Tíminn - 06.01.1981, Blaðsíða 8
8
Þriðjudagur 6. janúar 1981
Ölafur Ragnarsson fyrrverandi ritstjóri Vísis:
„Lít ekki á þetta sem
persónulegan ágreining”
FRI — Mér finnst sjálf-
sagt að minna menn á
að það er ekkert nýtt
hér á landi að það komi
upp ágreiningur á milli
ritstjórnar og eigenda
dagblaða og timarita.
Dæmi um þetta þekkja
menn eflaust, m.a. frá
Visi, en varðandi það
sem nú hefur gerst og
snýr að mér þvi vil ég
segja að ég hef
auðvitað lagt áherslu á
gott samstarf við alla
aðila þau 5 ár sem ég
hef unnið á Visi, sagði
Ólafur Ragnarsson
fyrrverandi ritstjóri
Visis i samtali við
Timann en honum var
sem kunnugt sagt upp
á Visi fyrir helgina.
— Aftur á móti hef ég staðið
fast á afstöðu minni og rétti rit-
stjórnar gagnvart fram-
kvæmdastjórninni og eigendum
blaðsins eftir þvi sem mér hefur
þótt þörf á. Þvi er ekki að neita
að það hafa orðið árekstrar án
þess að ég fari út i það nánar.
— Megin atriði málsins eru að
viðhorf min sem ritstjóra hafa
ekki farið saman við viðhorf
eigenda blaðsins og það hefur
leitt til þess að þeir hafa sagt
mér upp störfum. Hörður
Einarsson tilkynnti mér að
stjórn Reykjaprents hefði
ákveðið að segja mér upp störf-
um, en á föstudag er gengið var
frá þvi i hvaða formi minn við-
skilnaður ætti að vera þá lýsti
Hörður þeirri grundvallarskoð-
un sinni að þegar yfirmönnum
Ólafur Ragnarsson
fyrirtækja er sagt upp störfum
þá ættu þeir að hætta strax.
Þessu var ég sammála og það
varð að samkomulagi að ég
hætti þann sama dag.
— Aðspurður um þau orð
Harðar að ástæður uppsagnar-
innar væru persónulegur
ágreiningur en ekki málefna-
legur sagði Ólafur:
— Það geta margir þeirra
sem enn eru á Visi vitnað um
það hvernig þessi ágreiningur
hafi orðið en ég lit ekki á hann
sem persónulegt mál af minni
hálfu!
— Ég hef annan skilning á
ástæðum árekstranna og upp-
sagnarinnar heldur en Hörður
og lit alls ekki á þetta sem per-
sónulegt heldur hef ég staðið á
minum grundvallarsjónarmið-
um sem ritstjóri.
Hörður Einarsson
stjórnarformaður Reykjaprents:
„Um persónulegan
ágreining að ræða”
FRI — Ég sé ekki ástæðu til að
ræða þetta mál frekar nema
það sem koinið hefur fram um
það að Óiafi Ragnarssyni hafi
verið gert að hætta strax en það
er alrangt, þvi hann mátti ráða
þvi sjálfur hvort hann hætti
strax eða innan 3 mánaða og
honum var lofað fullu samráði
um hvernig þvi yrði hagað,
sagði Ilörður Einarsson
stjórnarformaður Reykjaprents
i samtali við Timann er blaðið
spurðist fyrir um uppsögn ólafs
Itagnarssonar ritstjóra á Visi.
— Hann kaus siðan að hafa
þennan háttinn á, aö hætta
strax, og ekkert er við þvi að
gera.
Ennfremur sagði Hörður i
samtalinu að sú ástæða sem
fram hefði komið sem skýring á
uppsögninni að eitthvað hefði
verið reynt að ganga. á sjálf-
stæði ritstjórnarinnar, væri
röng.
— Það hefur aldrei verið reynt
hér á þessu blaði að ganga á
sjálfstæði ritstjórnarinnar
heldur er hér eingöngu um per-
llörður Einarsson
sónulegan ágreining að ræða
en ekki málefnalegan, sagði
Hörður.
Rltstjórn Vísis:
HARMAR IlPPSfiGN
RITSTJÓRANS
FRI — Starfsfólk rit-
stjórnar Visis hélt fund á
sunnudag vegna hinnar
skyndilegu uppsagnar
ólafs Ragnarssonar rit-
stjóra. Á fundinum var
samþykkt að senda Ólafi
Ragnarssyni eftirfarandi
skeyti:
//Starfsfólk ritstjórnar
Vísis sendir þér bestu
þakkir fyrir sérstaklega
gott samstarf. Jafnframt
þykir okkur miður með
hvaða hætti þessu sam-
starfi lauk. Við óskum
þéralls hins besta i fram-
tíðinni."
Undir þetta bréf skrif-
uðu allir félagar Blaða-
mannafélagsins á rit-
stjórn Visis 26 manns.
Séra llreinn lljartarson, sókuarprestur iFella- og Hólasókn afhend-
ir þeim («ylfa Guðjónssyni (fyrir miðju á myndinni) og Ingimundi
Sveinssyni (lengst til vinstri) verðlaunin fyrir bestu tillöguna. Fékk
livor þeirra 1.5 millj. kr.
& 1 JL1 / Arkitektarnir Gyifi Guöjónsson
IfSQfllOI S og In^imitndur Sveinsson hlutu
JICImUIiII / meömæli dómnefndar
Kás — A laugardag var
lýst úrslitum í samkeppni
um teikningu nýrrar kirkju
i Fella- og Hólasókn i
Breiðholti/ sem safnaðar-
nefndin stóð fyrir. Hér var
um lokaða samkeppni milli
arkitekta að ræða, og varð
dómnefndin sammála um
að veita tillögu arkitekt-
anna Gylfa Guðjónssonar
og Ingimundar Sveinsson-
ar meðmæli sin.
Þykir dómhefndinni að þeim
félögum hafi tekist mjög vel að
tengja saman kirkjuskip,
safnaðarheimili og annað hús-
næöi, er þykir tilheyra safnaðar-
starfi I dag. Auk þess sem bygg-
ingin falli vel aö landslagi og að-
liggjandi byggð og tengsl viö úti-
vistarsvæði séu mjög góð.
Dómnefndin varð sammála um
að árangur keppninnar hefði ver-
ið mjög góöur og þvi erfitt að gera
upp á milli áhugaveröra en ólikra
tillagna. Þeir sem tóku þátt i
samkeppninni auk Gylfa og Ingi-
mundar voru: Hilmar Ólafsson
og Hrafnkell Thorlacius, og Þor-
valdur S. Þorvaldsson og Mann-
freð Vilhjálmsson.
Dómnefndina skipuðu séra
Hreinn Hjartarson, formaöur,
Jón Hannesson, byggingarmeist-
ari og óli Jóhann Ásmundsson af
hálfu sóknarnefndarinnar, en
Arkitektafélagið tilnefndi tvo
dómnefndarmenn, þau Albinu
Thordarson og Þórarin Þórarins-
son, arkitekta.