Fréttablaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 4
Bankarnir hafa hækkað verðtryggða vexti um tvö pró- sent frá áramótum. Samt hefur Seðlabankinn ekki hækkað stýri- vexti sína síðan í lok desember. Kristján Óskarsson hjá Glitni og Friðrik S. Halldórsson hjá Kaupþingi segja þessar hækkan- ir á verðtryggðum vöxtum vera afleiðing af stýrivaxtahækkun- um Seðlabankans. Hækkanir Seðlabankans taki lengri tíma að hafa áhrif á verðtryggða vexti en óverðtryggða. Óverðtryggðir vextir fylgja beint vöxtum Seðla- bankans sem eru einnig óverð- tryggðir. „Þegar verðbólga lækkar eins og hefur gerst núna er orðið óhagstætt að vera með verð- tryggð innlán. Því hækka þau svo að innistæðueigendur verði ekki óánægðir og fari eitthvert annað,“ segir Friðrik. Þá þurfi að hækka útlánsvextina til að halda jafnvægi. „Annars taka menn verðtryggð lán og setja þau inn á óverðtryggðar bækur,“ segir Friðrik. „Þetta eru mest stórir aðilar sem spá í þetta og leita að tækifærum til að hagn- ast. Við reynum með þessum vaxtahækkunum að halda aftur af spákaupmönnunum sem eru að spila á kerfið.“ Verðtryggðir vextir hækka Gordon Brown, fjár- málaráðherra Bretlands, tók í gær við sem leiðtogi breska Verka- mannaflokksins af Tony Blair á fundi flokksins í Manchester. Á miðvikudaginn tekur hann við embætti forsætisráðherra lands- ins af Blair. Brown lofaði umbótum heima fyrir og nýrri stefnu í utanríkis- málum, sem byggðist á umræðu frekar en hervaldi. „Utanríkisstefnan mun endur- spegla þann sannleika að til að ein- angra og sigra hryðjuverkamenn og öfgahópa þarf meira til en her- vald,“ sagði Brown í jómfrúar- ræðu sinni sem leiðtogi flokksins. „Þetta verður barátta hugmynda og hugsjóna sem verður háð á næstu árum og unnin af heilum hug hér heima og um allan heim.“ Óvinsældir Íraksstríðsins og þátttaka Breta í því hafa skaðað vinsældir Blair undanfarin ár. Brown viðurkenndi mistökin í stríðsrekstrinum og lofaði að lær- dómur yrði dreginn af þeim. „Íraksstríðið hefur valdið sundr- ung, bæði í flokknum og í land- inu,“ sagði Brown og bætti því við að friðarumleitanir í Mið-Austur- löndum yrðu sífellt meira aðkall- andi. Tony Blair kynnti Brown til leiks í kveðjuræðu sinni og sagði þennan vin sinn til 20 ára hafa alla burði til að verða úrvals forsætis- ráðherra. „Ég veit að hann mun gera sitt besta í þjónustu sinni við landið og ég veit af orðspori hans sem fjár- málaráðherra, að hans besta er eins gott og það gerist,“ sagði Blair. Brown lofaði á móti frammi- stöðu Blairs í ræðu sinni og hrós- aði honum sérstaklega fyrir að koma á friði á Norður-Írlandi, sem hann kallaði sögulegt afrek. Harriet Harman dómsmálaráð- herra vann í baráttunni við fimm aðra þingmenn um hver tæki við af John Prescott sem varaleiðtogi flokksins. Um 3,5 milljónir flokks- manna og félagsmanna verkalýðs- félaga kusu um varaleiðtoga. Hundruð mótmælenda söfnuð- ust saman nálægt fundinum og mótmæltu utanríkisstefnu Blair. „Við erum hérna til að kveðja hættulegasta og herskáasta for- sætisráðherra í samtímasögu Bretlands,“ sagði Andrew Murrey, formaður Stop The War-hreyfing- arinnar. Brown hefur sagst munu leyfa á ný mótmæli fyrir utan þinghúsið, en Blair bannaði það í forsætis- ráðherratíð sinni. Fyrsta þolraun nýs leiðtoga verða næstu þingkosningar, sem haldnar verða árið 2009 eða 2010. Nýr leiðtogi lofar umbótum Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, tók við sem leiðtogi Verkamannaflokksins af Tony Blair í gær. Brown lofaði nýrri utanríkisstefnu og umbótum heima fyrir. Harriet Harman var kjörin varaleiðtogi. „Stemningin er ansi góð, þeir eru náttúrlega að horfa yfir tíu ára valdaskeið flokksins,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra, sem staddur er á fundi breska Verkamannaflokksins. „Brown ætlar augljóslega að sigla flokknum aftur til sígildari gilda og kannski með meira afger- andi hætti en margir áttu von á,“ segir Björgvin. „Hann nýtur mik- ils trausts eftir tíu ára setu sína í fjármálaráðuneytinu sem hold- gervingur stöðugleika í efnahags- málum.“ Björgvin er staddur á fundinum ásamt vini sínum Hreini Hreins- syni. „Við vorum að vinna fyrir Verkamannaflokkinn í tvennum kosningum, 1997 og 2001, og höfum alltaf haldið miklum tengslum við flokkinn og fylgst vel með störfum hans.“ Björgvin segir að við miklu sé búist af stjórnartíð Brown. „Væntingarnar til formannsins koma strax fram í því að það er skoðanakönnun í Observer þar sem Verkamannaflokkurinn er kominn fimm prósentustigum yfir íhaldið. Það hefur ekki gerst í langan tíma, ekki síðan Íraks- hörmungarnar hófust og Cameron tók við Íhaldsflokknum,“ segir Björgvin. „Þetta eru gífurleg vonbrigði fyrir íhaldið og það glittir í að Verkamannaflokkurinn muni vinna sinn fjórða sigur í röð.“ Fíkniefni fundust í húsnæði í Grafarvogi á fimmtu- dagskvöld. Um var að ræða lítilræði af hvítu efni í neyslus- kömmtum, sem er talið vera amf- etamín eða kókaín. Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gerði húsleit á staðnum á grundvelli úrskurðar, þar sem leitin var heimiluð. Var farið inn í híbýlin um kvöldmatarleytið. Þar var fyrir einn maður, tæplega þrítugur, sem var tekinn í skýrslutöku eftir að efnin fundust. Niðurstöður greiningar voru ekki fyrirliggjandi við vinnslu fréttarinnar. Fíkniefni fund- ust í Grafarvogi Færð á hálendisveg- um hefur verið verri í ár en undanfarin ár. Ástæða þess að sögn Björns Svavarssonar hjá Vegagerðinni er sú að maí var kaldur. „Síðustu tvær vikur hafa hins vegar verið góðar og því er allt að komast í gott horf,“ segir Björn. Færð núna sé því að verða eins og í meðalári, þótt árið sé verra en allra síðustu ár. Búið er að opna um Kaldadal og Laka og allir hálendisvegir fyrir austan eru opnir. Fjallabaksleið syðri er enn lokuð sem og Sprengisandur. - Verri en hefur verið síðustu ár

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.