Fréttablaðið - 07.01.2008, Qupperneq 46
30 7. janúar 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. læra 6. í röð 8. málmur 9. kúgun
11. tveir eins 12. hengingartré 14.
safna saman 16. berist til 17. fúadý
18. stormur 20. þys 21. fyrr.
LÓÐRÉTT
1. ílát 3. tveir eins 4. eyja í Miðjarð-
arhafi 5. struns 7. stífa 10. angan 13.
útdeildi 15. svari 16. augnhár 19.
mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lesa, 6. rs, 8. eir, 9. oki,
11. kk, 12. gálgi, 14. smala, 16. bt, 17.
fen, 18. rok, 20. ys, 21. áður.
LÓÐRÉTT: 1. trog, 3. ee, 4. sikiley, 5.
ark, 7. skástoð, 10. ilm, 13. gaf, 15.
ansi, 16. brá, 19. ku.
Freyr Eyjólfsson fékk frí frá
Dægurmálaútvarpinu á Rás 2 í
byrjun desember og skrapp ásamt
konunni sinni til Kúbu. „Ég hef
alltaf verið spenntur fyrir þessu
kommúnistaríki Kastrós og lengi
verið á leiðinni,“ segir hann. „Við
flugum með Heimsferðum en svo
vorum við nú bara á eigin vegum í
tvær vikur, mest í Havana. Þar er
ekkert mál að ganga óáreittur um
göturnar.“
Þetta var auðvitað hin mesta
gleðiferð, enda karabíska sólin
hátt á himni. „Ég þræddi djass-
klúbbana, svældi í mig vindla, kaf-
aði og fór í útreiðatúr. Ég kynnti
mér stjórnarhætti Kastrós og sögu
byltingarinnar. Það kunna allir að
spila þarna og allir að dansa. Þarna
eru eintómir snillingar á hverju
götuhorni.“
Svo uppveðraður af stemning-
unni varð Freyr að hann stofnaði
hljómsveit. „Ég var nú bara á ferð-
inni úti á landi þegar ég rakst á
þessa stráka, Zancho Zalsa og Car-
los de Freda, þar sem þeir voru að
spila úti á götu. Þeir voru alveg til
í að spila með mér og við stofnuð-
um hljómsveitina Los svaka gæjos
á staðnum. Við pössuðum mjög vel
saman og tókum mjög gott djamm.
Að koma hingað heim í myrkrið og
jólageðveikina var eins og að
vakna upp af værum draumi. Nú
set ég stefnuna á að snúa aftur til
Kúbu og taka eitthvað upp með
strákunum.“
- glh
Freyr Eyjólfs stofnaði hljómsveit á Kúbu
KÚBVERSKA SÓLIN KALLAR FRAM SÓLSKINSBROS Freyr með félögum sínum í Los
svaka gæjos, Zancho Zalsa og Carlos de Freda.
„Ég fékk þetta hlutverk þegar þau
Daniel Wetzel og Helgard Haug úr
Rimini Protokoll héldu vinnustofu
í Listaháskólanum. Þeim fannst
reynsla mín sem fréttamaður á DV
og NFS áhugaverð,“ segir list-
háskólaneminn Símon Birgisson.
Símon vakti mikla athygli þegar
hann gerðist um hríð blaðamaður á
hinu umdeilda DV fyrir tveimur
árum með sérstæðum fréttum
sínum.
Um helgina var verkið Breaking
News eftir leikhópinn Rimini Pro-
tokoll frumsýnt í Berlín. Símon,
sem fer með hlutverk í sýningunni,
segir þetta stærstu frumsýningu
þar um þessar mundir. „Þau eru
búin að slá í gegn, hópurinn fær
Evrópsku leiklistarverðlaunin á
næsta ári en sýning þeirra, Das
Kapital, sem nú er á fjölunum, fékk
leiklistarverðlaun fyrir besta hand-
ritið í fyrra. Sérstaða hópsins er sú
að þau notast ekki við leikara held-
ur „sérfræðinga“ eins og þau orða
það – alvöru fólk,“ segir Símon og
vísar þar til sjálfs sín. Leikhús
Rimini Protokoll hefur verið kallað
documentary theatre, eða heim-
ildaleikhús.
Breaking News fjallar um, eins
og nafnið ber með sér, fjölmiðla.
Símon segir Ísland í fyrsta sæti
yfir þau lönd þar sem frelsi blaða-
manna er mest. En það gerir blaða-
mennsku á Íslandi ekki auðveldari
að sögn hans.
„Ég segi í sýningunni að á Íslandi
hitti maður alla að minnsta kosti
tvisvar. Allir þekkja alla. Svo
blandast í sýninguna atburður
þegar ég hitti vítisengilinn Jón
Trausta Lúthersson á Aðalskoðun í
vetur. Hann er einn þeirra sem
réðst inn á ritstjórnarskrifstofu
DV. Ég endaði á að fela mig inni á
klósetti og vissi á því augnabliki að
ákveðnu tímabili í mínu lífi væri
lokið. Í sýningunni er okkar per-
sónulegu sorgum blandað saman
við hinar lifandi fréttir,“ segir
Símon.
Sviðsmynd verksins saman-
stendur af þrjátíu sjónvarpsskjám
sem tengdir eru fjórum gervi-
hnattadiskum. Klukkan átta á
frumsýningardag var svo bein
útsending á fréttum frá öllum
heimshornum.
