Fréttablaðið - 25.06.2007, Side 6

Fréttablaðið - 25.06.2007, Side 6
 Samhæfðar aðgerð- ir ríkja við Norður-Atlantshafið gegn ólöglegum og óábyrgum fisk- veiðum á svæðinu hafa borið árangur. Þetta er niðurstaða fund- ar sjávarútvegsráðherra Norður- Atlantshafsins sem haldinn var á Grænlandi og lauk í gær. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráð- herra sat fundinn ásamt ráðherr- um eða fulltrúm þeirra fá, Græn- landi, Færeyjum, Kanada, Noregi og Rússlandi, auk fulltrúa Evrópu- sambandsins. Aðgerðir gegn ólöglegum og óábyrgum fiskveiðum var aðal- efni fundarins og lýstu ráðherr- arnir sérstakri ánægju með árang- ur þeirra. Í fréttatilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að til dæmis hafi ekki orðið vart við veiðar sjóræningjaskipa á Reykja- neshrygg það sem af er ári, en veiðar þeirra þar hafa verið við- varandi vandamál undanfarin ár. Áætlað er að þau hafi veitt í það minnsta 20 þúsund tonn af úthafs- karfa þar á síðasta ári. Aðgerðirnar sem gripið hefur verið til fela meðal annars í sér að banna skipum sem stundað hafa ólöglega veiðar að koma til hafnar aðildarríkjanna. Nokkur sjóræn- ingjaskip hafa verið rifin í brota- járn eða kyrrsett. „Það væri réttast að stinga úr þér hjartað“, er meðal hótana sem maður á þrítugsaldri búsettur á höfuðborgarsvæðinu hefur notað gegn ungum stúlkum í spjallforritum á netinu. Umræða um manninn kom upp á vefnum MinnSirkus.is fyrr á þessu ári. Vefstjóri síðunnar brást skjótt við og lokaði á aðgang mannsins að síðunni. Vefstjórinn fór síðan með gögn til lögreglunnar um hver maðurinn væri og upplýs- ingar um stúlkur sem maðurinn hafði áreitt. Fréttablaðið hefur undir hönd- um afrit af spjalli mannsins í gegn- um samskiptaforritið MSN-Mess- enger. Maðurinn, sem notar póstfangið waffensssoldier@hot- mail.com, er þar að ræða við nítján ára stúlku. Þegar hann komst að því að stúlkan ætti kærasta reidd- ist hann. Hafði í hótunum við stúlk- una og kvað hana skulda sér fyrir tímann sem hann eyddi í hana. Meðal annars spyr hann stúlkuna hvort henni hafi verið nauðgað. Hann þekki nauðgara sem virðist alltaf sleppa og ætli að láta hann fá upplýsingar um stúlkuna. Í kjölfar spjallsins fór stúlkan ásamt systrum sínum með tölv- una sína til lögreglunnar í Kópa- vogi og vildi leggja fram kæru. Stúlkan fékk þau svör að þetta væri líklega bara einhver ruglu- dallur sem væri heima að leika sér. Stúlkan var send heim án þess að af henni væri tekin skýrsla. Sigurbjörn Víðir Eggertsson aðstoðaryfirlögregluþjónn stað- festir að engin gögn séu skráð um komu stúlkunnar né vefstjóra MinnSirkuss. Fréttablaðið hefur haft uppi á yfir tug stúlkna, frá fimmtán ára gömlum, sem hafa átt í samskipt- um við manninn á síðustu þremur árum. Þær hafa allar sömu sögu að segja. Þetta sé skapheitur maður sem aðhyllist nasisma. Þegar stúlkurnar hafi ekki viljað hitta manninn eða tilkynnt honum að þær ættu kærasta hafi hann reiðst og hótað þeim ofbeldi, oft með óbeinum hótunum. Petrína Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjá Barnaheillum, segir að þessi mál séu erfið við- ureignar. „Það er mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um hvað börnin þeirra eru að aðhaf- ast í tölvunni. Til að lögreglan geti gert eitthvað er mikilvægt að halda gögnunum til haga. Það er algjört lykilatriði,“ segir Petr- ína. Hótar nauðgunum og barsmíðum Maður hefur komist upp með að áreita ungar stúlkur á netinu í yfir þrjú ár. Algjört lykilatriði að halda gögnum til haga þannig að lögreglan hafi eitthvað til að vinna með, segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. Ástæður