Fréttablaðið - 25.06.2007, Side 1
Mánudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
36%
77%
2%
Fæst á N1 í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Afþreyingarmiðstöð
í háloftunum
Heimsfrægð í kjall-
aranum hjá Jóa Fel
Ástin á Íslandi
dvínar ekki
Alnet hefur hannað forrit
sem þýðir heilu setningarnar,
greinarnar og jafnvel bækurnar
setningafræðilega rétt úr íslensku
yfir í ensku.
Að sögn
Matthíasar
Sigurðar
Magnússonar,
starfsmanns
Alnets, getur
forritið aðeins
þýtt úr íslensku í
ensku enn sem
komið er en ekki
öfugt.
Reiknað er
með að fyrsta útgáfa af þýðingar-
forritinu verði tilbúin á næsta ári
og verði þá aðgengileg á netinu.
Þýðir íslensku
yfir á ensku
„Ég tel það klárt að
atvinnugreinin þurfi að koma miklu
meira að bæði rannsóknum og
ákvörðunum um heildarafla. Ég
held að það fari best að þeir sem
eigi mestra hagsmuna að gæta komi
meira að rannsóknunum,“ segir
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna.
Guðrún Marteinsdóttir, prófessor
í fiskifræði við Háskóla Íslands,
sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær
að nauðsynlegt væri að gera þjóðar-
átak í hafrannsóknum. Til að standa
vel að slíkum rannsóknum þyrfti að
veita 70-100 milljónum króna á ári í
þorskrannsóknir og milljarði í haf-
rannsóknir.
Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður
sjávarútvegsnefndar Alþingis,
segir það athugandi að útgerðar-
menn komi með auknum hætti að
kostun hafrannsókna. „Það þarf að
auka fé í hafrannsóknir og líka þær
rannsóknir sem Hafrannsókna-
stofnun hefur verið að gera, bæði af
fjárlögum og með aðkomu útgerð-
armanna.“
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri Brims hf., segir það sjálfsagt
að útgerðin sé þátttakandi í rann-
sóknunum. „Það má þó ekki vera
þannig að útgerðin eigi bara að
borga og ekki koma nálægt neinu,
þá verður enginn árangur. En ef
atvinnulífið og vísindasamfélagið
geta unnið saman þá er það hið
besta mál,“ segir Guðmundur.
Eggert B. Guðmundsson, forstjóri
HB Granda, segir það spurningu
hverjir munu njóta góðs af þessari
auknu þekkingu til lengri tíma.
„Sumir hafa talað um að þegar þorsk-
stofninn fer að hjarna við aftur þá
fari sú aukning til einhverra annarra
en þeirra sem eru með kvótaheim-
ildirnar núna.“
Útgerðir komi meira
að hafrannsóknum
Útgerðarmenn vilja í auknum mæli koma að hafrannsóknum og ákvarðana-
tökum í sambandi við sjávarútveginn. Auknum greiðslum fylgi aukin ábyrgð.
Mikill meirihluti
Dana vill að ákvörðun um nýjan
sáttmála Evrópusambandsins
verði tekin með þjóðaratkvæða-
greiðslu. Sjötíu prósent Dana voru
á þessari skoðun, nítján prósent
töldu ekki þörf á atkvæðagreiðslu
og hlutlausir voru ellefu prósent.
Í viðtali við Berlingske Tidende
sagði Rune Lund í Einingarlistan-
um þessar niðurstöður ekki gefa
kost á öðru en að haldin yrði
þjóðaratkvæðagreiðsla um málið.
„Það er ekki einungis vegna kröfu
fólksins um atkvæðagreiðslu
heldur líka vegna þess að samn-
ingurinn felur í sér að Evrópusam-
bandið öðlast meira vald á meðan
völd sérhvers lands minnka.“
Meirihluti vill
greiða atkvæði
„Ég hef aldrei séð annað
eins,“ segir Eyþór Friðriksson,
gangavörður í gjaldskýli Hval-
fjarðarganganna, um bílalestina
sem silaðist í átt að borginni í gær-
kvöldi. Bílalestin var óslitin frá
Grundartanga til Reykjavíkur í á
þriðju klukkustund.
Grípa þurfti til þess ráðs að
hleypa umferðinni í gegnum göng-
in í hollum af öryggisástæðum, til
að fólk sæti ekki of lengi fast í
göngunum. „Þetta er mjög undar-
legt,“ segir Eyþór. „Þetta er í fyrsta
sinn í sumar sem við höfum þurft
að gera þetta. Við gerðum þetta
einu sinni í fyrra minnir mig.“
Byrjað var að loka með hléum
klukkan sex og var viðbúið að
ástandið myndi vara til klukkan
níu hið minnsta.
Eyþór segir tjaldvagna, fellihýsi
og aðra tengivagna eiga stóran þátt
í lestinni sem myndaðist. „Já, það
lengir lestina auðvitað mikið þegar
annar hver bíll er með aftanívagn.“
Verðirnir fylgdust með umferðinni
við hinn gangamunnann í gegnum
öryggismyndavél. „Þar var fólk
farið að leggja húsbýlunum úti í
kanti og setjast út að fá sér kaffi,“
segir Eyþór.
Einnig var þung umferð til borg-
arinnar um Suðurlandsveg. Að
sögn lögreglu gekk öll umferð að
mestu áfallalaust fyrir sig.
Aldrei séð aðra eins bílalest
Alþjóðaleikum ung-
menna lauk í gær með lokaathöfn
þar sem verndari leikanna,
fótboltamaðurinn Eiður Smári
Guðjohnsen, kom fram. Um er að
ræða fjölmennasta alþjóðlega
íþróttaviðburð sem haldinn hefur
verið á Íslandi.
Um tólf hundruð keppendur á
aldrinum 12-15 ára komu til
landsins og kepptu meðal annars í
frjálsum íþróttum, sundi,
knattspyrnu, badminton og golfi.
Markmið leikanna er að þróa
skilning og vináttu á milli barna
frá ólíkum löndum og kenna þeim
þá hugmyndafræði sem Ólympíu-
leikarnir byggjast á.
Alþjóðaleikum
lauk í gær