„Leikhópurinn, sem ég er hluti
af, mun þýða og túlka fréttirnar
hver frá sínum heimshluta. Einn úr
hópnum er Kúrdi og flytur hann
nýjustu fréttir frá Al Jeseera. Ég
næ íslensku sjónvarpsstöðvunum í
gegnum Netið og þýði fréttirnar
yfir á ensku sem svo eru þýddar af
öðrum í hópnum yfir á þýsku.“
Símon segir ótrúlegt að búa í
Berlín sem hann kallar höfuðborg
heimsins. Æfingaferlið hefur verið
langt og strangt en svo stendur til
að fara með sýninguna um allt
Þýskaland og sýna svo á stórri leik-
listarhátíð í Vín.
„Sem betur fer er Ýr kærastan
mín hjá mér núna. Hún er að læra
fatahönnun en götutískan hér í
Berlín er mjög áhugaverð,“ segir
Símon. jakob@frettabladid.is
SÍMON BIRGISSON: NOTAR REYNSLU SÍNU Í LEIKRITI Í ÞÝSKALANDI
Íslenskur vítisengill í
þýskri leiksýningu
SÍMON Í HLUTVERKI SÍNU Símon tengir
sig við íslenskar fréttir og þýðir fyrir
þýska áhorfendur.
„Ég hlusta voða mikið á Sögu
eða Ríkisútvarpið. Ég flakka
á milli þeirra stöðva og svo
hlusta ég einstaka sinnum á
Bylgjuna.“
Ingibjörg Klemenzdóttir leirlistamaður.
SÍMON SÆLL Í
HEIMSBORGINNI
Símon leikur í
nýstárlegri sýningu
í Berlín og segir
þar af samskipt-
um sínum við Jón
Trausta Lúthersson.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Nýrnaveiki.
2 Mikhaíl Saakashvili.
3 Borgarstjórnin í Moskvu.
Nýr vefur » Á hvað ert þú að hlusta?
„Við hefðum tekið
myndir en höfðum
engan kubb...“
- ÚFÓ, Stuðmenn, Höf: Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson
„Samningar gagnvart leikurum eru að sigla í
höfn og þá – ef allt gengur að óskum – er búið
að opna þetta lokaða bókasafn sem er í
Efstaleitinu. Við eigum þó enn eftir að ganga
til samninga við leikstjóra, handritshöfunda
og tónlistarmenn og ég bind miklar vonir við
að það gangi jafn vel,“ segir Þórhallur
Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV.
Athygli vakti að Áramótaskaupið var
endursýnt á besta tíma í fyrrakvöld. Hingað
til hefur það krafist sérstakra samninga að fá
þennan viðamikla dagskrárlið endursýndan og
var sá háttur hafður á í fyrra. Hið sama var
upp á teningnum núna.
Þórhallur er því nokkuð bjartsýnn á að nýir
samningar við FÍL opni möguleika á því að
áhorfendur RÚV fái loks að njóta allra þeirra
perlna sem hingað til hafa verið lokaðar inni í
skelinni sinni. Og af nógu er að taka, gömul
skaup, sjónvarpsleikrit og svona mætti lengi
telja. „Við munum hins vegar auðvitað ganga
hægt um gleðinnar dyr og velja allt efni af
kostgæfni.“
Þórhallur var ekki í vafa um að margir
hefðu nýtt sér endursýninguna á Skaupinu
enda fengið útskýringar á kannski djúpum
bröndurum. Og svo væri nú hugur margra
annars staðar rétt fyrir miðnætti heldur en
við sjónvarpið. - fgg
Lokað bókasafn RÚV að opnast
ÞÓRHALLUR GUNNARSSON
Takist samningar við FÍL þýðir það að
gamlar perlur RÚV rata aftur á dagskrá.
Einn af sigurvegurum jólavertíðar-
innar er Þorgrímur Þráinsson sem
seldi ríflega 6.000 eintök af bókinni
Hvernig gerirðu konuna þína ham-
ingjusama? Uppskeran rann beint í
vasa Þorgríms því hann gaf bókina
út sjálfur hjá eigin fyrirtæki, Andi
ehf. Þessi góði árangur kom ekki til
af sjálfu sér og Þorgrímur var með
duglegri mönnum í plögg-
inu, las 40 sinnum upp
úr bókinni frá því um
miðjan nóvember og
oftast í rúman klukku-
tíma í senn. Nú eftir
atið sést Þorgrímur æ
oftar í ræktinni.
Hann virðist
þó ekki hafa
farið átakan-
lega illa út
úr jólaóhóf-
inu.
Annar sem kom vel undan jóla-
trallinu var Mugison sem gaf
útgáfu fyrirtækjum á snúðinn og sá
sjálfur um sín mál. Hann seldi vel
af Mugiboogie-plötunni, vel yfir
gullplötumarkið 5.000 eintök, en
biðlaði engu síður til þeirra sem
eiga plötuna í Bæjarins besta um
að skila henni ekki. „Menn geta
bara gefið hana áfram í afmælis gjöf,
eða notað hana í arininn
eða eitthvað. Ég hef
ekki efni á einhverju
massa skili hérna,“
sagði Mugison.
Á meðan rándýrar ímyndaraug-
lýsingar stórfyrirtækja á borð við
Atorku og Kaupþing eru á allra
vörum hefur leyndur gullmoli
skotið upp kollinum. Er þar um að
ræða skemmtilega sjónvarpsaug-
lýsingu fyrir Geymslur.com, fyrir-
tæki sem tekur að sér að geyma
búslóðir fyrir fólk. Þótt kostnaður-
inn hafi greinilega verið talsvert
minni en við gerð áðurnefndra
auglýsinga er hún engu að síður
bráðskemmtileg. Sem
er kannski ekkert
skrýtið því Val-
geiri Guðjóns-
syni eru eignuð
herlegheitin.
- glh/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI