Fréttablaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 40
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alladaga
- Lifið heil
Þegar ég vann á vikublaði spurði ég eitt sinn kollega
minn hvort honum þætti eðlilegt
að þegar hann skrifaði um karla í
nýjum samböndum segði hann að
þeir væru „komnir með nýja upp
á arminn“ en þegar konur byrj-
uðu með nýjum manni fylgdi allt-
af sögunni að þær væru „lausgyrt-
ar“. Nei, ekki fannst honum þetta
normalt svona þegar honum var
bent á þetta og ég tók aldrei aftur
eftir lausgyrtum konum í skrifum
hans. Nú hef ég orðið vör við ann-
ars konar kvenfyrirlitningu í fjöl-
miðlum en það er þegar sagt er
að konur séu „frægar fyrir ekki
neitt“. Aldrei sé ég svona skrif-
að um karla. Í Spegli Tímans var
fyrsti ástmaður Karólínu af Món-
akó aldrei kallaður ónytjungur.
Nei, hann var glaumgosi.
síðasta málverndunarpistli hér
í Fbl. tekst Nirði P. Njarðvík, sem
ekki er vanur að fetta fingur út í
fréttamat blaðsins, að koma því
að að birst hefði málvilla í „óþarfa
frétt af ríkri stelpu í Bandaríkjun-
um“. Svona nennir hann að skrifa
um Paris Hilton sem jafnan er
talin í fararbroddi þeirra kvenna
sem eru „frægar fyrir ekki neitt“.
Einnig hefur Anna Nicole Smith
heitin verið nefnd í þessu sam-
hengi. Báðar eru eða voru þess-
ar fallegu konur erfingjar millj-
arða og báðar fengust þær m.a.
við kvikmyndaleik og fyrirsætu-
störf auk þess sem gerðir voru um
þær raunveruleikaþættir. Fras-
inn „frægar fyrir ekki neitt“ á því
ekki við um þær.
brá mér í brún þegar ég sá
fjallað á eftirfarandi hátt um Önnu
Nicole í því annars ágæta tímariti
19. júní: „Kona þessi hafði ekkert
unnið sér til frægðar annað en að
vera kynlífshjálpartæki fyrir karl-
menn og gert út á það allt sitt líf.“
Þessi fyrirlitning í garð konunnar
á hvergi við og síst í ársriti Kven-
réttindafélags Íslands. Og hvað er
líka átt við með „allt sitt líf“? Er
verið að ýja að því að Anna Ni-
cole hafi verið að glenna sig fram-
an í karlana sem gægðust ofan í
vögguna hennar?
Sólrún Gísladótt-
ir utanríkisráðherra hélt ræðu á
fundi Kvenréttindafélagsins 19.
júní og sagði þá nokkuð sem hér
á vel við: „Allt of margar konur
gangast inn á orðræðu karla, þeirra
skilgreiningu á því sem skiptir
máli, bíða eftir þeim molum sem
hrjóta af borði þeirra ef þær eru
bara nógu hlýðnar.“
því að gera lítið hver
úr annarri. Það verða hvort sem er
aðrir til þess. Nýtum síðan tímann
sem sparast við það til að styðja
hver aðra til dáða.
Ríkar stelpur
stuða