Tíminn - 29.09.1981, Blaðsíða 7
ÞrlBjudagur '29. septeniber 1981
■LANDSFUNDUR brezka
Verkamannaflokksins hófst fyrir
helgina. Þess haföi veriö beöiö
með mikilli forvitni hvernig kosn-
ingu varaformannsins myndi
lykta, þvi aö hún þótti visbending
um, hvort flokkurinn myndi i
framtiðinni snúast meira til
vinstri, en liklegt þótti, aö þaö
yröi vatn á myllu hins nýstofnaða
flokks sósíaldemókrata.
Kœning varaformannsins fór
fram sffiastliöinn sunnudag á sér-
stökum kjörmannafundi, þar sem
40% fulltrúanna voru valdir af
verkalýössamtökum, 30% af
flokksfélögum og 30% af þing-
flokknum. Þetta er nýtt fyrir-
komulag, sem hefur verið knúiö
fram af vinstri arminum , en áöur
kaus þingflokkurinn bæöi for-
mann og varaformann flokksins.
Ekkert framboð var gegn for-
manninum, MichaelFoot, og var
hann þvi sjálfkjörinn. Hins vegar
bauð Tony Benn, leiötogi vinstri
armsins, sig fram gegn varafor-
manninum, Denis Healey.
Benn taldi sig ekki geta fellt
Foot, enda hefur hann verið tal-
inn til vinstriarmsins. Hins vegar
gerði hann sér meiri vonir um að
geta fellt Healey, sem er talinn til
■ Deuis Healey
Benn er sigur-
vænlegur næst
Sundrungin eykst í Verkamannaflokknum
hægri, og haföi beöiö óvæntan
ósigur fyrir Foot, er kosið var
milli þeirra, þegar Callaghan
sagði af sér formennskunni i
trausti þess, aö Healey yröi val-
inn eftirmaður hans.
Benn geröi sér þó tæpast vonir
um, aö hann myndi sigra Healey i
fystu atrennu. Hann lýsti þess
vegna yfir því, aö hann myndi
bjóöa sig fram aftur, þótt hann
félli nú. Framboð hans nii væri
aðeins áfangi aö. þvi marki aö
tryggja vinstri arminum yfirráö i
flokknum.
Von hægri manna i flokknum
var sú, að ósigur Benns yröi svo
mikill, aö ekki yröi efast um, aö
hægri armurinn myndihalda velli
i flokknum.
Þetta fór á annan veg. Þegar
kosið var i annarri umferö milli
þeirra Healeys og Benns, urðu úr-
slit þau, að Healey hlaut 50,4%
atkvæöa, en Benn 49,6%. Sigur
Healeys var þvi eins naumur og
verið gat.
FRÉTTASKÝRENDUR telja,
að þessi úrslit hafi verið hin
verstufyrir flokkinn sem hugsast
gátu. Klofningurinn i flokknum
muni nú magnast um allan helm-
ing, þvi að vinstri armurinn hafi
komizt svo nærri þvi aö sigra að
hann muni nú herða baráttuna
eftir megni. Ef þeir Benn og
Healey keppa aftur næsta haust,
mæli mörg riSc meö því, að hann
beri þá sigur af hólmi.
Meöal annars eru eftirfarandi
ástæöur tilgreindar.
Haldi atvinnuleysi áfram aö
aukast og kaupmátturinn að
minnka, eins og liklegt er, ef
Thaicher stjórnar áfram, mun
það styrkja vinstri arminn.
Reikna megimeöþvi, að fieiri og
fleiri fylgismenn Verkamanna-
flokksins snúist til liðs við hinn
nýja flokk sósialdemókrata og
muni það veikja hægri arminn og
trú á aö hann haldi velli.
Benn er slyngari áróðursmaður
en Healey og geöþekkari per-
sónuleiki. Þetta hefur vafalitið
orðið honum til framgangs nú og
getur þó reynzt honum enn
drýgra i framtiðinni.
