Tíminn - 16.09.1981, Page 13
Mi&vikudagur 16. september 1981
Iþróttir
„Stefnum að sigri”
Segja Framarar um leik sinn og Dundalk í Evrópukeppninni
® „Leikurinn leggst einstaklega vel I okkur,” sögöu strakarnir I meistaraflokki Fram I knattspyrnu i
gær og voru hvergi bangnir.
I ,,Satt best að segja, þá vitum
við ekkert um mótherja okkar
Dundalk, hvorki hvað liös-
mennirnir heita, né hvaða taktik
þeir spila,” sagði Hólmbert Frið-
jónsson þjálfari Framara, þegar
blaðamaður Timans hitti hann a&
máli á fundi sem hann hélt með
liðsmönnum sinum I gær.
„Við munum spila okkar venju-
lega sóknarleik og reyna svo að
geta i eyðurnar hvað snertir
varnarleikinn,” sagði Hólmbert.
Hólmbert sagði að það væri
ekkert launungarmál að
Framarar stefndu að sigri i þess-
um leik.
■ „Satt best a& segja þá vitum
viðekkertum mótherja okkar hjá
Dundalk,” sagði Hólmbert Frið-
jónsson þjálfari Fram-liðsins I
gær.
Við sama tækifæri hitti blaða-
maöur Timans þá Guðmund
Baldursson, Guðmund Torfason,
Sighvat Bjarnason og Halldór
Arason og spurði þá hvernig
leikurinn i dag legðist i þá. Allir
sem einn: „Alveg einstaklega
vel. Við teljum okkur eiga góðan
sjens á að komast i 2. umferð.”
Allir nema einn spáðu Fram
sigri, ýmist 2-0 eða 3-0, en einn
spáði úrslitunum 0-0.
„Leikurinn leggst bara vel i
mig. Við munum leika til sigurs,”
sagði Péturs Ormslev i viðtali við
Timann i gær, þegar hann var að
þvi spurður hvernig Evrópu-
leikurinn gegn irska liðinu
Dundalk legðist i hann, en Fram
og Dundalk leiða saman hesta
sina á Laugardalsveliinum kl.
17.30 i dae.
„Viö vitum sáralitiö um irska
liöið. Höfum engar spólur séð af
þeim, þannig að við rennum til-
tölulega blint i sjóinn," sagði
Pétur. Pétur sagði að undir-
búningurinn fyrir leikinn i dag
hefði verið með hefðbundnum
hætti. Framliðið myndi leika
svipað kerfi og þáð hefði gert i
sumar, ef til vill með sma'af-
brigðum. Hann sagði að einhugur
rikti i liðinu varðandi það að
spilað yrði upp á sigur.
Pétur sagðist vonast til þess að
veðrið yrði þokkalegt þannig að
aðsókn að leiknum yrði góð. Ekki
gerði hann sér þó vonir um að
fleiri en 2000 áhorfendur kæmu til
þess að sjá leikinn.
Við stefnum að sigri hérna
heima, það er alveg öruggt mál.
Ég verð ánægður ef við náum
sigra eitt — núll, en vonast þó til
þessaö mörk okkar verði fleiri,”
sagði Pétur.
„Þetta eru gamlir
jaxlar”
„Leikurinn leggst bara nokkuð
vel i mig. Menn eru held ég i góðu
formi fyrir þennan leik,” sagði
Marteinn Geirsson fyrirliði
Framliðsins, þegar hann var
spurður hvernig honum litist á
leikinn viö Dundalk i dag.
„Við vitum að visu ósköp litið
um leikmenn þessa liðs, en þaö
Tlmamyndir — Ella.
getur verið ágætt að vita sem
minnst. Ég held að þetta séu
gamlir jaxlar úr bresku knatt-
spyrnunni,” sagði Marteinn.
Sagði hann að þeir hefðu vist
staöið sig nokkuð vel siðast þegar
þeir tóku þátt i Evrópukeppni.
—AB.
■ Dragan Pantelic er talinn einn besti markvör&ur Evrópu. Hann
hefur leikið 35 landsleiki meö júgóslavneska landsliðinu. Hann kom til
Bordeaux nú i sumar. Pantelic tekur allar vitaspyrnur fyrir Bordeaux
og júgóslavneska landsliöið.
