Tíminn - 29.09.1981, Side 4

Tíminn - 29.09.1981, Side 4
stuttar fréttir ■ Þingfulltriiar á Sambandsþingi UMFl við Kapelluna á Kirkjubæjarklaustri. Um 23 þús. fél- agar í 199 ung- mennafélögum ■ Kirkjubæjarklaustur reyndist hinn ákjósanlegasti staður til þinghalds og þakkar UMFl heimamönnum og öðrum er aðstoö veittu i sam- bandi við 32. Sambandsþing Ungmennafélags lslands að Kirkjubæjarklaustri helgina 5. og 6. september s.l. segir i frétt frá UMFI. Starfandi ung- mennafélög i landinu eru nú sögð 199 að tölu með rúmlega 23 þúsund iélagsmenn innan sinna vébanda. Fyrirferðarmestu starfs- þættir UMFI undanfarin tvö ár eru sagðir verkefni eins og erindrekstur og útbreiðsla, er- lend samskipti, Landsmótið á Akureyri, félagsmálafræðsl- an, Þrastaskógur og fjármál ýmisskonar. Tillögur er lagðar voru fram fjölluðu um margvisleg efni. Frá Allsherjarnefnd voru m.a. samþykktar tillögur um stofn- un bókasafns UMFI, áskorun til héraðssambanda um rekstur unglingabúða og um feröa og náttúruverndarmál. tþróttanefnd hvatti til al- mennrar þátttöku i „Göngu- degi fjölskyldunnar”, fjallaði um 1K1 og fól stjórn UMFI að kanna möguleika á jöfnun feröakostnaðar iþróttafólks. Fræðslu- og útbreiðslunefnd gerði tillögur um ýmis atriöi til að minnast 75 ára aímælis UMFI á næsta ári, um Skin- faxa og önnur útgáfumál m.a. um „Sögu UMFÍ” sem kemur út á næsta ári og um Félags- málaskóla UMFÍ. Fjárhagsnefnd fjallaði um Iþróttasjóð rikisins, Getraun- ir, Landshappdrætti Ung- mennafélaganna og fleira tengt fjáröflun. Fjárhags- áætlun UMFI fyrir árið 1982 hljóðar upp á tæpl. 1,5 millj. kr. I stjórn voru kosnir: Pálmi Gislason, form., Bergur Torfason Dýrafirði, Diðrik Haraldsson, Selfossi, Þórodd- ur Jóhannsson Akureyri, Björn Agústsson, Egilsstöð- um, Guðjón Ingimundarson, Sauðárkróki og Jón Guð- björnsson Borgarfiröi. —HEI lönþróunar- fulltrúi ráðinn fyrir Sudurland SELFOSS: 1 ágústmánuði s.l. var Þorsteinn Garðarsson, viðskiptafræðingur, ráðinn iönþróunarfulltrúi fyrir Suðurland. Þorsteinn varáður sveitarstjóri i Þorlákshöfn og hefur unnið mikið i Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga i atvinnumálanefnd og viö upp- byggingu Iðnþróunarsjóðs Suöurlands. Hann hóf störf 3. september s.l. Núna i byrjun hefur hann verið að kynna sér tækni-, þjónustu- og lánastofnanir iðnaðarins og atvinnuveganna I Reykjavik. Samkvæmt starfssviði iðn- þróunarfulltrúa á hann að vera tengiliður milli tækni- og þjónustustofnana iðnaðarins og þeirra aðila sem starfa við iðnrekstur. Hann á að kanna möguleika á iðnþróun á svæö- inu og aðstoða sveitarfélög viö það. Að veita upplýsingar og ráögjöf um það á hvern hátt megi aðstoða iðnfyrirtæki við hagræðingu, markaðsviðleitni og fleiri þætti i rekstrinum og stuöla aö samvinnu milli fyrirtækja i einstökum grein- um og innan skyldra atvinnu- greina. Þá á hann aö vera til ráðuneytis þeim aðilum er vinna að mótun atvinnustefnu fyrir landshlutann eða ákveðin svæöi. „Gústabúð” nýtt björgunar* skýli í Nesdal Slysavarnafélagi Islands var á aðalfundi félagsins i sumar gefið björgunarskýli, sem komiö verður fyrir á sjávarbökkum i Nesdal milli Fjallaskaga og Ingjaldssands. Það eru 4 börn Agústs Guð- mundssonar, sem bjó að Sæ- bóli á Ingjaldssandi: Jónina, Steinunn, Guðmundur og Guðni, er gefa félaginu skýlið til minningar um föður sinn. Munu gefendur einnig sjá um rekstur og viðhald skýlisins sem nefnt verður „Gústabúð”. Auk þess afhenti slysa- varnardeildin „Hafrún” á Eskifiröi félaginu til eignar