Fréttablaðið - 16.01.2008, Blaðsíða 24
45 3,1 5,5%milljarðar. Eigið fé Gnúps um mán-aðamótin ágúst/september. milljarður. Meðalvelta á viku á fasteigna-markaði síðustu fjórar vikur. Stýrivextir í Bretlandi sem ákveðið var að halda í horfinu í vikunni.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Mikið reynir á Fjármálaeftirlitið
í þeim þrengingum sem verið
hafa á fjármálamörkuðum.
Þegar við bætist að fjármála-
fyrirtæki hafa sogað til sín lög-
fræðinga og viðskiptafræðinga
er erfitt að manna alla pósta
stofnunarinnar. Mikil blóðtaka
hefur verið á verðbréfasviði
FME. Hlynur Jónsson sviðs-
stjóri hefur sagt upp störfum
ásamt Einari Jónssyni og ætla
þeir félagar að stofna lögmanns-
stofu. Kristjana Grímsdóttir,
sem er einn reyndasti starfs-
maður verðbréfasviðs, hefur líka
sagt upp. Þegar þetta fólk hættir
hefur orðið algjör endurnýjun í
starfsliði þessa tiltekna sviðs frá
því í nóvember á síðasta ári sam-
kvæmt heimildum Markaðarins.
Það hlýtur að gera
forstjóra FME erfitt
fyrir, enda fréttist
af nýútskrifuðum
l ö g f r æ ð i n g u m
vera að sinna
mikilvægum
málum.
Endurnýjun
Enn kvarnast úr þeim hópi sem
byrjaði í Glitni í tíð Bjarna
Ármannssonar forstjóra. Einar
Páll Tamimi hefur hætt störf-
um sem framkvæmdastjóri lög-
fræðisviðs Glitnis og við starfinu
tekur Hörður Felix Harðarson.
Einar Páll hefur starfað hjá
bankanum frá árinu 2004 og
staðið sig vel að margra mati.
Eins og stundum þegar margt er
að gerast í fyrirtækjum þá má
alltaf gera eitthvað betur eins
og kom í ljós í athugasemdum
FME við viðskiptahætti í verð-
bréfaviðskiptum Glitnis rétt
fyrir áramót. Einar Páll hefur
stjórnað stórum hópi fólks um
leið og hann hefur verið lykil-
maður sjálfur í stórum verkefn-
um. Kunnugir segja að hann hafi
viljað draga úr álagi. Hörður
passar vel inn í hlaupamaníuna
sem einkennir marga starfs-
menn Glitnis. Í fyrra hljóp hann
21 km í Reykjavíkurmaraþoninu
á 1:47:17 og bætti sig um tæpar
8 mínútur milli ára. Greinilega
gott efni í forstjóra þar á ferð.
Tamimi fer
Rétt slapp
Birkir Kristinsson, bróðir
Magnúsar og fyrrum lands-
liðsmarkvörður í knattspyrnu,
var ekki í eigendahópi Gnúps
þegar tilkynnt var um endur-
skipulagningu félagsins, líkt og
fram kom í flestum fjölmiðl-
um. Félag Birkis, BK-42, átti
sjö prósenta hlut í Gnúpi en
virðist hafa náð að losa bréfin
áður en til uppgjörs við lánar-
drottna kom. Stærstu eigendur
Gnúps, þeir Magnús Kristinsson
og Kristinn Björnsson, virðast
hafa skipt eignarhlut Birkis
bróðurlega á milli sín, og voru
stærstir og jafnir í félaginu
þegar til uppgjörsins kom með
47,2 prósenta hlut hvor. Þórður
Már Jóhannesson á það sem
eftir stendur.