Tíminn - 16.09.1981, Síða 7
Miðvikudagur 16. september 1981
7
erlent yfirlit
■ ÚRSLIT þingkosninganna i
Noregi urðu á þann veg.sem spáð
hafði verið. Vinstri flokkarnir,
Verkamannaflokkurinn og
Sósialiski vinstri flokkurinn,
misstu meirihluta sinn á þingi, og
verður minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins þvi að fara frá.
Borgaralegu flokkarnir þrír,
Hægri flokkurinn, Kristilegi
flokkurinn og Miðflokkurinn,
fengu samanlagt meirihluta á
þingi og munu þvi standa að
stjórnarmyndun, eins og þeir
höfðu heitið fyrir kosningarnar.
Það er hins vegar ekki ljóst,
hvort mynduð verður samsteypu-
stjórn þessara flokka þriggja, eða
minnihlutastjórn Hægri flokksins
eins. Siðari möguleikinn þykir
alveg eins liklegur, þar sem
Hægri flokkurinn vann mikið á,
en hinir flokkarnir töpuðu. Það
getur stuðlað að þvi, að þeir vilji
siður taka þátt i stjórn.
Þótt það sé enn ekki ljóst, hvor
þessara möguleika verður fyrir
valinu, er það öruggt, að formað-
ur þingflokks Hægri flokksins,
Kare Willoch, mun verða næsti
forsætisráðherra Noregs. Flokk-
ur hans varð óumdeildur sigur-
vegari kosninganna og raunar
gildir hið sama um Willoch. Hann
hefur verið svipmesti stjórn-
málamaður Noregs siðan þeir
Einar Gerhardsen og Trygve
Bratteli drógu sig i hlé.
SAMKVÆMT bráðabirgðatöl-
um urðu úrslit kosninganna þessi
(innan sviga úrslitin 1977).
Verkamannaflokkurinn 37.4%
(42.3%) og 66 (76) þingmenn.
Hægri flokkurinn 31.4 % (24,7%)
og 54 (41) þingmenn.
Kristilegi flokkurinn 9.3%
(12.2%) og 15 (22) þingmenn.
Miðflokkurinn 6.7% (8.6%) og 10
(12) þingmenn.
Sósialiski vinstri flokkurinn 4,9%
(4.2) og 4 (2) þingmenn.
Vinstri flokkurinn 3,9% (3.2%) og
2 (2) þingmenn.
Framfaraflokkurinn 4,5% og 4
þingmenn. Flokkurinn fékk eng-
an mann kjörinn 1977.
Framfaraflokkurinn er á ýms-
an hátt svipaður flokki Glistrups i
Danmörku. Það vekur sérstaka
athygii, að hann skyldi eflast i
kosningunum nú, eða á sama
tima og Hægri flokkurinn jók
fylgi sitt. Vel getur svo farið, að
Hægri flokkurinn eigi eftir að
■ Káre Willoch
Virtur en ekki
eins vinsæll
Lýsingin á næsta forsætisráðherra Noregs
eignast þar keppinaut á hægri
væng stjórnmálanna.
Hægri flokkurinn er eins og áð-
ur segir óumdeilanlegur sigur-
vegari kosninganna, bætir við sig
13 þingsætum. 1 tilefni af þvi
munu ýmsir vilja tala um hægri
sveiflu i Noregi. Slikt er þó hæpið,
þvi að á siðari árum hefur Hægri
flokkurinn verið heldur að snúast
til vinstri og bilið að minnka milli
hans og Verkamannaflokksins.
Þetta er að nokkru leyti skýring á
þvi, að hann vinnur nú fylgi bæði
frá Verkamannaflokknum og
miðflokkunum. Jafnframt kann
þetta að skýra það, að hann virð-
ist missa fylgi til Framfara-
flokksins.
Þvi fór f jarri, að Hægri flokkur-
inn boðaði nokkra leiftursókn i
likingu við Margaret Thatcher og
Geir Hallgrimsson. Flokkurinn
tók mið af þvi, að hann ætlaði að
vinna með miðflokkunum eftir
kosningarnar.
