Tíminn - 16.09.1981, Qupperneq 5

Tíminn - 16.09.1981, Qupperneq 5
Miðvikudagur 16. september 1981 5 fréttir Norsku kosningarnar: UTIAR LÍKIIR A MEIRIHLUTA- STJÚRN HÆGRIFLOKKANNA Frá Eiriki S. Eirikssyni, fréttaritara Timans i Osló. ■ Tekst Káre Willoch aö mynda meirihlutastjórn i Noregi, eða tekur minnnihlutastjórn Hægri flokksins undir forsæti Willochs vib völdum þann 13. október n.k.? Þetta er spurning sem brennur á allra vörum i kjölfar'úrslitanna i norsku þingkosningunum. Hægri flokkurinn er hinn stóri sigurvegari þingkosninganna, og enginn vafi leikur á að Kare Willoch myndar næstu stjórn. Fylgistap hina bor.garaflokkanna Miðflokksins, og Kristilega þjóðarflokksins, gerir bað hins vegar að verkum að minni likur eru taldar á að þeir hætti sér i samstarf með Hægri flokknum. Leiðtogar borgaraflokkanna áttu óformlegan fund með sér i gær, og var þá ákveðið að hefja stjórnarmyndunarviðræður á skrifstofu Ka're Willoch kl. 18 i dag. Þeir sem mættu á fundinn voru Káre Willoch og Jo Benkow, sem mættu fyrir Hægri flokkinn, Johan J. Jakobsen, og Sverre Helland, fyrir Miðflokkinn, og Káre Kristiansen og Kjell Unde- vik, mættu fyrir Kristilega þjóðarflokkinn. Enn er ekki ákveðið hvað margir fulltrúar skuli taka þátt i stjórnarmyndunarviðræðunum. Hægri flokkurinn óskaði eftir þvi að tveir fulltrúar frá hverjum flokki tækju þátt, en búist er við þvi að fulltrúarnir verði a.m.k. 3 eða 4 talsins. Beðið er eftir þvi með mikilli eftirvæntingu hverjir verði tilnefndir frá Kristilega þjóðarflokknum, en ef Lars Kor- vold, fyrrverandi formaður þing- flokksins, verbur þar á meðal, má búast viö þvi að flokkurinn hafi á- kveðið ab hvika hvergi i fóstur- eyðingamálinu, og þá er hverf- andi mög’ileiki á að þriggja flokka stjórn verði mynduð. Þó að Kristilegi þjóðarflokkur- inn geri ekki fóstureyðingamálið að skilyrði fyrir stjórnarþátttöku, eru samt sem áður mörg ljón á veginum áður en stjórn verður mynduð, og ekki er vist að borgaraflokkarnir nái saman. Eftir á að koma i ljós hvað Mið- flokkurinn og Kristilegi þjóðar- flokkurinn geta sætt sig við af ráöherrastólum. Káre Willoch hefur lýst yfir að hann telji eðli- legt að hver flokkur fái ráðherra- embætti nokkurn veginn i sam- ??Árangur Framfaraflokks ins kemur mest á óvart” — segir Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra „Ríkisafskipti, skatt- heimta, og varnarmál” — ráðandi um norsku kosninga- úrslitin, segir Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins ■ „Þessi úrslit urðu ekki ólik þeim, sem búið hafði verið að spá,” sagði Ólafur Jóhannesson, utanrikisráðherra, þegar hann var inntur eftir áliti á úrslitum norsku þingkosninganna. „Það sem kemur kannski mest á óvart er ávinningur Framfaraflokks- ins,” sagði Ólafur. Að öðru leyti vildi Ólafur Jóhannesson ekki tjá sig um úr- slit kosninganna, eða hvaða mál- efni hefðu valdið þeim. Kvað það vera mál Norðmanna sjálfra. Um áhrif kosningaúrslitanna og væntanleg stjórnarskipti, á sam- skipti Islendinga og Norðmanna, sagði Ólafur að ekki hefði tekist að ljúka landgrunnsviðræðum landanna fyrir kosningar, en hann hefði ekki ástæðu til að ætla að það hefði slæm áhrif á viðræð- urnar. JSG. ■ Ólafur Jóhannesson, utan rikisráöherra. ■ „Ég tel sigur borgaralegu flokkanna i Noregi athyglis- verðan, m.a. held ég að þakka beri sigur þeirra samstööu flokk- anna þriggja og ótviræðri forustu og styrkleika Hægri flokksins,” sagði Geir Hallgrimsson, for- inaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður um norsku kosninga- úrslitin. „Norðmenn eru bersýnilega orðnir leiðir á sivaxandi rikisaf- skiptum og skattheimtu,” hélt Geir áfram,” og hafa orðið fyrir vonbrigðum með hvernig oliu- gróðinn hefur nýst þeim. Óhætt er einnig ab túlka kosningaúrslitin þannig, að Norðmenn séu stað- ráðnir i ab styrkja varnarsamtök vestrænna þjóða, þrátt fyrir, eða e.t.v. einmitt vegna, siaukins þrýstings að austan. Unga fólkið, sem nú i fyrsta sinn fékk kosningarétt 18 ára, hefur að þvi er talið er átt veiga- ■ Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. mikinn þátt i sigri borgaralegu flokkanna, og segir það sina sögu um horfur framundan,” sagði Geir Hallgrimsson. ■ Magnús H. Magnússon, vara- formaður Alþýöuflokksins „Menn vilja breytingar breyting- anna vegna” — segir Magnús H. Magnússon, varaformaður Alþýðuflokksins ■ „Ég held að þarna sé fyrst og fremst um það aö