Fréttablaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 29
Hæfileikar Wainright sem laga-
höfundur eru einfaldlega einstak-
ir og eiga í raun engan sinn líka.
Laglínur hans er gæddar einstök-
um ljóma sem hefur ekki eingöngu
heillað almenning og gagnrýn-
endur heldur merka menn á borð
við Elton John, Leonard Cohen
og Morrisey. Við þetta allt saman
bætist hin sveimandi rödd Wa-
inwrights sem túlkar viðkvæma
texta hans á sannfærandi hátt.
Platan er sú fyrsta sem kemur
út frá Wainwright síðan 2004,
þegar seinni Want-platan kom út
en Want-plöturnar tvær eru þær
sem komu honum fyrst almenni-
lega á kortið. Á Release the Stars
fjallar Wainwright um persónuleg
viðfangsefni og er yfirleitt opin-
skár með eindæmum. Í hinu frá-
bæra Going to a Town fær Amer-
íka á smettið og í Sanssouci ræðir
Wainwright tímabundinn sjón-
missi vegna eiturlyfjaneyslu sinn-
ar. Magnað lag.
Fyrir utan fyrrnefnd lög má
kannski helst nefna Do I Disapp-
oint You, Between My Legs og
Slideshow sem aðra hápunkta plöt-
unnar. Platan sem heild rennur
afar meitluð í gegn og þrátt fyrir
oft íburðarmiklar útsetningar,
með strengjum, brassi og látum,
þá verður hún aldrei einum of.
Góðir gestir koma líka við sögu
á plötunni en þar ber helst að
nefna Neil Tennant úr Pet Shop
Boys. Tennant hafði yfirumsjón
með upptökum plötunnar sem
fóru fram í Berlín. Gaman hversu
margir tónlistarmenn eru heillað-
ir af því að taka upp tónlist sína í
Berlín sem er reyndar ekki skrýt-
ið. Svo verður auðvitað að gæta
þess að það komi fram að við-
komandi hafi verið í Berlín, Wa-
inwright sannar slíkt með laginu
Tiergarten. Umfram allt sann-
ar Wainwright samt á plötunni
hversu öflugur tónlistarmaður
hann er.
Stjarnan skín skært
Paris Hilton þreytist ekki á að
veita viðtöl úr fangelsinu og nú
er hún alveg sannfærð um að hún
sé orðin miklu betri manneskja
eftir alla þessa fangelsisdvöl. Am-
erican Idol-kappinn Ryan Seac-
rest spjallaði við Paris sem sagð-
ist vera miklu þakklátari núna.
„Ég er miklu þakklátari fyrir allt
sem ég fæ, hvort sem það er koddi
á kvöldin eða matur,“ sagði Paris
auðmjúk í viðtalinu sem stóð yfir
í um tíu mínútur. „Að miklu leyti
er ég mjög ánægð að hafa lent í
þessu því þetta hefur breytt lífi
mínu að eilífu.“
Paris Hilton þakklát
Lokað
í dag
ÚTSALAN
hefst á morgun
40%-70%
afsláttur