— segir Sedov, hinn rússneski þjálfari Vikinga um
leik þeirra og franska liðsins Bordeux
f Evrópukeppninni á morgun
■ Nýbakaðir tslandsmeistarar
Vikings i knattspyrnu þurfa svo
sannarlega ekki að óttast verk-
efnaleysiá næstunni, þvi auk þess
að leika fyrri leik sinn i Evrópu-
keppninni nú á morgun gegn
franska liðinu Bordeaux, sem er
efst i frönsku deildakeppninni, þá
fara þeir nú á föstudaginn áleiðis
til Sovétrikjanna þar sem þeir
leika þrjá leiki, til undirbúnings
siðari leiknum við Bordeaux, sem
verður i Frakklandi 30. septem-
ber.
Nú beinist allur kraftur Viking-
anna að þvi að undirbúa sig sem
best fyrir leikinn á morgun, en
hann fer fram á Laugardalsvell-
inum kl. 17.30. Liðið átti fri i
fyrradag en i gær og i dag verður
það við æfingar.
son er markakóngur tslands-
mótsins, ásamt Sigurlási Þor-
leifssyni úr IBV. Lárus hefur
verið undir smásjánni hjá erlend-
um félögum aö undanförnu og
hefur þýska liðið Fortuna Dtíssel-
dorf nú gert honum tilboö um
tveggja ára samning. Þvi kann
svo að fara aö Lárus leiki ekki
fleiri leiki með Vikingi, þegar
þessum Evrópuleikjum er lokið
og þvi gæti svo farið aö siðasta
tækifæri islenskra aðdáenda
hans til þess að sjá hann leika á
íslenskri grund, að sinni a.m.k.
yrði á morgun.
Bordeaux er topplið
Bordeaux er talið næsta stór-
veldi i franskri knattspyrnu. Það
trónar nú á toppi fyrstu deildar-
innar i Frakklandi og hefur
mörgum geysigóðum leikmönn-
um á aö skipa. Má þar nefna
menn eins og miðvöröinn Marius
Tresor og Tigana.
Liðið hefur á undanförnum
tveimur árum keypt sjö kunna
leikmenn þar á meðal ýmsa
snjöllustu leikmenn franska
landsliðsins. Hefur liðið lagt i
mikil fjárútlát til þess aö vinna
„Strákarnir munu berj-
ast af krafti”
Hinn rússneski þjálfari Viking-
anna, Youri Sedov segir að það sé
erfitt að spá fyrir um úrslit leiks-
ins við Bordeaux. Segist hann þó
geta sagt hvernig menn séu
stemmdir: „Strákarnir munu
berjast af krafti. Ef lukkan verð-
ur með okkur þá getur Vikingur
náð sigri.”
Þess má geta hér að það er nú
frágengið að Sedov, sem hefur
þjálfað Vikinga tvö undanfarin
sumur, mun þjálfa þá áfram
næsta sumar.
Siðasti leikur Lárusar?
sér sess sem stórveldi i frönsku
knattspyrnunni og er allt útlit
fyrir að þvi takmarki sé nú náð.
Bordeaux hefur ekki unniö 1.
deildina i Frakklandi siðan 1950,
en það ár keppti liðið einnig til úr-
slita I bikarnum og tapaði.
Liðið varð franskur bikar-
meistari 1941, en 1950,1968 og 1969
varð það i öðru sæti i bikarnum.
Liðið varð einnig i öðru sæti i 1.
deild 1966 og 1968.
Það eru þvi orð að sönnu aö
leikmenn Bordeaux og ibúar séu
orðnir langeygir eftir verðlaun-
um og eru þeir jafnframt bjart-
sýnir á að franski meistaratit-
illinn hafni i Bordeaux á komandi
vori.
Allt um það ættu islenskir
knattspyrnuunnendur að fá tæki-
færi til þess að horfa á vel leikna
knattspyrnu á morgun, svo
framarlega sem veðurguðirnir
verða okkur hliðhollir.
Miðherjinn Lárus Guðmunds-
„Strákarnir
munu berjast
af krafti”
—AB