endurkröfu eru langoftast ölvun þeirra sem veld- ur tjóninu. Þetta kemur fram hjá endurkröfunefnd sem starfar samkvæmt umferðarlögum og er skipuð af viðskiptaráðherra fyrir árið 2006. Vátryggingafélag sem greitt hefur bætur vegna tjóns af völd- um ökutækja eignast endurkröfu- rétt á hendur þeim sem tjóninu olli af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Helgi Jóhannesson hæstaréttar- lögmaður segir tölurnar fyrir árið 2006 svipaðar og fyrri ár. „Við erum þó að sjá heldur færri mál fyrir árið 2006 heldur en undan- farin ár.“ Helgi segir að annað- hvort sé um að ræða munatjón eða persónutjón og einstakar kröfur ekki vera áberandi hærri í krón- um talið fyrir árið 2006 heldur í takt við almennar verðlagshækk- anir. Hæsta endurkrafan nam þremur milljónum króna Ali Hassan al-Majid eða „Efnavopna-Ali“ eins og hann er kallaður hefur verið dæmdur til dauða af íröskum dómstóli fyrir stríðsglæpi. Tveir áratugir eru síðan Al-Majid gaf íraska hernum skipun um að nota efnavopn sem sögð eru hafa fellt hundrað og áttatíu þúsund manns á árunum 1980 til 1988 en á þeim árum geisaði stríð á milli Íraks og Írans. Tveir aðrir voru dæmdir til dauða en það voru þeir Hashim Ahmad al-Tai, fyrrverandi varnarmálaráðherra Íraks, og Hussein Rashid Mohammed, fyrrverandi aðstoðarmaður í Íraksher. - Var dæmdur til dauða Yfir tvö hundruð og þrjátíu manns höfðu fundist látnir eftir ofsaveður og miklar rigningar í Pakistan í gær. Stormurinn rústaði hús og felldi niður rafmagnslínur í borginni Karachi. Flestir hinna látnu létust í byggingum sem hrundu, vegna raflosts eða urðu fyrir trjám sem stormurinn hafði rifið með sér. Fjöldi fólks er slasaður og neyðarástandi hefur verið lýst yfir á spítölum borgarinnar. Monsoon-tímabilið er hafið í Pakistan og má búast við talsvert meiri rigningu á næstu dögum. Hundruð látnir í Pakistan Í tilefni af því að sextíu ár eru liðin frá strandi breska togarans Dhoon við Látrabjarg var haldin minningarathöfn við Geldingsskorardal á Látrabjargi á laugardaginn. Tólf manns af sextán manna áhöfn togarans var bjargað á frækilegan hátt og markar atburðurinn djúp spor í björgunarsögu landsins. Sýning um strandið er á safninu á Hnjóti þar sem sýndir eru munir og myndir sem tengjast björgunarafrekinu. Minningar- athöfn við Látrabjarg Óttast þú áhrif loftslagsbreytinga? Hefur þú áhyggjur af stöðu íslenska þorskstofnsins? Lögreglan á Selfossi handtók tvo unga menn á fimmtudag sem játuðu að hafa brotist inn í sumarbústaði í Grímsnesi. Lögreglu barst tilkynning um dularfullar mannaferðir við sumarbústað og þegar á staðinn var komið lögðu mennirnir tveir á flótta hlaupandi. Þeir náðust og þegar bifreið þeirra var skoðuð fannst þýfi. Þá fannst einnig þýfi úr öðrum bústað sem mennirnir viðurkenndu að hafa brotist inn í og dvalið í í tvær nætur. Að sögn lögreglunnar er talsvert um að brotist sé inn í sumarbústaði í sumarbústaða- hverfum. Játuðu innbrot í tvö sumarhús Tvær konur útskrif- uðust með kennsluréttindi á bifhjól nýlega og eru þær fyrstu hérlendis til að ná þessum áfanga. Námið fór að mestu fram í Danmörku þar sem aðstaða til slíkrar kennslu er með því besta sem þekkist. Námið er á vegum stofnunar Kennaraháskóla Íslands, Símenntun-Rannsóknir-Ráðgjöf, og tekur rúmlega viku. Alls luku 21 ökukennari námi. Það er von aðstandenda námsins sem og hinna nýútskrifuðu kennara að ný viðhorf og nýjar kennsluað- ferðir sem þeir kynntust í námi sínu erlendis komi til með að nýtast vel við bifhjólakennslu hérlendis. Tveir kvenkyns ökukennarar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.