Verkamannaflokkurinn fékk
öllu betri útkomu en spáð hafði
verið. Sennilega á hann það mest
að þakka Gro Harlem Brundt-
land, sem þótti standa sig vel i
kosningabaráttunni. Vafalitið
stafar tap flokksins mest af þvi,
að kjósendur hafa viljað fá breyt-
ingu eftir átta ára stjórn hans.
Sennilega hefur það veikt
Kristilega flokkinn, að hann lagði
kapp á bann við fóstureyðingum.
Það háir hins vegar Miðflokkn-
um, að hann hefur ekki eignazt
áberandi foringja siðan Per
Borten lét af forustunni.
HINN væntanlegi forsætisráð-
herra Noregs Káre Isaachsen
Willoch, er fæddur 3. október
1928. Hann er hagfræðingur að
menntun. A námsárum sinum
vann hann að ýmsum hagfræði-
legum verkefnum hjá skipafélög-
um, en að námi loknu réðist hann
til iðnaðarsamtakanna. A árun-
um 1963-1964 var hann fram-
kvæmdastjóri Hægri flokksins.
Willoch var ungur, þegar hann
hóf afskipti af stjórnmálum.
Hann var kjörinn varaþingmaður
1955 og hefur átt sæti á þingi siðan
3958. Hann var verslunarmála-
ráðherra 1963 og aftur 1965-1970 i
stjórn Bortens.
Willoch hefur verið formaður
þingflokks Hægri flokksins siðan
1970.
Það gildir um Willoch að hann
er meira virtur en vinsæll. Hann
er mikill starfsmaður, stálminn-
ugur og mælskugarpur. Sumir
telja, að hann geti verið minnug-
ur um of' á ýmis smáatriði og
lengi það stundum mál hans að
óþörfu. Hann virðist kunna vel við
sig i kappræðum, eins og komið
hefur i ljós á fundum Norður-
landaráðs.
Willoch þykir ekki sérlega
mannblendinn og nýtur ekki vin-
sælda hjá fjölmiölum. Þeir hafa
sótzt eftir ab taka myndir á
heimili hans, en fengiö afsvar.
Hann er giftur hjúkrunarkonu,
sem vinnur enn á spitala hálfan
daginn, og eiga þau þrjú börn.
Venjulega fer hann i strætis-
vagni, þegar hann sækir þing-
fundi. Hann hefur þó bilpróf og
átti Volvo til skamms tima. Ný-
lega skipti hann um og fékk sér
litinn japanskan bil.
Willoch keppir að þvi að lifa
reglulegu lifi. Hann stefnir að þvi
að ganga til hvilu ekki siðar en
um ellefu leytið. Hann er að
mestu bindindismaður, en afneit-
ar þó ekki áfengi með öllu.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri skrifar
erlendar fréttir
Egyptar reka
rússneska
sendiherrann
■ Egypska stjórnin rak i gær úr
landi soveska sendiherrann i
Kairo.og sex aöstoðarmenn hans.
Sömuleiðis voru tveir sovéskir
blaðamenn reknir. Þá var til-
kynnt um að sbvéskri hermála-
skrifstofu i Kairó yrði lokað, og
ennfremur egypskri hermála-
skrifstofu i Moskvu. Þessar að-
gerðir koma i kjölfar þess aö
Sadat forseti, og fleiri stjórnar-
menn, saka Sovétmenn um að
grafa undan egypsku stjórninni,
og hvetja til óróa.
RUssneskisendiherrann, Vasily
Poliakov, fékk 34 klukkustunda
frest til að koma sér úr landi.
Hann hafði verið 7 ár i Egypta-
landi. Ungverskur sendiráösmað-
ur fær að fylgja Rússunum Ur
landi, en Egyptar hafa sakað
hann um aö hafa verið i vitorði
með þeim.
Egyptar hafa sakaö RUssana
um að hafa æst til átaka milli
múhameðskra og kristinna hópa i
landinu.
