Tíminn - 26.06.1981, Page 23
Föstudagur 26. júní 1981
23
flokkstilkynningar
skrifað og skrafað
Austurlandskjördæmi
Tómas Árnason, viöskiptaráðherra og Halidór Asgrimsson,
alþingismaður, halda leiðarþing á eftirtöldum stöðum:
Fljótsdai, 27, júni kl. 4 e.h.
'Skjöldólfsstöðum, 28. júni kl. 4 e.h.
Jökulsárhlið, 28. júni kl. 9. e.h.
Fundarefni: Stjórnmálaviðhorfið og málefni kjördæmisins.
Orðsending frá Happdrætti Framsóknarflokksins.
Dregið hefur verið i vorhappdrætti Framsóknarflokksins og vinningsnúmer innsigluð hjá
borgarfógeta. Dregið var úr öllum útsendum miðum. Næstu daga geta þeir sem fengið hafa heimsenda
miða og eiga eftir að gera skil, greitt skv.meðfylgjandigiróseðliinæstupeningastofnun, eða á pósthúsi.
Leiðarþing
Alþingismennirnir Steingrimur Hermannsson og Ólafur Þórðarson,
halda leiðarþing á eftirtöldum stöðum:
Brynjubæ Flateyri, föstudaginn 26. júni kl. 20.30
Félagsheimilinu Þingeyri, laugardaginn 27. júni kl. 16
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Skagfirðinga.
Aðalfundúr Framsóknarfélags Skagfirðinga verður haldinn i Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki,
sunnudaginn 28. júni kl. 19.30.
Dagskrá: Skýrsla lormanns og gjaldkera, lögð fram endurskoðuð lög félagsins, þinginenn flokksins i
kjördæminu flytja ávörp, kosningar og önnur mál.
Stjórn Framsóknarfélags Skagfirðinga.
Aimennir stjórnmálafundir
Alþingismennirnir Ingvar Gislason, Stefán Valgeirsson
og Guðmundur Bjarnason halda almenna stjórnmála
fundi á eftirtöldum stööum:
Mývatnssveit, föstudaginn 26. júni i Skjólbrekku kl. 20.30.
Stóru-Tjarnarskóli, laugardaginn 27. júni kl. 20.30
Sólgarður, Saurbæjarhreppi, sunnudaginn 28. júni kl. 20.30
Melar, Hörgárdal, mánudaginn 29. júni kl. 20.30
1 ' 4B*NHVB|L
■ Elpt: ||
M tHfe A- I
K v Jk
Allir velkomnir.
Sumarhátið
Framsóknarfélags Bolungarvikur verður haldin
Félagsheimilinu laugardaginn 27. júni kl. 20.30
1. Skemmtun sett
2. Ávarp: Steingrimur Hermannsson, ráðherra
3. Gamanvisur
4. Eftirherman Jóhannes Kristjánsson
5. Ávarp: Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi.
6. Stórbingó, 3 umferðir.
Vinningar: 20 kg kaffi, 3ja gira reiðhjól, utanland »ferð fyrir tvo með Samvinnuferðir-Landsýr
7. Eftir skemmtun verður dansleikur, Hljómsveitin Gaukar frá Heykjavik. Dansað til I
Eftirtaldar stöður
eru lausar til umsóknar við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Stöður hjúkrunarfræðinga við heima-
hjúkrun og heilsugæslu i skólum. Heilsu-
verndarnám æskilegt.
Staða sjúkraliða við heimahjúkrun, til af-
leysinga.
Staða ljósmóður við mæðradeild.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri i
sima 22400.
Staða deildarstjóra við áfengisvarna-
deild. Æskileg er háskólamenntun, helst á
félagsvisinda- eða hjúkrunarsviði.
Staða félagsráðgjafa við áfengisvarna-
deild.
Staða ritara Góð islenzku- og vélritunar-
kunnátta nauðsynleg. Reynsla við tölvu-
vinnslu æskileg.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri i
sima 22400.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu
Heilsuverndarstöðvar Reykjavikur,
v/Barónsstig, og skal skila umsóknum
þangað eigi siðar en 3. júli n.k.
HEILBRIGÐISRÁÐ
REYKJAVtKURBORGAR
NUERU
QODRAÐ
ODYR!
Þér er boðiú að hafa samband vió verkfræöi-
og tæknimenntaóa ráögjafa Tæknimiðstöðvar-
innar ef þú vilt þiggja góð ráð i sambandi
við eftirfarandi:
Vökvodœlur
ogdrif
Eitt samtal við ráógjafa okkar, án
skuldbindingar, getur sparað þér stórfé hvort Z
sem um er að ræöa vangaveltur um nýkaup
eóa vandamál við endurnýjun eða
viðgerö á þvi sem fyrir
Jb
1MIÍ
VERSLUN - RAÐGJÖF-VIDGERDARÞJÖNUSTA
IÆKNIMIÐSTÖÐIN HF
Smiðjuveg66. 200 Köpavogi S:(91)76600
Tamningar
Tek hesta i tamn-
ingu.
Árni Ingvarsson,
Arnþórsholti, Lund-
arreykjadal. Simi
um Borgarnes.
Auka þarf hlutdeild íbúa landsbyggðarinnar I dagskrá út-
varpsins. Myndin sýnir hús útvarpsins á Akureyri.