skýli sem deildin hefur komið upp við Oddsskarð. —HEI ■ Björgunarskýliö flutt á Oddsskarö. Þriöjudagur 29. september 1981 Grunnur lagður að kröf ugerð Félags bókagerðarmanna: KREFJAST AFIDR- VIRKNI SAMNINGA l,,Þaö er ljóst aö viö munum leggja aöaláherslu á tvennt i komandi samningum, annars vegar hækkun launaliöanna, sér- staklega þeirra sem lægstir eru, svo og þaö aö samningar gildi frá nóvembermánuöi, þvl þaö er aö sjálfsögöu ófært aö láta draga samninga mánuöum saman, án þess þeir gildi aftur fyrir sig. Enda er von okkar aö verkalýös- hreyfingin láti ekki bjóöa sér ann- an eins drátt á samningum og slö- ast, þegar þetta tók ellefu mán- uöi”, sagöi Magnús Einar Sig- urösson, hjá Félagi bókageröar- manna, en félagiö hefur nú lagt grunn aö kröfugerö sinni I kom- andi samningum og sagt upp nú- gildandi samningum. „Við vorum með geysifjöl- mennan félagsfund i gær”, sagði Magnús Einar ennfremur, i við- tali viðTimann, „og þar var sam- staða um kröfurnar alger, svo og samstaðan um að berjast nú til þrautar til að ná fram bótum á laun og kaupmátt þeirra, sem er orðinn skammarlega litill og hef- ur raunar minnkað um að minnsta kosti þrettán prósent frá þvi sem var 1977. Við höfum ákveðið fundaher- ferö á næstunni, það er fundi á vinnustöðum, þar sem kröfur okkar verða kynntar og fjallað um þau vinnubrögð sem höfð verða á i samningunum. Ég á von á fremur hörðum samningum”, sagði Magpús Einar að lokum, „likt og venju- lega er. Vinnuveitendur vilja öllu halda og engu sleppa og ég fæ ekki séð nein merki þess að þau viöhorf þeirra hafi breyst, þótt óskandi væri að þau gerðu það.” HV | Verslunin Drangey á Laugavegi hélt upp á 45 ára afmæli sitt nú fyrir helgina, og af þvl tilefni var opnuö ný deild sem verslar meö módelskó, þ.e. einungis eitt par er til af hverri gerö. Myndin er tekin á tiskusýningu I Drangey á afmælisdaginn. TImamynd:Ella Ekkert liggur fyrir um framtíð skólahússins íKrisuvik Kostnaðurinn við það kominn í 8-9 milljónir B „Enn er alveg óljóst hvaö biöur skólahússins i Krisuvik, sem hefur staöiö þar ónotaö frá árinu 1975. Kostnaöur viö bygg- ingu þess var á árinu 1975 kominn I rúmar 100 milljónir gamalla króna og ef sú upphæö er fram- reiknuö til dagsins I dag, þá má reikna meö aö kostnaöurinn sé á milliátta og niu milljónir króna”, sagöi Jón Guömar Jónsson, full- trúi I byggingadeild mennta- málaráöuneytisins. „Eins og allir vita þá stóö til að koma þarna upp skóla fyrir unglinga sem' eiga við félagsleg vandamál að etja en þegar til kom og það átti að fara að skipu- leggja skólastarfið, þá þótti það úrelt að hafa slikar stofnanir úti i sveit. „Siðan hafa margar hugmyndir skotið upp kollinum. Ein var að setja þarna upp meðferðarheimili fyrir drykkjusjúka, önnur að breyta byggingunni i fangelsi og margar fleiri hafa heyrst, en mér er ekki kunnugt um að nokkuð sérstakt sé i sjónmáli, varðandi nýtingu hússins”, sagði Jón. Blaöamaöur hafði spurnir af þvi að menn frá dómsmálaráðu- neytinu hefðu farið suður i Krisu- vik til að skoða húsið fyrir skömmu og þvi spurði hann Jón Thors deildarstjóra hvort dóms- málaráðuneytið hefði áhuga á að kaupa húsið. „Við fórum þarna suður eftir um daginn og skoöuðum húsið, þvi lengi hafa verið hugmyndir um aö breyta þvi i fangelsi. En við komumst að þvi að eins og er þá hentar þaö ekki vel undir fangelsi, i fyrsta lagi er það of stórt og siöan er það óþægilega langt frá byggðakjarna”, sagöi Jón. —Sjó

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.