Fréttablaðið - 01.11.2007, Side 50
Enn einu sinni sýna hinir ungu lista-
menn Stúdentaleikhússins að þetta
er eitt skemmtilegasta leikhús
landsins. Leikhús þar sem ekki er
verið að hika við að segja það sem
þarf að segja, gera það sem þarf að
gera og varpa ljósi á dellur nútím-
ans. Hlín Agnarsdóttir mætir nú til
leiks með leikrit sem hún átti oní
skúffu og hefur dustað rykið af og
með aðstoð mjög hressilegra ung-
menna hefur henni tekist að búa til
sýningu sem ekki aðeins skemmtir
og skelfir heldur hefur einnig eitt-
hvað að segja án þess að velta sér
bara upp úr fordómum og klisjum.
Hópur fólks lifir vinnulífinu sínu
á fundum. Tilgangslausum fundum
sem ekkert kemur út úr. Líklega
væru nú margir sem gætu þekkt
sjálfan sig í þessu endalausa tuði
en hinn hefðbundni fundarsetu-
maður er varla svo víðsýnn að hann
drífi sig í Stúdentaleikhúsið í sínum
frítíma.
Það sem einkennir þessa sýningu
öðru fremur er geysigóður samleik-
ur. Allir hlusta á alla og þó að raun-
sæið sé brotið upp með stílfærðum
atriðum, eins konar stóladans og
þar sem menn skjótast úr hlutverk-
um sínum inn í hálfgerðan dans, þá
er sú tilfinning allsráðandi að hér sé
hreinlega um spunaverk að ræða.
Þegar áhugaleikarar taka að sér
svona viðamikla sýningu er til-
hneiging til þess að meðferð texta
verði svolítið utanbókarlærdóms-
leg, en hér hefur Hlín unnið fanta-
vel með einmitt þann þátt, það er
hver einasti af þessum ungu leikur-
um talar eðlilega en ekki í uppskrúf-
uðum lestrarstíl eins og oft vill
verða. Þetta eru vel afmarkaðar
persónur. Björg, sem er pjattrófa
og nýskilin við manninn sinn með
það fyrir augum að ná í hinn fallega
Guðmund, er í meðförum Snjólaug-
ar Dísar Lúðvíksdóttur frábærlega
fyndin og meitluð. Hreyfir sig eins
og hæna og beitir líkama og andlits-
svipbrigðum eins og hún hafi verið
á leiksviði um áraraðir.
Ragna, sem þrífur í fyrirtækinu,
er kannski sá karakter sem minnst
passar inn í verkið því í nútímanum
eru það fyrst og fremst útlendingar
sem þrífa en engu síður er hún
ótrúlega einlægur og sjarmerandi
karakter. Einkum og sér í lagi þegar
hún tekur lagið með bónda sínum
sem var eins og stokkinn út úr
hressabandalaginu. Erla Steinþórs-
dóttir fer með hlutverk Rögnu og
eiginmaður hennar og eins konar
kórstjóri sýningarinnar er leikinn
af Hafliða Arnari Hafliðasyni sem
er greinilega tónlistarmaður hóps-
ins.
Það er um að gera að mæta á rétt-
um tíma á þessa endalausu fundi en
það gera þær ekki stöllurnar Arn-
dís og Vala. Arndís er einhvers
konar framkvæmdastýra og ljáir
Sigríður Eir Zophoníasdóttir henni
líf hrokans og yfirgangsins í mjög
húmorískum búningi. Vala, sem
verður aðeins of full í afmælinu, er
leikin af Ágústu Ósk Backman og
það er ekki laust við að þessa stelpu
þekki maður enda lá salurinn í
hvert sinn sem hún opnaði munn-
inn. Það var ekki endalaus hlátur á
sýningunni þar sem allt sem þar
gerðist var ekki fyndið en leikurinn
var í alla staði skemmtilegur. Hinn
fallegi Guðmundur sem tekur upp
á því að hengja sig í afmælisteiti
sínu er leikinn af Kolbeini Arn-
björnssyni og hann var líka einn af
þessum sem allir þekkja, stórglæsi-
legur Hollywood-gæi.
Það er alltaf einn sem segir vit-
lausa hluti á vitlausum stöðum, Atli
Sigurjónsson var í því hlutverki
sem hinn vammlausi Þór. Axla-
böndin og fálmkennd nálgun hans
gerðu persónuna að trúverðugum
nörd sem með sinni elskulegu fram-
komu var frábær andstæða hinna
sem titruðu um í sinni farsímaþjök-
uðu veröld. Ein þeirra sem vinnur á
skrifstofunni er Soffía. Hún mætir
á réttum tíma og hefur einhver
áhugamál önnur en að bulla. Lana
Íris Guðmundsdóttir er fáguð í
túlkun sinni á þessari viðkvæmu
stúlku.
