Tíminn - 26.06.1981, Page 15
Föstudagur 26. júní 1981
Að kunna
að sýna
Galleri Langbrók
Guðbergur Auðunsson:
Myndlistarsýning.
30 myndir.
13.-29. júni.
^Guðbergur Auðunsson var
auglýsingamaður, eða öllu heldur
auglýsingateiknari, áður en
hann snéri sér nær alfarið að
myndlistinni fyrir nokkrum ár-
um.
Til skamms tima hefur það ver-
ið svo, að Myndlistarskólinn hef-
ur haft sameiginlegan farveg
fyrir alla nemendur, en þegar
lengra er haldið, skiljast leiðir i
námsbrautir, sumir vilja verða
teiknikennarar i grunnskólum,
aðrir fara i auglýsingar, eða leir-
munagerð.
Er þetta ágæt aðferð við skóla-
hald i myndlistarskóla, að leyfa
fólki að prófa sig áfram og kynn-
ast hinu og þessu, áður en það
velur sér starfssvið. Þarna finna
menn þvi sjálfa sig oft i tæka tið,
þótt ávallt sé nokkur leki milli
greina, og þá einkum að þvi er
virðist, milli auglýsingateiknunar
ogalmennrar myndlistar. Og satt
að segja virðist manni á stundum,
að sumir auglýsingateiknarar
ættu fremur að sinna almennri
myndlist — og öfugt.
Astæðan fyrir þvi að ég rifja
þetta upp i aðfararorðum að sýn-
ingu Guðbergs Auðunssonar er
sú, að hann virðist ná harla góð-
um árangri i myndlist, og svo hef-
ur hann það, þar að auki, að hann
kann að sýna myndir. Minnist ég
sýningar hans i FIM salnum t.d.,
þar sem sýningin var unnin eftir
einu stefi, sem endurtekið var i
mörgum tilbrigðum.
Það var sérlega vel heppnuð
sýning og nú sýnir hann i fremri
stofunni i Galleri Langbrók, i
Bernhöftstorfunni. Þar sýnir
hann 30 smámyndir, er falla svo
einkar ljúflega að þessu litla her-
bergi, sem varla er unnt að nefna
sýningarsal, þvi þar er svo þröngt
um stóra muni.
Sýningin i Langbrók
Myndir Guðbergs á þessari
sýningu eru collage myndir, sam-
limdar úr snifsum og málað inn i
milli, en þetta er nú fag, sem
komið er á áttræðisaldur a.m.k.
Margir islenskir myndlistar-
® Guðbergur Auðunsson
menn fást við að gjöra svona
myndir en árangurinn er auðvit-
að nokkuð misjafn.
Guðbergur er vaxandi mynd-
listarmaður, og hefur þann neista
er þarf til að velja og hafna.
Er þetta einkar vel gjörðar
myndir.og furðu sterkar þótt þær
séu naumast stærri en lok af
barnaskóm númer þrjátiu. Við
greinum þarna lika, að minni
hyggju, viss fyrirheit um nýtt
framskrið i málverki Guðbergs
Auðunssonar.
Sýningin er opin daglega frá 12-
18.
Jónas Guðmundsson.
Munasýning á Kjarvalsstöðum
KJARVALSSTAÐIR
Leirlist,
gler,
textill
silfur og
gull.
13. júni — 23. ágúst
■ Fólkið á Kjarvalsstöðum er i
sumarskapi núna, enda naumast
nema von, eftir svo ljúfa byrjun á
sumri, sem verið hefur i höfuð-
borginni, þráttfyrir kuldann fyrir
norðan og austan. Og nú hefur
húsið verið fyllt af munum, sem
þar eiga að vera til sýnis i sumar,
en þá eiga margir leið um þetta
hús, ferðamenn, innlendir og er-
lendir, að ógleymdum ibúum
höfuðborgarsvæðisins, sem oft
leggja þangað leið sina á sumrin,
þótt myndlist og önnur menning-
arstarfsemi sé fyrst og fremst
vetrarlist hér á landi. Á sumrin
vilja margir gjöra annað þvi
margt kallar á fólk á sumrin,
einkum þegar tiðin er góð.
Kjarvalsstaðir fara þá leið i
sumar, að bjóða flokki lista-
manna Vestursalinn, en Kjarval
er i þeim eystri. Eru þar sýndir
margskonar munir, leirlist, gler,
textill, silfur og gull. Þeir sem
sýna eru Steinunn Marteinsdóttir,
Haukur Dór Sturluson, Jónina
Guðnadóttir, Elisabet Haralds-
dóttir, Hulda Jósefsdóttir, Sigriö-
ur Jóhannsdóttir, Leifur Breið-
gjörð, Guðrún Auöunsdóttir,
Ragna Róbertsdóttir, Asdis
Sveinsdóttir, Guðbrandur J. Jez-
orski, Sigrún Ólöf Einarsdóttir og
Jens Guöjónsson, en sýninguna
hannaði Stefán Snæbjörnsson,
arkitekt.
