Tíminn - 01.04.1981, Blaðsíða 11

Tíminn - 01.04.1981, Blaðsíða 11
Miövikudagur l. aprfl, 1981 15 ÍÞRÓTTIR Atli Hilmarsson kom I gær heim frá Þýskalandi meö uppkast aö samn- ingi sem hann mun ganga að. Timamynd Róbert „Fram er í 1. deild og þá get ég farið” — segir Atli Hilmarsson landsliðsmaður úr Fram, sem leika mun með 2. deildar félaginu Hameln í V-Þýskalandi næsta ár Atli Hilmarsson landsliösmaö- ur i handknattleik úr Fram kom i gær heim eftir aö hafa kannað að- stæður hjá v-þýska félaginu Hameln. En það félag bauð Atla að koma út til viðræöna með atvinnu- mannasamning i huga. „Hameln er i 2. deild i v-þýska handknattleiknum, þeir eru rétt fyrir neðan miðja deild og eiga eftir að leika þrjá leiki á þessu keppnistlmabili, og mega þeir tapa þeim öllum en sleppa samt* frá falli”, sagði Atli i samtali við Timann i gær. „Nei ég skrifaði ekki undir neinn samning við félagið úti” en ég kom meö uppkast af samningi sem ég mun kanna nánar og verð ég að vera búinn að gefa þeim ákveðið svar fyrir mailok hvort ég taki samningnum. Mér list mjög vel á þetta upp- kast og held ég geti fullyrt þaö að ég slái til og fari til Hameln, en samt vildi ég fá umhugsunarfrest sem þeir að sjálfsögðu féllust á. Fram veröur áfram i 1. deild og þá er mér ekkert að vanbúnaði að fara utan” sagði Atli ennfremur. Atli sagöi einnig að i fyrra heföi verið ráðinn nýr þjálfari til félagsins og heitir hann Fritz Spannung, en Spannung þessi þjálfaði einmitt Dankersen áriö 1977 er Axel Axelsson lék með Dankersen. Hameln er að byggja upp nýtt lið og hafa þeir fengiö til liðs við sig Júgóslava sem þykir mjög góður og auk Atla eru þeir á höttunum eftir fleiri leikmönnum. Atli sagði einnig að mjög illa liti út fyrir Dankersen þeir ættu tvo erfiða leiki fyrir höndum á móti Kiel og Göppingen og allt benti til ' þess að þeir myndu falla i 2. deild. Axel Axelsson mun leika þessa Það verða Framarar sem mæta Val i 8-liða úrslitum bikarkeppn- innar i handknattleik. i gærkvöldi sigruðu þeir Breiðablik 28-23 eft- ir að staðan hafði verið 13-12 fyrir Fram i hálf- leik. Eins og sést á þessum tölum var hvorki varnarleikur né mark- varsla i leiknum upp á marga fiska. leiki með Dankersen en hann hélt sem kunnugt er utan strax eftir B- keppnina I Frakklandi. Það bendir þvl allt til þess aö þessir fyrrum félagar hjá Fram, Axel og Atli muni etja kappi hvor viö annan I 2. deildinni næsta keppnistimabil. röp—. Það var aöeins i fyrri hálfieik, sem 2. deildar liö Breiöabliks hélt i viö Fram, reyndar var staðan jöfn 14-14 er 5 minútur voru liðnar af siöari hálfleik. Þá tóku Blikarnir til þess ráðs að taka Atla Hilmarsson úr um- ferö, en hann var einna atkvæða- mesti maðurinn i liöi Fram, en þrátt fyrir þaö sigu Framarar framúr og sigruðu eins og áður sagði. Með þessum leik lauk 16 liða út- slitunum og i 8-liöa úrslitum leika þvi fram og Valur, Vikingur og Fylkir, KR og HK og Þróttur og Afturelding. röp—. Fram áfram í bikarnum — sigraöi Breiöablik 28-23 í 16-liöa úrslitum í gærkvöldi „Verðum að sigra Skotana tii að eiga möguleika á sigri I riðlinum” — segir Einar Bollason landsliðsþjálfari í körfuknattleik íslenska landsliðiö heldur utan á föstudag til þátttöku i Evrópukeppninni „Þessir leikir gegn Finnunum fóru langt fram úr minum von- um hvað árangur snertir”, sagði Einar Bollason landsliðs- þjálfari i körfuknattleik er Tim- inn ræddi við hann i gær. „Það tekur tima að átta sig á þvi að lið á undirbúningstíma- bili skuli ná svo góðum árangri, ekki bara að vinna Norður- landameistarann i fyrsta sinn, — heldur að þeir hafa sýnt það i öllum þessum leikjum að sigur- inn gegn Finnum var engin til- viljun. Nú er þetta nákvæmlega sama lið hjá Finnunum og þeir tefldu fram á Polar cup i Noregi á siðasta ári er þeir urðu Norðurlandameistarar. Og þetta finnska lið sigraði bæði Israel og Ungverjaland s.l. vor i undankeppni Olympiu- leikanna og þær þjóðir eru tald- ar með þeim bestu i heiminum i dag”. Þessi góða frammistaða landsliðsins gegn Finnum, hvaö sýnir hún okkur um gang undir- búningsins, erum viö ef til vill á toppnum núna? „Nei það held ég ekki, það eru góð merki um það i seinni hálf- leiknum að menn eru þungir á sér ennþá. En það er kominn mikill kraftur i leikmennina en að