Fréttablaðið - 29.08.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 29.08.2007, Blaðsíða 1
Vilja afskráningu | Fáir sam- þykktu yfirtökutilboð Eyjamanna ehf. annars vegar og Stillu ehf. hins vegar í Vinnslustöðina. Eyja- menn ehf., sem fara með rúmlega fimmtíu prósent hlutafjár, ætla að fara fram á afskráningu félagsins. Innleysa hagnað | Magnús Jóns- son, forstjóri Atorku Group, reikn- ar með að á næstu sex til átján mánuðum muni félagið leysa út hagnað af tveimur til fjórum fjár- festingum af svipaðri stærðar- gráðu og Jarðboranir sem seldust á 17,7 milljarða. Kaupþing sektað | Aganefnd OMX-kauphallarinnar í Svíþjóð hefur sektað Kaupþing þar í landi um jafnvirði tæpra 1,9 milljóna ís- lenskra króna vegna brota eins miðlara á tilkynningaskyldu vegna viðskipta með hlutabréf. Nýr yfirhagfræðingur | Eyjólfur Guðmundsson hagfræðingur hefur verið ráðinn yfirhagfræðingur hagkerfis tölvuleiksins EVE On- line. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem maður er ráðinn til að vinna inni í sýndarveruleika leiksins. Til Danmerkur | Síminn hefur keypt danska fjarskiptafyrirtækið BusinessPhone Group sem er sér- hæft í fjarskiptaþjónustu við minni og meðalstór fyrirtæki. Heild- artekjur BusinessPhone í fyrra námu rúmum 550 milljónum ís- lenskra króna. Helmingi meira | Tíu stærstu fjármálafyrirtæki Norðurlanda skiluðu ríflega helmingi meiri hagnaði á fyrri hluta ársins eftir skatta en á sama tíma í fyrra. Í þessum hópi eru Kaupþing, Lands- bankinn og Glitnir. Grandi hagnast | HB Grandi var rekinn með ríflega 2,9 milljarða króna hagnaði á fyrsta árshelm- ingi. Það var mikill viðsnúningur frá fyrra ári þegar félagið tapaði tæpum 2,6 milljörðum króna. Lýðheilsufræði við HR Fyrstu meistararnir útskrifast 14 Krónubréf Fella ekki gengið ein og sér 12 Sögurnar... tölurnar... fólkið... F R É T T I R V I K U N N A R Einhliða evruvæðing Ekki úr myndinni 12-13 Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Landsbankinn hefur eignast tíu prósenta hlut í Oslo Børs Holding ASA, eignarhaldsfélagi Kauphallar- innar í Ósló. Markaðsvirði Oslo Børs Holding nam tæpum fjörutíu milljörðum króna í gærmorgun og er hlutur Landsbankans því metinn á um fjóra milljarða króna. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir að stjórnendum bankans hafi litist vel á kaup- höllina sem fjárfestingarkost, en kaupin fóru fram fyrr í sumar. „Okkur fannst þetta tiltölulega hag- stætt verð á þessum bréfum miðað við hvernig svona fyrirtæki hafa verið að ganga kaupum og sölum upp á síðkastið.“ Bankinn á 2,5 milljónir hluta sem gerir hann að næststærsta hluthaf- anum í félaginu á eftir DNB Nor sem heldur utan um 19,67 prósenta hlut. Kauphallarsamstæðan OMX, sem Kauphöll Íslands tilheyrir, er einnig með tíu prósenta hlut sem hún eignaðist í október í fyrra. Vöktu þau viðskipti töluverða at- hygli á sínum tíma, enda höfðu for- svarsmenn OMX lýst yfir áhuga sínum á að sameinast kauphöllinni í Ósló. Ætla má að tvennt vaki fyrir Landsbankanum með þessum kaupum: Annars vegar er líklegt að Kauphöllin í Ósló, sem er eina sjálfstæða kaup- höllin á Norðurlöndum, renni síðar inn í stærri heild. Hins vegar hefur rekstur eignarhaldsfélags- ins gengið vel og fjármunamyndun er sterk. Þetta hefur birst í ríflegum arðgreiðslum til hluthafa. Barist hefur verið um yfirráð yfir kauphöllum víðs vegar um heiminn, þar á meðal OMX eins og komið hefur fram. Sjónir manna hafa oftar en ekki beinst að norsku kauphöllinni og þar hefur nafn OMX komið upp. Forsvarsmenn Oslo Børs Holding hafa hins vegar hingað til viljað halda í sjálfstæði kauphallarinnar og benda á gríðarlegan vöxt í um- svifum félagsins á liðnum árum. Þannig er veltan í Ósló orðin meiri en í hinum norrænu kauphöllunum og hafa fyrirtæki í orku- og olíu- geiranum streymt þangað í stríðum straumum. Eignarhaldsfélagið skilaði hagn- aði fyrir skatta upp á 78,2 milljónir norskra króna á fyrri hluta ársins, jafnvirði 860 milljóna króna. Það var ríflega fjórtán prósenta aukn- ing á milli ára. Landsbankinn á 10% í Kauphöllinni í Ósló Gríðarlegur vöxtur síðustu sjálfstæðu kauphallarinnar á Norðurlöndum vekur athygli annarra kauphalla. Hagstæð verðlagning að mati stjórnenda Landsbankans. S T Æ R S T U H L U T H A F A R O S L O B Ø R S H O L D I N G 1. DNB Nor Bank 19,7% 2.