið nema vegna þess
að rikið þar samdi um ákveðna
fyrirgreiðslu við fyrirtækin sem
byggðu upp þennan iðnað. Það
væri þvi bæði með fullri vitneskiu
ástralskra yfirvalda og sam-
kvæmt samningum við þá, að
þetta útflutningsverð væri gefið
upp.
Ragnar sagði að þeim hjá
Alusuisse hefði ekki borist skjöl
iðnaðarráðuneytisins fyrr en sl.
fimmtudag og svara hefði verið
krafist fyrir hádegi á föstudag.
Þvi hefði maður frá fyrirtækinu
verið sendur hingað strax á föstu-
dag til þess að skýra mál fyrir-
tækisins, en hann hefði tafist um
einn sólarhring i Luxemburg
vegna þoku.
Aðspurður að þvi hvort sam-
staða væri i sjórn ÍSAL um þessa
túlkun Ragnars á málinu, svaraði
Ragnar þvi til að hann vissi það
ekki, þar sem enginn stjórnar-
fundur hefði verið haldinn um
mál þetta.
„Ég er þess fullviss að
Alusuisse hefur á undanförnum
árum ekki hlunnfarið islenska
rikið á nokkurn hátt, og að fyrir-
tækið hefur ekki haft i frammi
svik og pretti.” sagði Ragnar að
lokum.
Tómas Árnason, um fréttatilkynningu
iönaöarráöherra:
„Vil engan dóm
fella nú strax”
AB — „Það sem ég vil um málið
segja er einkum tvennt,” sagði
Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra, þegar blaðið sneri sér tii
hans og spurði hann álits á frétta-
tilkynningu iðnaðarráðherra.
„ 1 fyrsta lagi er það spurningin
um málsmeðferð, hvernig fara
skuli með svona mál, en þegar
þungar sakir eru á einhvern aðila
bornar. verður hann að fá tæki-
færi til þess að skýra sin mál.”
„1 öðru lagi”, sagði Tómas
Arnason, „tel ég að loks þá er
báðir aðilar hafa skýrt sin sjónar-
mið, sé kominn timi til að fella
dóm. Eg vil þvi engan dóm fella
um þetta enn, ég þekki það ekki
nægilega til þess en Alusuisse á
auðvitað að standa við sina samn-
ir.ga að fullu”.
mæti hvers einstaks súrálfarms
til Islands, eins og það er skráð i
útflutningshöfn i Astraliu við það
fob-verðmæti, sem tilgreint er i
islenskum aðflutningsskýrslum.
Mismunurinn á þessum tveimur
stærðum er verðhækkun farmsins
i hafi, hækkun sem ekki verður
skýrð með flutningskostnaði, þar
sem borin eru saman sams konar
verð og án flutningskostnaðar i
báðum tilvikum.
Niðurstöður þessa samanburð-
ar hafa verið bornar undir hið al-
þjóðlega endurskoðunarfyrir-
tæki, Coopers & Lybrand i Lond-
on, og hefur það staöfest gildi
þeirra heimilda, sem útreikning-
ar iðnaðarráðuneytisins byggja
á, og einnig að tölur þær sem not-
aðar eru, séu i samræmi viö
heimildi'rnar. Jafnframt staðfesti
endurskoðunarfvrirtækið reikn-
• * Framhald á bls. 19.
Frá opnun sýningarinnar á Kjarvalsstöðum i gær. Sigurður Harðarson, formaður Skipulagsnefndar, er
i ræðustól, og opnar sýninguna formlega. •
Sýning á Kjarvalsstöðum:
Ný tíllaga að skipu-
lagi Grjótaþorps
— tillögurnar sem ekki mátti sýna þar sýndar
í Ásmundarsal
Kás — t gær var opnuð á Kjar-
valsstöðum sýning á nýrri til-
lögu að skipulagi Grjótaþorps,
svo almenningur og hagsmuna-
aðilar geti kynnt sér hana.
Verður sýningin opin næsta
hálfan mánuðinn. Auk þess mun
Borgarskipulag Reykjavikur
gangast fyrir þvi, að haldnir
verði fræðslufundir ogerindi um
skipulagsmál á meðan á sýning-
unni stendur. Dagskrá fund-
anna verður kynnl siðar, en þó
er þegar vitað að Iljörleifur
Stefánsson, annar höfundur
skipulagstillögunnar, mun
flytja fyrirlestur um skipulags-
tillögur að Grjótaþorpi, og
Nanna Hermannsson, borgar-
minjavörður, mun flytja fyrir-
lestur um sögu húsanna i
Grjótaþorpinu.
Þegar Sigurður Harðarson,
formaður skipulagsnefndar,
opnaði sýninguna á Kjarvals-
stöðum formlega i gær, sagði
hann, að þetta væri fyrsta til-
lagan að skipulagi Grjótaþorps-
ins sem unnin hefði verið hér á
landi og fæli i sér vernd húsanna
þar. Sagði Sigurður, aö nú væri
kominn timi til að samþykkja
skipulag að Grjótaþorpinu
þessu mesta vandræðabarni i
skipulagssögu Reykjavikur-
borgar.
Upphaflega hafði Borgar-
skipulag Reykjavikur ákveðið
að sýna með nýju skipulagstil-
lögunni gamlar skipulagstillög-
ur að svæðinu, auk nýrra til-
lagna sem nemendur i arkitetur
hafa samið. Stjórn Kjarvals-
staða lagði hins vegar blátt
bann við þvi að aðrar tillögur en
sjálf skipulagstiliagan nýja yrði
sýnd á Kjarvalsstöðum.
lstað þess hefur verið ákveðið
að sýna tillögurnar, sem ekki
hlutu náð fyrir augum stjórnar
Kjarvalsstaða i Ásmundarsal,
og verður sú sýning opin á sama
tima og sýningin á Kjarvals-
stöðum.
VKKll MhwI* í^íí SMH ( AUSilUAÍ.íi
' 'i
Llkan af fyrirhuguðu skipulagi Grjótaþorpsins. Hjá þvf standa m.a. Þór Magnússon, þjóðminjavörður,
Þóra Kristjánsdóttir, listráðunautur á Kjarvalsstöðum, og Gestur Ólafsson, forstöðumaður Skipulags-
stofu höfuðborgarsvæðisins. Tfmamyndir: Róbert.