Tíminn - 26.06.1981, Síða 2
2
Föstudagur' 26. júni 1981
í spegli tímans
\
Reið-
skjóti
við
hæfi
■ Fudge er smáhestur
og ber það nafn með
rentu. llann er aðeins 45
cm á hæð og þvi ákjósan-
legur reiðskjóti fyrir
knapa, sem ekki eru
komnir til ára sinna, enda
virðist hún Carly, sem
enn hefur ekki fyllt fyrsta
árið, hafa fulla stjórn á
gæðingnum. Ekki er þó
Fudge af kyni minnstu
smáhesta i heimi. Það
kyn heitir Falabella og
heimkynni þess er Argen-
tina. Fullorðnir hestar af
þvi kyni ná ekki nema
35—70 cm hæö, mældir
upp á herðakamb.
Fidlu-
smidur í
Hamborg
Linn að verða fullorðin
■ Hubert Schorr er fiölu-
smiður i liamöorg. Verk-
stæöið hans er i þeim
hluta miðborgarinnar,
þar sem strætin eru þröng
og húsin vel við aldur.
Feröamenn eiga sjaldan
leið inn til hans, en þekktu
tónlistarfólki og aödáend-
um hljóðfæra er heimilis-
fang hans vel þekkt. Ný-
lega kom t.d. bandariskur
safnari með 3 Stradivari-
us fiðlur til viðgerðar og
er hver þeirra metin á
u.þ.b. 900.000 isl. kr.
Mesti annatimi á verk-
stæði Schorrs er sumar-
ið, þegar tónleika- og
óperuhús um alla Evrópu
hafa lokað. Sérsvið Sch-
orrs er viögeröir, endur-
nýjun og smiði fiðla, lág-
fiðla og knéfiðla.
■ Eins og fleiri foreldrar
héfur Liv Ullmann staðiö
i þeim stórræðum i vor að
láta ferma. Dóttir hennar
og Ingmars Bergman,
Linn, er orðin 14 ára og
var fermd i vor i norsku
sjómannakirkjunni i New
York. Vöktu þær mæðg-
urnar mikla athygli, þar
sem þær mættu báðar
iklæddar norskum þjóð-
búningum við athöfnina.
Á eftir var veisla, eins og
vera ber. Ekki var þó faö-
irinn viðstaddur. — Mér
finnst hún vera barn enn-
þá, segir Liv um dóttur
sina, en þar er Linn á
öðru máli. Kannast nokk-
ur við þennan skoðana-
mun hjá fermingarbarn-
inu og forcldrunum?
SKEGGIAÐUR SKOTI
Risa-
kál
■ Hvitkáliö i garðinum
hjá kráareigandanum
Tom Wealing getur státað
af þvi að það vex hraðar
en annaö kál.
Leyndarmál vaxtarins
er að kálið fær daglega
einn litra af öli.
Stoltið hans Tom er I
bakgarðinum, 210 cm hár
kálstöngull sem hefur
verið fóðraöur á öli i
nokkrar vikur.
Tom sjálfur var raunar
hissa hve kálinu skaut
fljótt upp. Nú verður hann
cða konan hans að klifra
upp stiga til þess að
vökva kálhöfuðiö.
Kona Toms Cath sagði
að sennilega myndu þau
aldrei borða kálið, aðeins
láta þaö vaxa og vaxa.
Tom sáði fræi úr einum
poka og vökvaði aðeins
eitt kálið með öli. Allt hitt
kálið sem hann sáði, visn-
aði upp.
Þýttog endursagt K.A.Ó.
■ Tom og Cath vökva
undrakálið.,
■ Það er áreiðanlegt, að hann John Roy
er með lengsta yfirskegg af öllum skeggj-
uðum Skotum, yfirskeggiö hans er rúm-
lega einn og hálfur metri enda á milli!
John Roy byrjaði að safna skeggi 1939 og
það hefur fengið að vaxa og lengjast án
þess að hann léti klippa það þessi 42 ár.
Skegginu heldur hann saman með hár-
spennum.
John Roy rak áður bjórstofu. Hann hef-
ur nú hætt rekstrinum, en hann er 71 árs.
Hann segist vera kominn i beinan karl-
legg af hinum fræga skoska útlaga Rob
Roy.
Til er i Skotlandi félag skeggjaðra, sem
nefnist „Iiandlebar Club”. John Roy er
formaður i þvi félagi og viröist vera vel að
þeirri virðingu kominn.