Efling
ríkisútvarpsins
er besta leiðin
B Einn af forsvarsmönnum
Samtaka um frjálsan útvarps-
rekstur (SFÍJ), Ólafur Hauks-
son ritaði grein i Tlmann á
miðvikudaginn. Þar svaraði
hann ýmsum þeim sjónarmið-
um, sem sett voru fram i for-
ystugrein blaðsins fyrir
skömmu um málefni rikisút-
varpsins og svonefnt „frjálst
útvarp”, og skýrði nánar sjón-
armið sin og annarra i SFG.
Þessi grein ólafs Hauksson-
ar var málefnalega skrifuð og
þvi eðlilegt, að nánar sé fjall-
að um ýmis þau efnisatriöi,
sem hann benti á.
i greininni kvartaði hann
nokkuð um að ýmsir, og þar á
meðal undirritaður, hafi mis-
skilið hvað það sé, sem áhuga-
menn um frjálsan útvarps-
rekstur vilja. Hafisvo verið þá
er það einfaldlega vegna þess,
aö kröfur þeirra hafa ekki ver-
ið skýrt oröaðar.
Þvi miður hefur slagorðið
„frjálst útvarp” verið það,
sem flestir hafa oftast heyrt úr
þeim herbúðum, en litið farið
fyrir beinum tillögum um
framkvæmdaatriði. Fram
kemur hjá Ólafi, að slikar til-
lögur eru i undirbúningi, og
verður forvitnilegt að sjá þær.
Hvað er frjálst?
i áðurnefndri forystugrein
vék ég nokkuð að þessu hug-
taki, „frjálst útvarp”, og
gagnrýndi það sjónarmið, sem
oft er haldið fram, að það sem
einkaaðilar eiga sé „frjálst”
en það sem þjóðfélagið i heild
á sé ekki frjálst. Hér er um
misnotkun á þessu orði að
ræða. Hún er auðvitað ekki ný,
þvi sennilega hafa fá orð veriö
jafn misnotuö og orðið
„frelsi”, nema ef vera skyldi
„lýðræði”.
Ólafur velur grein sinni
heitið „Einkaútvarp vegur
ekki að rikisútvarpi” og viður-
kennir þannig i reynd mitt
sjónarmið, að það eigi að kalla
slik fyrirtæki „einkaútvarp”
en ekki „frjálst útvarp”. Viö
erum þvi sammála um það
atriði, og er vonandi að aðrir
talsmenn SFU noti þetta sama
heiti, einkaútvarp, i málflutn-
ingi sinum.
Hvaða leið er skyn-
samlegust?
Afstaöa min til þess, hvort
leyfa eigi öðrum en rikinu að
setja á stofn og reka útvarps-
stöðvar hér á landi, mótast
hins vegar ekki af slagorðum,
heldur einfaldlega mati á þvi,
hvernig sé hægt að tryggja
landsmönnum öllum sem fjöl-
breytilegasta útvarpsþjón-
ustu, og ég legg áherslu á
„landsmönnum öllum”.
Rikisútvarpið er aö minu
áliti eini aðilinn i landinu, sem
hefur bolmagn til þess að
halda uppi regluleguin út-
varpssendingum til landsins i
heild. Það er reyndar svo dýrt
fyrirtæki, að jafnvel rikisút-
varpið á i erfiðleikum með aö
tryggja öllum landsmönnum
viðunandi hlustunarskilyrði.
Einkaaðilar hefðu engan kost
á slfku. Þeirra stöðvar hlytu
fyrst og fremst að miöast við
höfuöborgarsvæöiö — það
svæði sem nú þegar hefur i
reynd tvær útvarpsstöðvar,
rikisútvarpið og Keflavikurút-
varpið.
Önnur rás og lands-
hlutastöðvar
Ég er eindregið þeirrar
skoðunar, að rikisútvarpið sé
best til þess fallið að tryggja
landsmönnum öllum fjöl-
breytt útvarpsefni. Til þess að
sinna þvi verkefni sem skyldi
þarf annars vegar breytingar i
rekstri og hins vegar fastan
tekjustofn, sem ekki er bund-
inn visitöluákvæðum. Min
persónulega skoöun er sú, að
reka ætti útvarpið fyrir and-
virði sérstaks nefskatts, sem
kæmi i stað afnotagjaldanna,
og sem yrði innheimtur um
leið og aðrir skattar. Þá væri
hægt að ákveða upphæð
skattsins hverju sinni án tillits
til visitölumálanna, auk þess
sem leggja mætti niöur fok-
dýrt innheimtukerfi rikisút-
varpsins.
Ég er einnig þeirrar skoðun-
ar að rikisútvarpið eigi að
stefna að þvi i náinni framtið
aðhcfja útsendingar á annarri
rás, þar sem áhersla yröi lögð
á „littara” dagskrárefni sem
svo er nefnt.
Þá þarf einnig að kanna vel
möguleika á að tengja ibúa
hinna dreifðu byggða dagskrá
útvarpsins, hvort sem það yrði
gert með sérstökum lands-
hlutastöðvum, eða meö beinu
reglulegu framlagi ibúa
landsbyggðarinnar til dag-
skrár rikisútvarpsins.
Það er auðvitað Ijóst, að slik
breyting á starfsemi rikisút-
varpsins kostar peninga, en
landsmenn væru vafalaust
fúsir til að láta þá fjármuni
renna til útvarpsins til aö fá
betri og fjölbreyttari þjónustu.
Hér verður rúmsins vegna
að láta staðar numið, en siðar
verður vikið ajð nokkrum öðr-
um atriðum málsins i þessum
stað.
Elías Snæland Jónsson
ritstjóri, skrifar