Menningarsamstarf
höfuðborga
I sýningarskrá segir frú Þóra
Kristjánsdóttir, listráðunautur
Kjarvalsstaða á þessa leið, er hún
gjörir grein fyrir sýningunni:
„Þessi hópur listamanna sem
nú kemur með sumarið inn i sali
Kjarvalsstaða sýndi fyrst saman
I Hasselby-höll i Sviþjóð fyrr i
vor. Hasselby-höll er miðstöð fyr-
ir menningarskipti höfuðborga
Norðurlandanna, og bera þær
kostnað af rekstri hennar i hlut-
falli við ibúafjölda. Fjöldi is-
lenskra listamanna hefur kynnt
þar menningu okkar á þeim 18 ár-
um sem liðin eru frá stofnun mið-
stöðvarinnar, myndlistarmenn,
tónlistarmenn, skáld og rithöf-
undar, en þetta mun vera i fyrsta
sinn sem svo yfirgripsmikil sýn-
ing á islensku listhandverki er
sett upp á þeim stað. Hún var sú
siðasta i röðinni af sambærileg-
um sýningum frá hinum Norður-
löndunum, en þar hefur sem
kunnugt er verið geysimikil
gróska i allri listiðn og listhönn-
un, án þess að lslendingar hafi
haft sig mikið i frammi til þessa.
Forstöðumaður Hasselby-hall-
ar, Birger Olsson, valdi sjálfur
þátttakendur og listmuni á sýn-
inguna i samráði við Stefán Snæ-
björnsson innanhússarkitekt,
sem siðan hafði allan veg og
vanda af uppsetningunni.
Það er skemmst frá þvi að segja
aðsýningin vakti mikla athygli og
hlaut mjög góðar viðtökur.
Nú er alltaf fróðlegt að skoöa
hvernig tsland og islensk menn-
ing er kynnt á erlendri grund, og
er það ein ástæðan fyrir þvi að
Kjarvalsstaöir bjóða listamönn-
um að sýna verk sin hér i sumar."
Úr miklu að moða
Það er nú sannarlega úr miklu
að moöa á Kjarvalsstöðum, þvi
yfir 250 munir eru sýndir, og er
sýningin sérlega vel sett upp og
fyrir komið, enda sjaldan sem
sýningar eru settar upp fyrir
borgun af lærðum sérfræðingum.
Þvi miður, þá skortir oft nokkuð á
hugkvæmni þegar sýningum er
komið fyrir. Vel upp sett sýning
er betri og aðgengilegri, heldur
en þegar hlutunum er komið fyrir
af handahófi, eða allt að þvi.
Þetta er sem áður sagði mikil
sýning ogstórum sig, leggur und-
ir Vestursalinn og ganginn fyrir
framan, eða suðurhluta hans, þar
eru glervörur, eða glermunir,
sem Sigrún Hulda Einarsdóttir
hefur unnið, en eftir þvi sem ég
best veit, var hún ekki með i
Hasselby-höllinni, en það var
mikill skaði, þvi verk hennar eru
bæði skemmtileg og vel unnin, og
auk þess er glerblástur ný list-
grein, eða iðngrein hér á landi,
þvi enginn hefur viljað heyra
minnst á gler, eftir að Glerverk-
smiðjan mikla, mistókst svona
herfilega.
Glermunir Sigrúnar Ólafar eru
gjörðir með ýmsu móti og hún
sýnir auk annars, slipað gler, en
munir hennar eru skálar, vasar
og krukkur, en auk þess sýnir hún
20 „drög að drykkjarglösum” er
hún hyggst framleiða. Eru þau
einkar fögur, og fara vel i hendi.
Þeir aðrir sem þarna sýna eru
flestir nokkuð þekktir listamenn á
sinu sviði, en það er þvi miður
engin leið að fjalla um einstaka
listamenn, eða einstök verk.
Þessi sýning hefur verið Islandi
tilsóma, oghvetég alla tilþess að
skoða hana. Það er sannarlega
þess virði.
Jónas Guðmundsson.
Jónas
Guðmundsson
skrifar um
myndlist.
______________________15
Auglýsing um aðalskoðun
bifreiða í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur í
júlímánuði 1981
Miðvikudagur 1. júli R-39501 til R-39800
Fimmtudagur 2. júlí R-39801 til R-40100
Föstudagur 3. júli R-40101 til R-40400
Mánudagur 6. júli R-40401 til R-40700
Þriðjudagur 7. júlí R-40701 til R-41000
Miðvikudagur 8. júlí R-41001 til R-41300
Fimmtudagur 9. júlí R-41301 til R-41600
Föstudagur 10. júlí R-41601 til R-41900
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins,
Bildshöfða 8 og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til
16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé
greiddur og vátrygging fyrir hverja bif-
reið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera
gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tima. A leigubifreið-
um til mannflutninga, allt að 8 farþegum,
skal vera sérstakt merki með bókstafnum
L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann 1
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Aðalskoðun bifreiða mun ekki fara fram á
timabilinufrá 13. júli til7. ágúst n.k.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
24. júni 1981
Sigurjón Sigurðsson.
Siglingamálastofnun ríkisins
Tilboð óskast i innanhússfrágang á ca. 650
ferm. húsnæði á 4. hæð á Hringbraut 121 i
Reykjavík.
í verkinu er m.a. fólgið uppsetning innveggja
úr timbri, smíði og uppsetning hurða og borða,
endurnýjun á rafkerfi, uppsetning hreinlætis-
tækja, málning og dúkalögn.
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1981.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
gegn 1.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð sma stað miðvikudaginn 8.
júlí 1981, kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Hjá Sjúkrasamlagi Reykjavikur eru neð-
angreindar stöður lausar til umsóknar:
1. Aðstoðargjaldkeri
Æskilegt er að umsækjandi hafi einhverja
bókhaldsþekkingu og kunnáttu við launa-
útreikninga.
2. Ritari
Góð vélritunarkunnátta áskilin.
Laun samkvæmt launakerfi rikisins.
Sjúkrasamlag Reykjavikur.