Tíminn - 06.01.1981, Side 1

Tíminn - 06.01.1981, Side 1
^lðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Kjaradómur ákveður þing- mönnum 22,5% kauphækkun Dagpeningar lækka, en húsaleigugreiðslur og ferðagreiðslur flestra hækka AB — Föstudaginn 2. janúar var kveðinn upp dómur í Kjara- dómi varðandi þingfararkaup og kostnað alþingis manna. Niðurstaða dómsins var sú að alþingismenn skyldu fá launa- hækkun sem nemur 16.5% og þar að auki 6% sem BHM hafði verið dæmt. Dómurinn er aftur- virkur og nær hann aftur til 1. mai 1980. Þingfararkaup dæmdist 850.000 gamlar krónur 1. mai 1980, og hækkar svo i þremur á- föngum fram til 1. janúar 1981 og er þá 12.000 nýjar krónur. Húsnæðiskostnaður hækkar á sama tima úr 150.000 gömlum krónum i 1.700 nýjar krónur. Dvalarkostnaður hækkar á sama timabili úr 3.600 gömlum krónum á dag i 50 nýjar krónur á dag. Ferðakostnaður i kjör- dæmum var frá 1. mai til 31. desember 1980 svo: Þingmenn Reykjavikurkjördæmis 435.000 gamlar krónur, þingmenn Reykjaneskjördæmis 825.000 gamlar krónur og þingmenn annarra kjördæma 1.440.000 gamlar krónur. Frá 1. janúar til 30. september 1981 verður hann hins vegar i formi mánaöar- greiðslna og fá þingmenn Reykjavikur þá 655 nýjar krón- ur á mánuði, þingmenn Reykja- ness fá 1.230 nýjar krónur á mánuði og þingmenn annarra kjördæma fá 1.167 nýjar krónur á mánuði. Þar sem þessi dómur fellur aðeins örfáum dögum eítir að Kjaradómur dæmir i máli BHM snéri blaðamaður Timans sér til Valdimars K. Jónssonar for- manns BHM og spurði hann hvaða augum hann liti á þennan dóm. „Mér þykir þú segja fréttirn- ar. Það verður ekki annaö sagt en að þeir séu góðir við sig og sina þessir menn,” sagði Valdi- mar. ,,Ég verð aö segja það alveg eins og er að ég er orðlaus yfir þessum fréttum. Þessi mis- munun fyrir mismunandi þegna þjóðfélagsins er komin út i hreinar öfgar. Að þessi dómur skuli vera kveðinn upp örfáum dögum eftir að dómur fellur i okkar máli finnst mér vægast sagt furðulegt. Ég átti alls ekki von á að dómurinn yrði a þessa lund. Viö fórum fram á 12% hækkun, þvi okkur sýndist að meöalhækkun hjá ASÍ hefði verið i kring um 12%. Þvi finnst manni íurðulegt að Kjaradómur skuli ekki hafa tekið meira tillit til þessara hækkana sem veriö hafa aö undanförnu á almennum vinnu- markaði, þegar hann dæmdi i okkar máli. Það er i lögum um starfsreglur Kjaradóms að hann eigi að taka viðmiðun af hækkunum á hinum almenna vinnumarkaði, en slika viðmið- un höfum við einungis fengið að hálfu leyti. Þvi erum við aö sjálfsögðu hundóánægðir meö það að á sama tima og gengið er á rétt okkar þá eru þingmenn að fá kauphækkanir á bilinu 20 til 25%. Þetta þýðir það að þing- menn fá þrisvar til fjórum sinn- um meiri hækkun en viö að maður tali nú ekki um aítur- virknina til 1. mai i fyrra. Þessi afturvirkni gerir það að verkum að þingmennirnir eiga inni svona rúma milljón i bak- reikningum. Maður getur ekki annað en sagt, verði þeim að góðu eigin jólagjöf! Á meðan að allir aðrir eru hvattir til þess að herða sultarólina, getur Kjara- dómur verið þekktur fyrir að á- kveða þessa mismunun. Það kalla ég afskaplega hæpin vinnubrögð." Dagblaðið Visir hefur veriö mikið i féttum eftir að öðrum rit- stjóra þess Ólafi Ragnarssyni var sagt upp störfum þar fyrir stuttu*. Ritstjórn blaðsins mun ekki hafa verið hrifin af þeirri á- kvörðun og á fundi hennar á sunnudag skrifuðu allir félagar blaðamannafélagsins 26 að tölu undir skeyti til Ólafs þar sem segir: „Starfsfólk ritstjórnar Visis sendir þér bestu þakkir fyrir sér- staklega gott samstarf. Jafn- framt þykir okkur miður með hvaða hætti þessu samstarfi lauk. Við óskum þér alls hins besta i framtiðinni.” Annað atriði sem mælst hefur illa fyrir á Visi er að öllum sér- samningum blaðamanna við blaðið hefur verið sagt lausum en gömlum og reyndum fréttamönn- um finnst það jafngilda þvi að þeirra starfi hafi verið sagt lausu er þeir samningar renna út. Það er þvi spurning hvort fleiri menn fylgja Olafi af ritstjórn- blaðsins. Ofan á allt þetta bætist það siðan við að boðað hefur verið verkfall á ritstjórn blaðsins frá og með morgundeginum vegna van- goldinna lifey rissjóðsgreiðslna. Sjá nánar bls 8. BHM fékk sex prósent S.já baksíðu Sjö fleira í bíln- um á leiöarenda Tikin Dodda, sem er átta mánaða gömul og'prýði i flokki rakka á Grundarfirði varð létt- ari s.l. aðfangadagskvöld, þeg- ar hún var á leið til Húsavikur i jólafri, ásamt húsbændum sin- um. Húsbændurnir, Þórður Bogason, vélstjóri og Hildur kona hans, voru komin austur fyrir Akureyri, þegar þessi gleðilegi atburður varð og var þvi sjö einstaklingum fléira i „Blazernum,” þegar i áfanga- stað var komið, en þegar var upp lagt. (Ljósmynd Aric Licberman). Steingrímur Hermannsson: „Gripa þarf til síðar á árinu” Þaö er skoðun okkar framsóknarmanna, aö þessar aðgerðir — þótt þær séu mjög góðra gjalda verðar og boði að minu mati gott — duga ekki til þess að koma verðbólgunni niður i 40% á árinu." „Þótt allt gangi svo vel sem frekast er unnt, þarf samt að gripa til einhverra viðbótarráð- stafana siðar á árinu. Það tel ég að eigi aó vera frekari niður- talningarskref með kaupmáttaruppbótum fyrir þá lægst laun- uðu". Sjá bls. 2

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.