-3. Landsbankinn 10,0% 2.-3. OMX 10,0% 4. KLP Forsikring 9,8% 5. Norsk Hydros Pensjonkasse 8,3% 6. Orkla 5,0% 7. Nordea 4,4% Alls 20 stærstu 92,0% Michael Ent- hoven, for- stjóri hins hollenska NIBC banka sem Kaup- þing yfirtók á dögunum, segir hús- næðiskrísuna í Bandaríkj- unum hafa reynst lán í óláni fyrir bankann. Áður en ljóst varð hver áhrif taps vegna annars flokks skulda- bréfakaupa í Bandaríkjun- um yrðu stóð til að skrá bankann á markað í Hollandi undir eigin nafni. „Yfir- taka Kaupþings er mun betri kostur,“ sagði Enthoven. NIBC tapaði um tólf milljörðum króna á fyrri árshelmingi vegna fjárfestinga í bandarískum hús- næðisskuldabréfum. Enthoven segir bankann hafa gert þau mis- tök að treysta matshæfisfyrir- tækjum í blindni „Við töldum okkur hafa keypt skuldabréf með AAA einkunn, en við vanræktum heimavinnuna okkar.“ - jsk Húsnæðis- bréfakrísan lán í óláni www.trackwell .com Flotaeftirlit – tækjanotkun og aksturslagsgreining FORÐASTÝRING G O TT F Ó LK Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingar- sjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me› starfsleyfi FME. Landsbankinn er vörslua›ili sjó›anna. Athygli fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingarsjó›ir hafa r‡mri fjár- festingarheimildir skv. lögunum heldur en ver›bréfasjó›ir. Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar muninn á ver›bréfasjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingar- heimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr útbo›sl‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans auk uppl‡singa á heimasí›u bankans, landsbanki.is. CAD 4,3%* DKK 5,4%*Örugg ávöxtun í fleirri mynt sem flér hentar EUR 4,4%* GBP 7,0%*ISK14,0%* Markmið Peningabréfa er að ná hærri ávöxtun en millibankamarkaður og gjaldeyrisreikningar. Enginn munur er á kaup- og sölugengi. Peningabréf Landsbankans USD 5,1%* * Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. júlí - 31. júlí 2007. Tjón af völdum veðurfars í Skand- inavíu kemur til með að tvöfaldast fyrir lok 21. aldar, samkvæmt því sem fram kemur á ráðstefnunni Nordic Risk & Insurance Sum- mit (NORIS) sem hófst í Stokk- hólmi í gær. Ráðstefnunni, sem er á vegum helstu norrænu vátrygg- ingarfélaganna, lýkur í dag. Swiss Re, stærsta endurtrygg- ingafélag heims og í fremstu röð áhættumatsfyrirtækja, varar við afleiðingum loftslagsbreytinga á Norðurlöndum til lengri tíma litið og segir vetrarstormana Anatol, Gudrun og Per aðeins vera fyrir- boða um illviðrasamari tíð í Skand- inavíu. Verra veður segir félagið svo að muni leiða til tvöföldunar á bótakröfum vegna tjóns af völdum veðurs fyrir lok þessarar aldar. Með þetta í huga ræða sérfræð- ingar fyrirtækisins á ráðstefnunni hvernig beita megi öðrum aðferð- um við áhættudreifingu en nú er gert, svo sem stóráfallaskuldabréf- um, til að takast á við efnahagsleg- ar afleiðingar loftslagsbreytinga. Haft er eftir Luca Albertini, fram- kvæmdastjóra fjármálastýringar og ráðgjafarþjónustu Swiss Re að markaður fyrir tryggingartengd skuldabréf muni að öllum líkind- um vaxa hratt á komandi árum. „Swiss Re áætlar að vetrar- stormar í Evrópu kosti nú trygg- ingafélögin árlega um 2,6 millj- arða evra [nærri 230 milljarða króna]. Ef gert er ráð fyrir ein- faldri línulegri aukningu hækkar þessi tala um á að giska 11 millj- ónir evra [tæpan milljarð króna] árlega. Miðað við áætlaðar árlegar tjónakröfur má því ætla að kostn- aður vegna tryggðra tjóna í Skand- inavíu hafi tvöfaldast fyrir næstu aldamót,“ segir í tilkynningu fé- lagsins. - óká Veðurtjón á eftir að tvöfaldast Swiss Re, stærsta endurtryggingafélag heims og í fremstu röð áhættumats- fyrirtækja, varar við afleiðingum loftslagsbreytinga á Norðurlöndum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.