Aö sjálfsögöu getur sitthvaö
gerzt, sem breytir þeirri mynd,
sem blasir við nú, en eins og viö-
horfin eru um þessar mundir, er
það engan veginn útilokað, aö
Benn eigi eftir aö taka viö forust-
unni af Foot,þegar þar aö kemur.
Ef til vili gæti það breytt þessu,
ef Healey drægi sig i hlé og sigur-
stranglegri maður keppti við
Benn um forustuna, t.d. John
Silkin, sem fékk 18% atkvæöa i
fyrri umferöinni.
■ Tony Benn
EN MYNDI sigur Benns i
Verkamannaflokknum þýöa hrun
flokksins inæstu þingkosningum,
eins og margir fréttaskýrendur
spá nú?
Þessari spurningu getur enginn
svarað meö vissu nú. Þetta ræöst
af þvi, hvernig stjórnmála-
ástandið þróast i Bretlandi næstu
misseri.
Eins og er blæs vindurinn með
kosningabandalagi Frjálslynda
flokksins og sósialdemókrata.Þvi
veldur ekki sizt andstaðan viö
hægri stefnu Thatchers og vinstri
stefnu Benns. Þetta getur hins
vegar breytzt.
Ef Thatcher tekst aö halda
óbreyttri stefnu áfram og efna-
hagsástandið heldur áfram aö
versna, getur þaö almenningsálit
skapazt, aö nú dugi ekki neitt
annaö en aö gripa til róttækra
ráöa. Þágetur t.d. mál eins og úr-
ganga úr Efnahagsbandalaginu
orðið gott kosningamál. Versn-
andi efnahagsástand i Bretlandi
er vafalitið hagstætt Benn
pólitiskt.
Þá verður að taka kjör-
dæmafyrirkomulagið meö i
reikninginn. Kosið er i einmenn-
ingskjördæmum, án uppbótar-
sæta. Fræðilega er vel mögulegt,
að Verkamannaflokkurinn geti
fengiö meirihluta á þingi, þdtt
hann fái ekki nema 30-35%
heildaratkvæðanna. Raunar fékk
Ihaldsflokkurinn ekki mikiö
meira fylgi i siðustu þingkosning-
um.
Taki kosningabandalag frjáls-
lyndra og sósi'aldemókrata meira
fylgi frá thaldsflokknum en
Verkamannaflokknum, eins og
skoöanakannanir hafa sýnt aö
undanförnu, getur það hjálpað
hinum siöarnefnda i kosningun-
um.
Þaö þykirsamt ekki sennilegt á
þessu stigi, aö Benn eigi eftir aö
verða forsætisráðherra Bret-
lands, en útilokaö er þaö ekki
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Tíu fórust í
sprengingu í
Líbanon í gær
■ 1 fréttum frá Libanon segir
aö minnst tiu manns hafi týnt
lifi og fjölmargir hafi særst, i
mikilli sprengingu, sem varö
viö vegatálma á þjóövegi þar i
landi i gær. Sprengingunni olli
bifreiö, hlaöin sprengiefni en
undanfarið hefur gengið yfir
landiö alda slikra sprengitil-
ræöa. Vegatálminn, sem
sprengingin varö viö i gær,
var mannaöur Palestinu-
mönnum og vinstri sinnuöum
Libönum og voru hinir særöu
og föllnu flestir úr þeirra hópi.
Þá sprakk sprengja i Beirút,
höfuöborg Libanon, aðfara-
nótt gærdagsins og olli hún
töluveröu tjóni, en varö eng-
um aö fjörtjóni.
Hópur manna, sem nefna
sig Baráttufylkingu fyrir
frelsun Li'banon frá útlending-
um, hefur lýst sér á hendur
ábyrgöina af sprengitilræðum
þessum. Ifréttum frá Libanon
segir að ekki sé ljóst hverjir
standi i raun að baki samtök-
um þessum. Eftir fyrsta
sprengitilræði þeirra héldu
Palestinumenn þvi fram, aö
útsendarar Israelsrikis stæöu
að baki tilræðinu og notuöu
samtök þessi aöeins sem
gri'mu. Undanfarið hafa þær
skoðanir styrkst mjög aö
annaö hvort standi Israelar að
baki tilræðunum, eðaþá hægri
sinnaöir Libanir, sem hafi
sterk tengsl viö Israelsmenn.