vísu situr i þeim nokkur þreyta eftir leikina, það var keyrt upp af mikilli hörku fyrir þessa leiki og ekkert gefið eftir”. Nú eru körfuknattleiksleik- mennirnir að fara út i svipaða keppni og islenska landsliðið i handknattleik fór i I Frakklandi i siðasta mánuði. — Þá sýndi landsliðið mjög góöan árangur fyrir keppnina vann t.d. A-Þjóö- verja, heldur þú að islenska landsliðið i körfuknattleik falli i sömu gryfju? „Úrslitin á móti Finnunum sýna okkur það að undirbúning- urinn er á réttri leið, liðiö er á uppleið en hvað snertir úrslitin i leikjunum gegn Finnum.gerum við okkur grein fyrir þvi að við erum ekki Evrópumeistarar. Þó að við sigrum Finna einu sinni þá er mjög mikill munur á þvi að sigra hér i vináttuleikjum eða standa sig i erfiðu móti og þessu hafa handknattleiksmenn oft fegnið að brenna sig illilega á. Það er alveg ábyggilegt að bæði ég og minir strákar látum okkur ekki detta það i hug að við séum búnir að sigra heiminn. Aftur á móti gefa úrslitin i leikjunum gegn Finnum og eins á móti Frökkum um áramótin byr undir báða vængi, þeir lyfta okkur mikið upp móralskt”. Hvernig hagiö þið undir- búningnum það sem eftir er fram að Evrópukeppninni? „Það eru allir leikmennirnir komnir i fri frá vinnu og við æf- um tvisvar á dag, en á föstudag- inn verður haldið til Skotlands. 1 Skotlandi leikum við þrjá landsleiki á þremur dögum, við Englendinga Noreg og Wales, við eigum að geta unnið Wales. Norðmennirnir eru i mikilli framför, við unnum þá siðast Einar Bollason landsliðsþjálf- ari. með yfir 20 stiga mun og ég trúi ekki öðru en að við ættum aö geta unnið þá. Æfingabúðir í Belgiu Englendingarnir eru orðnir gifurlega sterkir. Þeir eru i hin- um riðlinum i Evrópukeppninni, þeir unnu meðal annars Finna s.l. vor i undankeppni Olympiu- leikanna. Eftir þessa leiki verður haldið til Belgiu og leikið þar á miö- vikudaginn við Belga, og jafn- framt verður æft alla dagana. Það verður að taka það með i reikninginn að allir þessir leikir eru æfingaleikir fyrir sjálfa aðalkeppnina og margt verður reynt i þessum leikjum. 1 Brussel i Belgiu erum við búnir að fá mjög góða æfinga- aðstöðu i stórri iþróttahöll og þar æfum við tvisvar á dag auk þess að leika við Belga einn landsleik. Föstudaginn 10. april verður siöan haldið til Sviss og fyrsti leikurinn okkar verður gegn Skotum 12. april. Niðurröðuninni i riðlinum var breytt þannig að við fáum Skot- ana fyrst og það er að mörgu leyti betra fyrir okkur. Langsterkasti lands- liðshópurinn Við setjum mjög stift mark á þennan leik gegn Skotum, það er leikur sem við verðum að vinna til þess að eiga möguleika á riðlinum, en Skotar og Sviss- lendingar sem leika á heima- velli eru talin sterkustu liðin i riðlinum. Er þetta sterkasti landsliðs- hópurinn i körfuknattleik sem island hefur teflt fram hingaö til? „Ég held aö það sé enginn vafi á því, við erum allir sam- mála þvi sem höfum staðið i þessu að þessi landsliðshópur sé sá lang sterkasti sem island hefur teflt fram. Finnski landsliðsþjálfarinn sagði i lokahófi sem haldið var eftir leikina við Finna, að það væri ósanngirni að vera að bera þennan landsliðshóp saman við fyrri landsliðshópa. Hann sagði að framfarirnar væru alveg gifurlegar og þetta væri gjörbreytt landslið, og tók þá sérstaklega fram varnar- Íeikinn hvað hann hefði breyst mikið til batnaðar. Ég legg mjög mikið upp úr varnarleiknum og ég hef eytt 75-80% af æfingunum i það að bæta varnarleikinn. Það er hægt að byggja áferðarfallegra lið með skemmtilegum sóknarlot- um og góðum körfum, en ég held að með þvi að bæta varnar- leikinn sé það vænlegra til á- rangurs. Það er búið að leggja mikla vinnu i þennan undirbúning þetta hefur verið sex vikna pró- gram og hópurinn er alveg sér- stakur. Það hefur verið farið i Munaðarnes og þar var tekið sálfræðitest af mannskapnum. Ég er hóflega bjartsýnn á .á- rangur i C-keppninni i Sviss, og éggeri mér fulla grein fyrir þvi að við vinnum ekki þá keppni út á það að hafa unnið Finna hér heima. Það hefði verið gott fyrir liðið að komast i „tourneringu” i vetur, en árangur liðsins i vetur gefur manni byr undir báða vængi, en það verður timinn að leiða i ljós hver árangurinn verður”. röp-.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.