Fréttablaðið - 25.06.2007, Síða 40

Fréttablaðið - 25.06.2007, Síða 40
Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alladaga - Lifið heil Þegar ég vann á vikublaði spurði ég eitt sinn kollega minn hvort honum þætti eðlilegt að þegar hann skrifaði um karla í nýjum samböndum segði hann að þeir væru „komnir með nýja upp á arminn“ en þegar konur byrj- uðu með nýjum manni fylgdi allt- af sögunni að þær væru „lausgyrt- ar“. Nei, ekki fannst honum þetta normalt svona þegar honum var bent á þetta og ég tók aldrei aftur eftir lausgyrtum konum í skrifum hans. Nú hef ég orðið vör við ann- ars konar kvenfyrirlitningu í fjöl- miðlum en það er þegar sagt er að konur séu „frægar fyrir ekki neitt“. Aldrei sé ég svona skrif- að um karla. Í Spegli Tímans var fyrsti ástmaður Karólínu af Món- akó aldrei kallaður ónytjungur. Nei, hann var glaumgosi. síðasta málverndunarpistli hér í Fbl. tekst Nirði P. Njarðvík, sem ekki er vanur að fetta fingur út í fréttamat blaðsins, að koma því að að birst hefði málvilla í „óþarfa frétt af ríkri stelpu í Bandaríkjun- um“. Svona nennir hann að skrifa um Paris Hilton sem jafnan er talin í fararbroddi þeirra kvenna sem eru „frægar fyrir ekki neitt“. Einnig hefur Anna Nicole Smith heitin verið nefnd í þessu sam- hengi. Báðar eru eða voru þess- ar fallegu konur erfingjar millj- arða og báðar fengust þær m.a. við kvikmyndaleik og fyrirsætu- störf auk þess sem gerðir voru um þær raunveruleikaþættir. Fras- inn „frægar fyrir ekki neitt“ á því ekki við um þær. brá mér í brún þegar ég sá fjallað á eftirfarandi hátt um Önnu Nicole í því annars ágæta tímariti 19. júní: „Kona þessi hafði ekkert unnið sér til frægðar annað en að vera kynlífshjálpartæki fyrir karl- menn og gert út á það allt sitt líf.“ Þessi fyrirlitning í garð konunnar á hvergi við og síst í ársriti Kven- réttindafélags Íslands. Og hvað er líka átt við með „allt sitt líf“? Er verið að ýja að því að Anna Ni- cole hafi verið að glenna sig fram- an í karlana sem gægðust ofan í vögguna hennar? Sólrún Gísladótt- ir utanríkisráðherra hélt ræðu á fundi Kvenréttindafélagsins 19. júní og sagði þá nokkuð sem hér á vel við: „Allt of margar konur gangast inn á orðræðu karla, þeirra skilgreiningu á því sem skiptir máli, bíða eftir þeim molum sem hrjóta af borði þeirra ef þær eru bara nógu hlýðnar.“ því að gera lítið hver úr annarri. Það verða hvort sem er aðrir til þess. Nýtum síðan tímann sem sparast við það til að styðja hver aðra til dáða. Ríkar stelpur stuða

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.