Tíminn - 16.09.1981, Page 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurnfs
Sími (91) 7 - 75 - 51, (91) 7 - 80-30.
TTTTp Skemmuvegi 20
riiijUii nr , Kópavogi
Mikiö úrval
Opið virka daga
9-19 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF
^ Gagnkvæmt
tryggingafélag
Fjórhjóladrifnar dráttarvélar
70 og 90 ha.
Kynnið ykkur verð og kosti
BELARUS
Guöbjörn Guðjónsson
heildverslun
m»
Miðvikudagur 16. sept 1981
■ Áhöfnin á Agústi RE. 61. Benedikt Agústsson, skipstjóri og hásetarnir, Kristinn Pétursson og Asbjörn Jónsson.
„FENGUM AÐEINS EINA
ÝSU I HELV.. TROSSUNA”
sagði Benedikt Ágústsson, útgerðarmaður og skipstjóri á Ágústi RE
■ „Við erum á ýsunetum og
sækjum hérna Ut á Svið, fiskeriið
hefur verið ákaflega tregt að und-
anförnu. Við íengum aðeins eina
ýsu i eina helv.. trossuna. Þaö var
þó eitthvað aðeins meira i hinum
tveim þvi alls erum við með um
500 kiló eftir nóttina,” sagöi
Benedikt Agústsson, Utgerðar-
maður og skipstjóri á AgUsti R.E.
61.
Við brugðum okkur niður á
Granda til að skoða mannlifið þar
eitt siðdegið nU i vikunni. Þar er
alltaf eitthvað skemmtilegt að
sjá. Maður fær á tilfinninguna að
þar slái pUls okkar hefðbundna
atvinnulifs. Trillurnar minna
mann á þorpin Uti á landi, og
trillukarlarnir eru alltaf
skemmtilegir viöræðu.
Það voru nU ekki margir að
sinna bátunum sinum þetta sið-
degi, en þó var einn bátur nýkom-
inn að landi og áhöfnin var i óöa
önn við aö landa aflanum, sem
var stór og falleg ýsa.
— Við tókum formanninn tali
þar sem hann var að stjórna lönd-
unarbómunni, uppi á bryggjunni,
meöan hásetarnir gogguðu ýsuna
upp i löndunarmáliö.
„Það hefur nU stundum verið
tregara. Annars er ekki nein
ástæöa til að örvænta, ég er nú
mest að þessu ánægjunnar vegna
og þegar vel viðrar er ákaflega
gamanaðróaá svona smábátum.
Maður er sjálfs sin herra og þarf
ekkiaöhlýöa duttlungum annarra.
Annars er ég að þessu i hjáverk-
um. Ég hef hlaupið i skarðið þeg-
ar þaö hefur vantað afleysinga-
skipstjóra á loðnubáta. Ég hef
verið á þeim mörgum,” sagði
Benedikt.
,,Ég hef trú á aö loðnan fari að
gefa færi á sér upp Ur næstu mán-
aðamótum, þó að hún sé ekki far-
in að nást að neinu marki ennþá.
Sennilega hafa menn verið of
fljótir á sér.”
„Það er verst fyrir strákana
hvað aflinn á ýsunetunum hefur
verið rýr, þvi ekki er að búast við
að aflal luturinn þeirra verði
stór,” sagði Benedikt og hélt sið-
an áfram við vinnu sina.
Þegar við vorum aðfara kallaöi
hann á eftir okkur og spurði hvort
við vildum ekki i soðið. Við þáð-
um meö viðeigandi þökkum og
héldum svo af stað heim, með
sina ýsuna hvort.
— Sjó.
fréttir
Deilt um
skreiöar-
hjalla í
Glæsibæjar*
hreppi:
Bændur
lokuðu
veginum
ad þeim
■ Nokkrir bændur og
meirihluti
hreppsnefndar Glæsi-
bæjarhrepps i Eyja-
firði tóku sig til og
lokuðu veginum að
skreiðarhjöllum Ot-
gerðarfélags Akur-
eyrar i hreppnum en
Útgerðarfélagið hafði
ekki farið að óskum á-
búenda hreppsins um
að ræða við þá um
brottflutning hjall-
anna.
„Við vorum itrekað
búnir að biðja um fund
með forráðamönnum
þessa fyrirtækis og
biðja þá um að fjar-
lægja hjallana og þar
sem það hafðist ekki
með góðu gripum við
til þessara aðgeröa”
sagði Kristján Sveins-
son bóndi á Blómstur-
völlum I samtali við
Timann.
„Hjallarnir standa i
um 100 m fjarlægð frá
minum húsum og ekki
er hægt aö hafa neitt
opið á húsunum ef
vindur stendur af
hjöllunum og á húsin
vegna lyktarinnar af
þeim, en samkvæmt
lögum þá eiga
hjallarnir að vera í að
minnsta kosti 500 m.
fjarlægð frá byggð.”
„Tveir aðrir bæir
standa innan þessa 500
m radíusar. Forráða-
menn Útgerðar-
félagsins hafa nú rætt
við okkur og það varð
að samkomulagi að
það sem þegar væri
komið upp fengi að
hanga en siðan yrðu
hjallarnir fjarlægðir
þannig að við lltum
svo á aö málið sé úr
sögunni".
—FRI
dropar
V.R.- taxt
arnir og
kaup-
mennirnir
■ Þetta lásum viö I V.R.
--blaðinu og er það haft
eftir Hrafni Bachmann,
kaupmanni:
„Mér dettur ekki i hug
að bjóða fólki V.R.
—taxta. Ég fengi ekkert
gott starfsfólk á þeim
launum. Ég held að það
sé beggja hagur aö bjóöa
fólkiwu'hærri laun”.
Nú e.ru jafnvel atvinnu-
rekendur farnir aö kvarta
undan lágu laununum hjá
verslunarfólkinu.
Banka-
bjartsýni
■ Eftir að samþykktar
voru björgunaraðgerðir
fyrir Út vegsbankann
virðist aukin bjartsýni
vera farin að rikja í þeim
herbúðum. Aö minnsta
kosti hefur bankinn nú
sótt um lóð nálægt Glæsi-
bæ undir byggingu eina
mikla.
Yfirskyggj-
andi
Þjódvilja-
menn
B Eftirfarandigat að lita
í Þjóðviljanum I gær:
„Blaðamaöur Þjdö-
viijans á staðnum brá sér
upp á Lorelei seinnipart
dags þann 17. og yfir-
skyggöi staðinn”.
Það eru engin smá-
menni þarna á Þjóð-
viljanum.
Brúdu-
heimilið?
■ Svo getum við ekki
stillt okkur um að birta
þessa mynd af viö-
mælanda Vfsis i gær. Það
er greinilegt að á siðum
þess ágæta blaðs eru
flestir farnir að fá máliö.
Uorothea G uöb jarnar dóttir,
sýningarmær: „Ég hef nti ekki
mikinn tfma til þess aö vera aö
þamba þetta, en þetta er svo
sem allt jafn-gott”
Krummi...
...sá það haft eftir Davið
Oddssyni i Morgun-
blaðinu, að ihaldið myndi
afnema punktakerfið við
lóðaúthlutun ef það næði
meirihluta i borgarstjdrn.
Þaö á sem sagt að taka
upp aftur flokkspólitiska
kerfið, sem notað var I
fimmtíu ár.