Tíminn - 26.06.1981, Síða 17

Tíminn - 26.06.1981, Síða 17
Föstudagur 26. júnf 1981 17. Landsmót UMFÍ á Akureyri 10. til 12. júlf: íþróttamennirnir verða hátt á annað þúsund og reiknað með að mörg þúsund aðkomumenn muni fylgjast með íþróttakeppninni og öðrum dagskráriiðum ■ ,,Þvi er auðvitað ekki að neita að við höfum enn áhyggjur af ýmsum hlutum, en ef á heiidina er litið er ekki hægt aö segja ann- að en að allur undirbúningur hafi gengiö vel og sé svo til kominn á lokastig” sagði Þóroddur Jóhannsson formaður Lands- mótsnefndar sem vinnur að und- irbúningi 17. Landsmóts Ung- mennasambands islands, en mót- ið fer fram á Akureyri dagana 10.—12. júli Að venju er þaö geysilega mikið fyrirtæki að halda Landsmót. Reiknað er meb að um 1300—1400 keppendur mæti til leiks, og nokk- ur þúsund mótsgesta munu mæta á Akureyri þá daga sem mótið stendur yfir. „Mér finnst þaö litið ef þeir sem koma til Akureyrar til þess að fylgjast með og taka þátt i keppn- inni verða undir 7 þúsund talsins” sagði Þóroddur. „Viö höfum fengið tjaldstæði bæjarins fyrir keppendur, og svo erum við að ganga frá tjaldstæði fyrir aöra gesti sunnan við Hjartarlund, ekki langt frá þar sem gamli golf- völlurinn var”. Mótsetningin 17. Landsmót UMFl verður sett á Iþróttavellinum kl. 20 á föstu- dagskvöldið 10. júli, en áður hafa iþróttamenn fariö i skrúðgöngu frá nýja Iþróttahúsinu. Þar mun formaður Ungmennasambands tslands setja mótið, frú Vigdis Finnbogadóttir forseti Islands flytur ávarp, forseti Bæjarstjórn- ar Akureyrar flytur ávarp og einnig Menntamálaráðherra Ing- var Gislason og Þóroddur Jóhannsson formaður Lands- mótsnefndar. Fimleikafólk úr Gerplu og Fimleikafélagi Akur- eyrar sýnir, sýnt verður fallhlif- arstökk og keppt verður i hlaupa- greinum frjálsra iþrótta. Um kvöldið verður siðan dansleikur i nýja iþróttahúsinu. Auk þess sem iþróttakeppni mótsins stendur yf- ir alla dagana þrjá verða kvöld- vökur og dansleikir i nýja iþrótta- húsinu öll kvöldin, og er óhætt aö segja aö þar sé eitthvað á ferðinni fyrir alla fjölskylduna. iþróttakeppnin Iþróttakeppnin hefst strax að morgni föstudagsins 10. júli og fer iþróttakeppnin fram viðsvegar um bæinn. Frjálsar iþróttir verða á Akureyrarvelli, i iþróttahöllinni verður keppni i borðtennis og glimu auk þess sem sýningar verða þar á lyftingum, en lyfting- ar eru sýningargrein á mótinu ásamt fimleikum og siglingum sem að sjálfsögðu fara fram á Pollinum. Körfuknattleikurinn verður i iþróttaskemmunni, blak- ið i Glerárskóla og handknatt- leikskeppnin fer fram utanhúss við GÍerárskóla. Þá veröur keppni viö Gagnfræðaskóla Akur- eyrar, i Húsmæðraskólanum og við Lund, en þar verður m.a. keppt i dráttarvélaakstri og hestadómum. Keppnin veröurþvi vitt og breytt um allan bæinn frá morgni til kvölds alla mótsdag- ana og má segja aö Akureyrar- bær verði undirlagður vegna mótsins. Starfsfólk fjölmennt Aö sögn Þórodds verða um 300—400 manns starfandi við mót- ið á meðan það stendur yfir. Geysifjölmennt starfslið þarf vegna iþróttakeppninnar, en aðr- ir koma við sögu i störfum eins og aðgöngumiðasölu, veitinga- rekstri og áfram mætti telja. gk-Akureyri ■ Frá setningu 16. Lanasmots IMH sem naldio var a Seltossi tyrir þremur árum. 3. deildin 3. deildin Stef nir í hörkukeppni í flestum ridlum — Léttismerm gengu „óléttir” af velli eftir 0:7 tap fyrir Njarðvík j ■ 10 leikir voru á dagskrá i 3. deildinni i fyrrakvöld og voru niu þeirra leiknir, en leik Reynis HE og Bolungarvikur var frestað. Þrir leikir voru leiknir i A-riðli