Fréttablaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 31
Britney Spears virðist vera eitt-
hvað ósátt við móður sína og
íhugar nú að sækja um nálgun-
arbann á hana. Britney heimsótti
víst lögfræðing sinn fyrr í vik-
unni til þess að spyrjast fyrir um
bannið en þá yrði Lynne, móður
Britneys, bannað að nálgast börn
dóttur sinnar.
Samkvæmt heimildarmönnum
var stjarnan víst afar reið móður
sinni fyrir að senda sig í með-
ferð vegna áfengisfíknar sinn-
ar og þunglyndis. Lynne stóð svo
víst með fyrrverandi eiginmanni
Britneys, Kevin Federline, þegar
parið átti í forræðisdeilum yfir
sonum þeirra, Sean Preston og
Jayden James. Lynne vill þó ekk-
ert kannast við þetta og segir
samband hennar við dóttur sína
vera mjög ástríkt. „Það er mjög
sorglegt að allur heimurinn þurfi
að fylgjast með henni þegar hún
gerir mistök sem við öll gerum
einhvern tíma á ævinni. Britney
er umhyggjusömust og ástríkust
af mínum börnum. Hún er bara
að átta sig á lífinu,“ sagði móðir
Britneys.
Ósátt við móður sína
Söngkonan Madonna er að eigin
sögn algjörlega háð vissum ísra-
elskum húðvörum. Madonna er
orðin 48 ára og lítur vissulega ekki
út fyrir það enda hugsar hún mjög
vel um líkamann. Henni þykir
þó húðin í andlitinu hafa orðið
útundan og var yfir sig ánægð
þegar Kabbalah-meistarinn henn-
ar, Karen Berg, sagði henni frá
ótrúlegum húðvörum sem halda
hrukkum og línum í burtu.
„Í húðvörurnar eru notuð nátt-
úruleg sölt og þörungar úr Dauða-
hafinu sem hefur víst mjög góð
áhrif á húðina. Madonna er svo
hrifin af vörunum að hún löðr-
ar þeim á sig morgna sem kvöld,“
sagði heimildarmaður. „Hún hefur
vel efni á að kaupa dýrari vörur en
tekur Laline-vörurnar fram yfir
annað.“
Háð ísraelskum húðvörum
Mick Hucknall, söngvari Simply
Red, hefur eignast dóttur með
kærustu sinni, Gabriellu Wes-
berry. Þetta er fyrsta barn Huck-
nall, sem er 47 ára. Hucknall og
Wesberry hittust fyrst snemma á
tíunda áratugnum en hættu saman
1995. Árið 2003 byrjuðu þau síðan
aftur saman. Hucknall hefur verið
kenndur við ýmsar konur í gegn-
um tíðina, þar á meðal Catherine
Zeta-Jones og Helenu Christen-
sen.
Simply Red kom fram á sjónar-
sviðið árið 1985 með smáskífulag-
inu Money´s Too Tight To Ment-
ion. Sveitin sló endanlega í gegn
með plötunni Stars árið 1991, sem
hefur selst í rúmum fjörutíu millj-
ónum eintaka. Síðasta plata sveit-
arinnar, Stay, kom út í mars síðast-
liðnum.
Eignaðist sitt
fyrsta barn
Fundaaðstaða
Smáréttahlaðborð
Konfektkökur
Smurt brauð