ræða að menn vilji breytingar, kannski breytinganna vegna,” sagði Magnús H. Magnússon, varafor- maður Alþýðuflokksins, i samtali viðTimann um kosningaúrslitin i Noregi. „Menn séu kannski orðnir þreyttir á að hafa alltaf sama flokkinn, sömu mennina, i stjórn,” sagði Magnús. „Þannig virðist þetta vera t.d. i Sviþjóð, en þar féll stjórn jafnaðarmanna, eftir að hafa verið lengi við völd. Nú benda skoðanakannanir til að jafnaðarmenn komist aftur til valda i næstu kosningum. Ég held að þetta séu engar varan- legar breytingar, en það fer að nokkru eftir hvernig stjórnar- samstarf gengur. Sannleikurinn er sá, að Hægri flokkurinn hefur verið að sveigja til vinstri, svipaö og Sjálfstæðis- flokkurinn gerði hér fyrir nokkr- um árum, og hefur tekið upp fjöi- mörg af gömlum og nýjum stefnumálum jafnaðarmanna. Það þýðir náttúrlega aö hann nær miðjufólki til sin. En auðvitað er ég ekki ánægður með þetta,” sagði Magnús H. Magnússon. „Þetta er hins vegar enginhægrisveifla, viðsjáum t.d. þaö sem gerðist i Frakklandi.” —JSG. ræmi við þingstyrk, en hætt er við Kristilega flokksins þyki ekki að fulltrúum Miðíiokksins og nógu vel boðið. —JSG. Utankjörstaða- atkvædin juku enn á tap Verka- mannaflokksins misstu 11 þingsæti í kosningunum Frá Eiriki S. Eiriks- svni fréttaritara Timans i Osló. ■ Þegar endanleg úrslit i norsku þingkosningunum lágu fyrirum miðjan dag i gær, var ljóst að utankjörstaðaat- kvæði höfðu aukiö enn á tap Verkamannaflokksins. Lengi vel leit Ut fyrir að flokkurinn tapaði 8-10 þingsætum, en þegar utankjörstaöaatkvæöin höfðu verið talin kom i ljós að Verkamannaflokkurinn hafði tapað 11 þingsætum. Úrslitin urðu þvi þau að Verkamannaflokkurinn fékk 37,3% atkvæöa, eða 5% minna en fyrir fjórum árum siðan, og 65 þingmenn kjörna. Hægri flokkurinn fékk 31,6% atkvæða (+6,9%), og 54 þingmenn kjörna, sem er 16 þingsætum meira en flokkurinn hafði áður. Miðflokkurinn fékk 6,7% atkvæða (-1,9%), og 11 þing- menn, sem er einum færri en áður. Tap Kristilega þjóöar- flokksinskom ekki á óvart, en flokkurinn fékk 10,2% at- kvæða, (-7,1%), og 15 þing- menn kjörna, sem er 7 þing- mönnum færra en flokkurinn hafði áður. Vinstri flokkurinn hélt sinum 2 þingsætum og fékk 3,9%, sem er 0,7 meira en hann fékk siðast. Framfara- flokkurinn,sem stendur lengst til hægri i norskum stjórn- málum, fékk 4,5 atkvæða, og fjóra þingmenn, en flokkurinn átti ekki fulltrúa á siðasta þingi. Sósialistaflokkurinn, sem varið hefur ■ rikisstjóm Verkamannaflokksins falli undanfarin ár, fékk 4,2% at- kvæöa (+ 0,8%), og fjóra þing- menn kjörna, sem er 2 þing- mönnum meira en flokkurinn hafði. Það er þvi ljóst að borgara- flokkarnir þrir hafa samtals - 80 af þeim 155 þingsætum, sem slegist var um i kosningunum. Verkamannaflokkurinn og Sósialistaflokkurinn hafa samtals 69 eftir þessar kosningar. Ef borgara- flokkarnir koma sér saman um stjórnarmyndun þá hafa þeir góðan meirihluta a þingi. —JSG. „Sigur Hægri flokksins mest á kostnað miðflokka” — segir Svavar Gestsson, for- madur Alþýðubandalagsins ■ „Mér þykir náttúrlega merki- legt, að fólk skuli kjósa þennan Hægri flokk i stórum stil, á þess- um timum þegar mest á ríöur að kjósendur, sem langflestir eru launamenn, fylki sér saman til varnar þeim ávinningi sem verkalýðshreyfingin hefur náð, m.a. á Norðurlöndum, á siöustu árum og áratugum,” sagði Svavar Gestsson, félagsmálaráð- herra, um úrslit norsku þing- kosninganna. „Það á hins vegar eftir að koma i ljós, hversu langt Káre Willoch gengur i að framkvæma þá stefnu, sem hann heíur boðað. En mér er kosningaávinningur Hægri flokksins að sjálfsögðu ekki að skapi,” sagði Svavar. „Hins vegar tel ég það býsna athyglisvert, að kosningasigur Hægri flokksins er unninn á kostnað miðflokkanna fyrst og fremst. Þrátt fyrir nokkurt tap hjá Verkamannaflokknum, þá er greinilegt að það er ekki mjög verulegt sem hann tapar yfir til Hægri flokksins. Jafnframt gerist það að sósialiski vinstri flokkur- inn bætir við sig einhverju fylgi. ■ Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins. Það er einnig athyglisvert að Verkamannaflokkurinn norski var með mun róttækari stefnu i utanrikismálum núna i kosningum en lengi áður, og sú stefna nýtur þrátt fyrir allt þetta mikils fylgis norskra kjósenda, Íum 40%, sem er vert að dra við, „sagði Svavar Gests- , félagsmálaráðherra. —JSG.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.