og komu þar toppliöin i riðlinum öll við sögu og leikirnir þvi þýöingarmiklir. Aftureiding og Armann geröu jafntefli l-i i miklum baráttuleik sem einkenndist meira af kappi en forsjá. Afturelding var fyrri til að skora og kom markið strax á upp- hafsminútunni, og það var ekki fyrr en stundarfjóröungi fyrir leikslok að Armanni tókst að jafna. Gróttavar Grindvikingum ekki erfið hindrun, enda Grindviking- ar með harðsnúið lið og með 4-0 sigri yfir Gróttu tróna þeir nú ein- ir á toppnum i riðlinum. Markaskorarar Grindavikur voru Jóhann Armannsson og Guðmundur Ármannsson og Ragnar Eðvaldsson gerði tvö mörk. Kristján Hauksson var hetja 1K manna er hann geröi bæöi mörk þeirra i 2-1 sigri 1K yfir Hver- gerðingum, en mark Hveragerðis gerði Guömundur Sigurbjörnsson (hinn ljúfi knattspyrnudómari i 1. deild) en það dugöi skammt. Staðan i A-riðli er nú þessi: Grindavik 5 4 10 15-3 9 Armann 5 3 2 0 6-1 8 IK Afturelding Grótta Hveragerði Óðinn 5 3 11 9-7 7 4 2 2 0 10-4 6 6114 6-16 3 4 0 1 3 2-6 1 5 0 0 5 3-14 0 B-riðill I B-riðlinum voru einnig leiknir þrir leikir i fyrrakvöld og þar er helst að geta stórsigurs Njarövik- inga yfir Létti 7-0 en staðan i hálf- leik var 2-0, Jón Halldórsson og Þóröur Karlsson gerðu sin þrjú mörkin hvor og Haukur Jó- hannesson geröi eitt. óskar Jóhannesson geröi bæði mörk Stjörnunnar i 2-1 sigri þeirra yfir IR og var sigur þeirra sist of stór. Viðirhefur tekiö afgerandi for- ystu i B-riölinum eru fjórum stig- um á undan næsta libi og áttu þeir ekki i erfiðleikum meö aö sigra Þór Þorlákshöfn. Leikurinn endaði 5-2 og mörk Viöis gerðu, Guömundur Knúts- son 2, Daniel Einarsson, Jónatan Ingimarsson og Klemens Sæ- mundsson eitt hver en mörk Þórs gerðu Hólmar Sigþórsson og Ei- rikur Jónsson. Staðan i B-riöli er nú þannig: Viðir 6 5 1 0 25-8 11 Leiknir 5 3 1 1 8-8 7 Njarövik 4 2 1 1 12-3 5 Stjarnan 5 2 0 3 10-15 4 Þór Þorl. 4 1 1 2 5-9 3 Léttir 5 1 1 3 5-17 3 IR 5 0 0 5 4-9 0 C-riðill Einn leikur var i riðlinum og var þaö leikur Grundarfjaröar og Vikings ólafsvikur og sigruðu Vikingar 3-2 eftir hörkuleik. Jónas Kristófersson gerði tvö mörk Vik- ings og Pétur Finnsson eitt, en mörk Grundfirðinga gerðu Aðal- steinn Böövarsson og Asgeir Ragnarsson. Staðan i C-riðlinum er nú þann- ig: HV Vikingur ó. Bolungarvik Snæfell Grundarfj. Reynir HE Reynir Hnifsdal 5 5 0 0 21-1 10 5401 12-10 8 5 3 0 2 13-6 6 3 2 0 1 12-3 4 7 1 1 5 4-27 3 4 1 0 3 4-10 2 5 0 1 4 2-11 1 D-riðill Tindastóll sigraöi Leiftur 3-0 og nýliðinn i liði Tindastóls Þröstur Geirsson,sem áöur lék á Hofsósi, gerði tvö mörk og Sigurjón Magnússon geröi þaö þriðja. Siglfirðingar „pökkuðu” Reyni Arskógsströnd saman er þeir sigruðu meö miklum yfirburöum 6-2, mörk KS geröu Þorgeir Reynisson 3, Ivar Geirsson, Björn Ingimarsson og Ólafur Ólafsson, en mörk Reynis geröu Jens Sigurösson og Guömundur Her- mannsson. röp —. ■ Siguröur T. sést hér fella 5,10 m á Evrópumeistaramótinu ( Luxem- burg um siöustu helgi. Tfmamynd röp—. Siggi T. með nýtt ísl.met Stökk 5,10 f Þýskalandi ígær ■ Sigurður T. Sigurðsson stangarstökkvari úr KR hélt ásamt fleiri frjálsiþróttamönnum til Dortmund i V-Þýskalandi strax og Evrópubikarkeppninni i frjálsum lauk um siðustu helgi. Þar mun islenska frjálsiþrótta- fólkiö vera viö æfingar og keppni i um vikutima. Sigurður T. Sigurðsson tók þátt i frjálsiþróttamóti þar i gær og setti hann nýtt íslandsmet i stangarstökki er hann stökk 5,10 m en gamla metið sem hann átti sjálfur var 5,0 m. röp—.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.