Sigurður Hólm leikur hinn sjálf-
upptekna Loga af miklum krafti og
eiginkona hans sem kemur fram
undir lokin er leikin af Uglu Egils-
dóttur sem er ákaflega raddmikil.
Sýningin er kannski helst til of
löng. Eins og þegar þau fara að
byrja aftur frá byrjun og safna sér
saman í lokin, en engu síður er hér
verið að fjalla um eitthvað sem
endalaust er verið að fjalla um,
nefnilega umfjöllun um eitthvað
sem er kannski í sjálfu sér ekki
neitt en sem menn ímynda sér samt
að sé aðalatriðið í hinu uppskrúfaða
nútímalífi.
Næstu sýningar verða í kvöld,
laugardag og þriðjudag, sjá stu-
dentaleikhusid.is.
Fundastrit að tala
frá sér allt vit
New York-búinn Elizabeth Gibson
var á leiðinni að kaupa sér kaffi á
Manhattan-eyju einn morguninn
fyrir rúmum fjórum árum. Á göngu
sinni rak hún augun í málverk sem
hafði verið komið fyrir innan um
ruslapoka á gangstéttinni.
Málverkið var stórt og því veigr-
aði hún sér við að hirða það. Henni
þótti það búa yfir einhverjum krafti
og því varð það úr að hún tók verkið
og hengdi það upp í íbúðinni sinni.
Elizabeth var að vonum forvitin
um uppruna verksins og spurðist
fyrir í nágrenninu hvort einhver kannaðist við það
eða vissi hver hefði hent því, en uppskar engin svör.
Málverkið var merkt með nafninu Tamayo og fékk
hún því vini sína sem vinna í listgalleríum borgarinn-
ar til þess að kanna málið. Fljótlega kom í ljós að um
var að ræða verk eftir mexíkóska myndlistarmanninn
Rufino Tamayo og leitaði Elizabeth
því á náðir gallerís sem sérhæfir sig
í myndlist frá Mið-Ameríku til að fá
frekari upplýsingar.
Þar var hún uppfrædd um það að
verkið sem hún hafði undir höndum
heitir Þrjár manneskjur og að það
hafði horfið af heimili eigenda sinna
fyrir tuttugu árum. Elizabeth var
skiljanlega brugðið, en hún setti sig
umsvifalaust í samband við listsér-
fræðinga sem staðfestu að verkið
væri ósvikið og metið á eina milljón
dollara, eða rúmar 60 milljónir
íslenskra króna.
Málverkinu hefur nú verið komið til réttmæts eig-
anda síns og fékk Elizabeth rífleg fundarverðlaun.
Enn er allt á huldu varðandi hvar málverkið var
árin sextán sem liðu frá því að því var stolið og þar til
það endaði í ruslinu á Manhattan-eyju.
Meistaraverk í ruslinu
Sætir ný saga um Erlend og rann-
sóknarvinnu hans hjá rannsóknar-
lögreglunni í Reykjavík tíðindum?
Umfram það að upplögin stækka
og staða Arnaldar Indriðasonar í
sveit norrænna glæpasagnahöf-
unda styrkist stöðugt?
Nýja sagan hans, Harðskafi,
kemur út í dag. Í henni er Arnaldur
á kunnuglegum slóðum, Erlendur,
börnin hans tvö sem hann yfirgaf,
eiginkonan fyrrverandi, samstarfs-
fólkið, tvö þrjú mál sem ganga
fram hlið við hlið í ferlinu, allt er
hér til staðar. Stíllinn er fumlaus
og öruggur, ekki tilþrifamikill en
tök Arnalds á þeim frásagnarmáta
sem hann hefur tamið sér verða æ
öruggari. Hann verður að vísu að
leggjast undir
ok síns stóra
lesendahóps
sem hneigist til
að gera saman-
burð á þessari
sögu og þeim
fyrri eins og
það er nú kjána-
leg iðja: Arn-
aldur er að
vinna í hefð
sem getur í
besta lagi fund-
ið sér nýjar leiðir í snjallri og
óvæntri fléttu eða skörpum mann-
lýsingum. Ég hef saknað þess þótt
ekki hafi ég lesið allar sögur hans
að enn hafi hann ekki farið lengra
aftur í tímann og rakið einhver mál
Erlends frá árum hans með Marion
gamla sem er ein frjóasta persóna
sem Arnaldur hefur skapað.
Í Harðskafa – sem er nafn á fjalli
– og vísar sumpart í þema sögunn-
ar – gömul atvik elta okkur uppi
með ýmsu móti, gamlir skaflar
eyðast seint, er margt kunnuglegt:
bróðurmissirinn vofir yfir, sam-
band við móður skýrist frekar, líka
samband við föður en ekki til fulls.
