Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.06.2007, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 25.06.2007, Qupperneq 28
„Hlöllabátar hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér,“ segir Gunnþór Ingólfsson, rekstrar- stjóri Hlöllabáta á Akureyri, en skyndibitastaðurinn var ný- lega opnaður fyrir norðan og er til húsa í gömlu Borgarsölunni í miðbænum. Gunnþór er ánægð- ur með staðsetninguna sem hann segir mjög góða. „Við erum hér á horninu á göngugötunni og Ráð- hústorginu og ætlum að hafa opið á daginn, á næturnar og um helgar,“ segir hann og bætir við að svona stað hafi vantað í veit- ingahúsaflóruna á Akureyri. „Ég held að þetta hafi verið einmitt það sem vantaði hingað og er mjög bjartsýnn á að þetta muni ganga vel.“ Gunnþór segist hafa leitast eftir að hafa staðinn sem líkastan Hlölla-bátum í Reykja- vík. „Ég fór suður og kynnti mér starfsemina þar. Hér verða veggborð og barstólar svo það verður hægt að tylla sér niður. Þetta verður alveg eins og fyrir sunnan og nú þurfa Akureyring- ar ekki lengur að keyra suður til að fá sér Hlöllabát.“ Hlöllabátar á Akureyri Breska stúlknasveit- in Spice Girls ætlar að tilkynna um framtíð- aráform sín á næstu dögum. Miklar vanga- veltur hafa verið uppi um að stúlkurnar ætli að koma saman á nýjan leik eftir margra ára hvíld. Kryddpíurnar hafa selt yfir þrjá- tíu milljónir platna og komist á toppinn víða um heim. Eftir gífur- legar vinsældir á tíunda áratugn- um ákváðu þær að einbeita sér að sólóferlum með afar misjöfnum ár- angri. Talið er að píunar ætli í tón- leikaferð um heiminn og að ný plata sé væntanleg úr þeirra herbúðum. Yfirlýsing á næstunni Sænski trúba- dorinn José Gonzalez gefur út sína aðra sólóplötu, In Our Nature, 25. septemb- er. Á plötunni verða tíu lög sem voru tekin upp á þremur vikum í heimaborg Gonzalez, Gautaborg. „Eiginlega öll lögin fjalla um mannlegt eðli, aðallega heimsku. Annaðhvort er ég að ásaka sjálfan mig eða mannkynið í heild sinni fyrir heimsku. Flest er þetta samt gert á frekar skondinn hátt.“ Fyrsta plata Gonzalez, Veneer, kom út fyrir tveimur árum og vakti á honum mikla athygli. Hélt hann meðal annars tónleika á Ice- land Airwaves-hátíðinni við góðar undirtektir. Lög um heimsku Langri bið Melanie Brown er loks á enda því nýlega var henni tilkynnt að pabbi hinnar þriggja mánaða gömlu Angel Iris væri gamanleikarinn Eddie Murphy. Breska götublaðið The Sun greinir frá þessu. Eddie Murphy hefur neit- að frá fyrsta degi að hann sé pabbi stelpunnar en dóm- ari í Los Angeles skikkaði Eddie í faðernispróf. Nið- urstöðurnar bár- ust fyrir helgi og er Mel B sögð vera í skýjun- um með að þetta skuli vera komið á hreint. Náinn vinur Kryddstúlk- unnar segir hana reyndar alltaf hafa vitað að Murp- hy væri faðirinn. „Og henni finnst ótrúlegt að það skuli hafa þurft DNA- próf til að sýna fram á það,“ hefur The Sun eftir vininum. „Hún er him- inlifandi yfir því að sannleikur- inn sé kominn í ljós og ætlar að einbeita sér að því að vera mamma.“ Mel og Eddie þóttu á sínum tíma nokk- uð undarlegt par og kom það fjölmiðl- um í opna skjöldu að þau skyldu stinga saman nefjum. Mel varð síðan ólétt eftir nokkurra vikna samband en Adam var ekki lengi í paradís. Eddie hætti með henni í hollenskum sjónvarpsþætti og krafðist þess að fram færi faðern- ispróf. Gamanleikarinn lýsti því síðan yfir að ef hann reyndist vera faðirinn myndi hann standa sína plikt. Angel Iris er sjöunda barn Eddie en annað barn Mel sem á stúlkuna Phoenix Chi með Jimmy Gulzar. Samkvæmt The Sun hefur söngkonan verið að hitta kvik- myndaframleiðandann Stephen Belafonte á milli þess sem hún undirbýr endurkomu Spice Girls á föstudaginn í þessari viku.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.