EINING TAKI
VIÐ AF KOR
■ Ein helstu samtök andófs-
manna i' Póllandi, Varnarráð
Verkamanna, eða KOR, til-
kynnti i gær, að þaö heföi veriö
leyst upp og myndi Eining,
samtök óháöra verkalýös-
félaga i Póllandi, taka við
hlutverki ráösins. I ræðu á
þingi Einingari gærsagöi einn
af stofnendum KOR aö það
væri nú hlutverk Einingar að
halda uppi baráttunni fyrir
mannréttindum og raunsönn-
um sósialisma i Póllandi.
Sagöi hann að gæta þyrfti að
þvi, aö enn væru til þeir ráöa-
menn í Póllandi, sem vildu
taka upp gömlu aöferöirnar og
endurreisa sósialisma lög-
reglu, fangelsa og ritskoöunar
i landinu.
KOR var stofnað fyrir fimm
árum siöan, til þess að verja
verkamenn, sem handteknir
voru vegna verkfallanna i Pól-
landi áriö 1976. Hefur ráöiö oft
veriö gagnrýnt, af bæöi pólsk-
um og sovéskum ráöamönn-
um, og saka um and-
byltingarsinnaöa starfsemi.
Verðhrun
á verðbréfa-
mörkudum
■ Töluvert veröfall varð á
alþjóölegum verðbréfamark-
aöi i gær og um sig greip ugg-
ur um ástand alþjóölegra
efnahagsmála. Mikið verðfall
varð til dæmis i London, New
York, Sidney, Hong Kong,
Torontoog i Paris. 1 Lundún-
um féllu veröbréf niður um
fjórtán prósentustig igærog á
timabili voru þau komin niður
um þrjáti'u stig, en réttu sig
töluvert af siöari hluta dags. 1
New York fór verðfall i fjórtán
stig, en rétti sig einnig af
nokkuð.
Taliö er aö veröfallá banda-
riskum verðbréfamarkaði
hafi orsakast aö miklu af há-
um vöxtum i' Bandarikjunum,
svo og miklum halla á fjárlög-
um, en Reagan, Bandarikja-
forseta, gengur illa aö ná þvi
marki slnu aö gera fjárlög
hallalaus.
Um tima greip um sig mikið
söluæöi á veröbréfamarkaði i
New York.
ÍRAN/IRAK: Talsmaöur Irakska hersins skýröi frá þvi i gær aö
trakir heföu hörfaö frá umsátri sinu um oliuborgina Abadan I
lran, en Iranir skýröu frá þvi á sunnudag, aö hersvetium þerira
hefði tekist aö rjúfa umsátur Iraka um borgina. Umsátriö hefur
staöiö i rúmt ár.
KANADA: Hæstiréttir I Kanada úrskuöraöi i gær aö stjórnvöld
þar i landi heföu lagalegan rétt til þess aö gera breytingar á
stjómarskrá landsins og setja hana undir stjórn Kanadamanna
sjálfra, I staö þess aö hún sé i breskum höndum.
DANMÖRK: Anker Jörgensen, forstætisráöherra Danmerkur,
hótaöi i gær aö efna til kosninga i landinu I haust, ef samstarfs-
flokkar hans I rlkisstjórn fylgdu honum ekki aö málum meö
frumvarpiö um hækkun skatta á lifeyrissjóöi og tryggingafélög.
Sagöi ráöherrann i ræöu á þingi danskra verkakvenna, aö þaö
skipti miklu máli hvar fjármunum lifeyrissjóöa og trygginga-
félaga væri komiö fyrir og mikilvægt væri aö þessir aöilar veittu
meiru af fjármunum sinum út I atvinnulifiö, I staö þess aö festa
þá i verðbréfum og fasteignum.
SOVÉTRIKIN: Bandariskir embættismenn komu i gær til
Moskvu til aö ræða viö Sovétmenn um aukin kaup þeirra á
bandarisku korni.