Það er efni sem Arnaldur mun fyrr
eða síðar taka á. Sambandið við
fyrrverandi eiginkonu kemur hér
við sögu en er ekki útrætt. Og svo
eru málin: sjálfsmorð og miðils-
mál, horfin ungmenni: á bókarkápu
er mynd af mannlausum bát og bíl
í djúpi – reyndar myndir sem gefa
fullmikið til kynna fyrir minn
smekk.
Sögurnar af Erlendi eru að vissu
leyti framhaldssögur. Þræðir liggja
milli bóka. Enn er ekki útrætt mál
barnaníðingsins úr Vetrarborginni.
Fjölskyldumál Erlends eru í
sífelldri þróun og þar eru líklega
mörg hólf sem Arnaldur getur sótt
í. Þumbarinn Erlendur á sér marga
frændur erlendis. Fráskilinn og
tæpur seiglukarl, sjóaður í rang-
lætinu og í stöðugri sekt sjálfur.
Þokki hans felst í hversdagsleikan-
um. Í þessari sögu er Arnaldur
minna upptekinn af samfélagsleg-
um efnum þótt alltaf örli í samfé-
lagslega vitund höfundarins sem
skín í gegnum söguna: „Undirfólk,
hefði Sigurður Óli sagt. … Í huga
Sigurðar Óla átti það sannarlega
við um glæpahyski og dópistalýð,
sem hann sagði að væru einfald-
lega aumingjar, en líka allt annað
fólk sem honum mislíkaði við af
einhverjum ástæðum: ómenntað
starfsfólk, afgreiðslufólk, verka-
menn, jafnvel iðnaðarmenn sem
fóru óstjórnlega í taugarnar á
honum.“ Ætli þokki Erlendar liggi
ekki í bland í því að hann er næmur
fyrir hroka sem svo víða finnst í
samfélaginu og við könnumst mörg
við jafnvel hjá okkur sjálfum. Þótt
það sé reyndar ofsagt og hljómi
nærri sem háð eins og sagt er á
kápu að þessi karl sé „einhver dáð-
asta sögupersóna íslenskra nútíma-
bókmennta“?
Arnaldi er þökkuð tilurð íslensku
glæpasögunnar og margir runnu í
hans slóð. Á þeim vettvangi er sam-
keppnin hörð. Ekki bara við inn-
lenda smiði, heldur líka við nor-
rænu sögurnar, meginlandshöfunda
og engilsaxnesku hefðina og þá
amerísku. Hann stendur samt föst-
um fótum í íslenskri sagnahefð frá
fyrri tíð, nokkuð sem ber að þakka.
Hvað hann endist lengi á þessum
skika skal ósagt látið. Hann skrifar
sögur almenningi til skemmtunar,
er fundvís á grunnkveikjur, eins og
hér, í Kleifarvatni, og Grafarþögn
– efni sem dugar langt sem grunn-
ur undir meginfléttu. Og meðan
hann hefur nennu til að vinna í
þessu formi er óhætt að lesendur
munu fylgja honum. Svo er bara
spurningin þegar gervi Erlends
verður honum of þröngt og hann
sækir inn á ný mið, önnur en
spennusögurnar sem sýnilega
heilla hann líka. Ég spái því að það
styttist í frekari tilraunir.
Leiðin upp á fjallið
Höfundar Forlagsins munu alla
fimmtudaga fram að jólum lesa
upp úr glænýjum verkum sínum
á Súfistanum, Laugavegi 18. Er
fyrsti upplesturinn í kvöld og
hefst kl. 20.
Þau sem lesa upp í kvöld eru:
Edda Andrésdóttir les upp úr
bók sinni Í öðru landi – Saga úr
lífinu, ljúfsárri og lágstemmdri
frásögn dóttur sem horfir á eftir
föður sínum hverfa inn í óminnis-
land Alzheimers-sjúkdómsins.
Bárður Ragnar Jónsson les upp
úr Breiðavíkurdreng, sögu sem
hann skrifaði ásamt Páli Elísyni
og byggist á reynslu þess
síðarnefnda af hinu illræmda
drengjaheimili á Breiðavík.
Hildur Helgadóttir les upp úr
bókinni Í felulitum, en bókina
skrifaði Hildur eftir að hún fór til
Bosníu á vegum íslenska utanrík-
isráðuneytisins.
Bækurnar sem lesið er úr eru á
sérstöku tilboðsverði í bókaversl-
un Máls og menningar.
Súfistakvöld
ARI JÓNS: söngur, trommur
SVENNI GUÐJÓNS: söngur, hljómborð
FINNBOGI KJARTANS: söngur, bassi
GÚI RINGSTED: söngur, gítar
SIGGI PEREZ: söngur, saxafónn, slagverk
Gamla dansstuðið endurvakið með trukki og dýfu
Föstudags- og laugardagskvöld