Frá þvi að Egyptar visuðu fjöl-
mörgum rússneskum sérfræðing-
um Ur landi árið 1972, hafa þeir
hallað sér enn meira að Banda-
rikjunum i hermálum og i öðrum
alþjóöamálum.
■ Anwar Sadat,
Egyptalands.
forseti
Tilræði við banda-
rískan herforingja
■ Tilraun var i gær gerö til að
ráða yfirmann herliðs Banda-
rikjanna i Evrópu af dögum.
Handsprengju Var varpaö að
bifreiö hans j Heidelberg I
Vestur-Þýskalandi. Yfirmaö-
urinn og aðrir sem I bifreiðinni
voru þar á meðal eiginkona
herforingjans, sluppu meö
skrámur.
Þetta var fjórða árásin á sið-
ustu þremur vikum á banda-
riska embættismenn i Þýska-
landi. Herforinginn sagðist i
gær ekki hafa upplýsingar um
hverjirbæru ábyrgð á tilræöinu,
en minnti á að hryðjuverkasam-
tök rauðu hersveitanna hefðu
haft I hótunum við bandariska
herliöið i Þýskalandi.
Vestur-þýsk yfirvöld for-
dæmdu árásina i gær, og settu
af stað rannsókn á henni.
Páfi styður við
verkalýðsfélög
■ Jóhannes Páll páfi hefur i
bréfi til kaþólikka um allan
heimvariö stofnun og starfsemi
verkalýðsfélaga. 1 bréfinu segir
hann að „fólk hafi rétt til að
stofna verkalýðsfélög, og til að
efna til verkfalla, i þeim til-
gangi að fá kjörum sinum
breytt,” en hann bætir við aö
„verkalýðsfélög ættu ekki að
beita valdi sinu í pólitiskum til-
gangi.”
Páfi segir ennfremur i bréfi
sinu að hreyfing sé i þá átt I
heiminum aö draga úr misbeit-
ingu á verkafólki. Hann gagn-
rýnir bæði „óbifanlegan kapi-
talisma” og „marxisk stjórn-
kerfi,” sem hann segir aðeins
„flytja vald frá einum hópi til
annars.”
Páfinn lýsir siðan yfir
stuðningi sinum við að verka-
mennöðLiistmeira vald istjóm-
un fyrirtækja, en um það er
harðlega deilt i Varsjá þessa
dagana.
Samkomulag um aðstoð
Bandaríkjanna við
Pakistan
■ Fréttir bárust af þvif gær, að
Pakistan hefði formlega sam-
þykkt aö taka við viðtækri að-
stoð frá Bandarikjunum, bæði
hernaðarlegri og efnahagslegri.
Aðstoðin er talin nema samtals
um 3.200 milljónum dollara.
Pakistanska stjórnin hafði
fyrir þremur mánuðuni sfðan
tekiö vel i þá aðstoð sem Banda-
rikjamenn höfðu þá boöið þeim,
en voru þóóánægðir með hversu
langan ti'ma þeir þyrftu að biða
eftir aö fá afhentar F-16 orustu-
þotur. Samkomulag náðist um
þetta atriði i heimsókn James
Buckly, aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandarikjanna, til Islam-
abad i siðustu viku.
Utanrikisráðherra Pakistan
lét þau orö falla i' gær, að aöstoö
Bandarikjamanna gæti oröið
upphaf aö nýju timabili nánari
samskipta rikjanna.
ÍRAN: Til nýrra skotbardaga kom i gær i Teheran, liklega á
milli Muhaden skæruliða og öryggislögreglunnar.
SOVÉTRÍKIN: Rússar hafa neitað ásökunum um að hafa beitt
eiturefnavopnum i Suðaustur-Asiu.
SOVETRIKIN: Nokkrir leiðtogar breska Verkamannaflokks-
ins, þ.a.m. Michael Foot og Denis Healy, komu I gær til Sovet-
rikjanna i heimsókn. Þeir munu aðallega ræða um afvopnun við
sovéska ráðamenn.