Tíminn - 29.09.1981, Page 23

Tíminn - 29.09.1981, Page 23
Þriðjudagur 29. september 1981 t »> _ 23 Þórleifur Bjarnason rithöfundur F. 30. jan. 1908. D. 22. sept. 1981 I BÞórleifur Bjarnason fyrrv. námsstjóri og rithöfundur verður jarðsunginn frá Akraneskirkju i dag, en á Akranesi var hann bii- settur í 16 ár eða 1955-1971. Hann eignaðist hér sterk itök i hugum manna og kom víða við á ekki lengri tima. Minning hans mun þvi geymast hjá mörgum, uns yfir lýkur. Þórleifur var fjölhæfur gáfu- maður — vel menntaður og marg- fróður. Hann hafði einstaka frá- sagnarhæfileika og næmt skop- skyn. Skáldmæltur vel og góður leikari. Hann var heilsteyptur drengskaparmaður og talaði tæpitungulaust, þegar honum fannst rangt og ósæmilega að málum staðið, hver sem i hlut átti. Það var eftir þvi tekið, þegar hann kvaddi sér hljóðs. Hinsveg- ar gerði hann það ekki, nema gildar ástæður væru til. Hann helgaði lif sitt kennslu og náms- eftirliti, auk þess sem hann var mikilvirkur rithöfundur. Þegar Þórleifur flytur til Akra- ness er hann á besta aldri með mikla starfsreynslu að baki. Hann hafði þá samið Horn- strendingabók, sem kom Ut 1943. Merkilegt ritverk um þessa nyrstu byggð Islands, sem nú er löngu komin i eyöi. Þar að auki höföu komið út eftir hann nokkrar skáldsögur. Fyrir bókmenntir þessar var Þórleifur cg’ðinn þjóð- kunnur maður. Hann hafði verið kennari og námsstjóri á Vest- fjörðum i 25 ár — lengst af á Isa- firði. Umdæmi námsstjóra haföi verið stækkað og Vesturlandi bætt við. Búseta á Akranesi var þvi að ýmsu leyti þægilegri en vestra. II A Akranesi tók Þórleifur þátt i ýmsum félagsmálum. Hann átti sæti i stjórn bókasafnsins og var formaður hennar um langt skeið. Aþeim árum var undirbúin bygg- ing bókhlöðu og framkvæmdir hafnar, ensafnið hafði lengi bUið við þröngan hUsakost. Þar gafst honum tækifæri til að marka stefnuna i byggingarmálum safnsins, en almenningsbókasöfn voru eitt af áhugamálum hans. Hann tók strax þátt i störfum Leikfélags Akraness, sem var .með miklum blöma á þeim árum. Lék hann mörg veigamikil hlut- verk t.d. Jón Hreggviðsson i Is- landsklukkunni, sr. Sigvalda i Manni og konu, Jón bónda i Gullna hliðinu og álfakónginn i Nýársnóttinni, svo nokkur dæmi séu nefnd. öllum þessum hlut- verkum skilaði Þórleifur með ágætum og var það almannaróm- ur, aö þaulvanir leikhUsmenn hefðu vartgert betur. Hér var um merkilegt menningarstarf að ræða. Bókmenntaklúbb stofnaði hann, ásamt öðru áhugafólki um bókmenntir. Kom hann reglulega saman til umræðu um einstaka höfunda og verk þeirra. Þá var hann virkur félagi i reglu Góö- templara, Norræna félaginu og Oddfellowreglunni. Ritstörf stundaði hann jafnan með störf- um sinum. III Ungur að árum geröist Þórleif- ur lýðræðis jafnaðarmaður. A tsafirði voru samtiða honum margir hinna skeleggustu for- ustumanna þeirra i landinu. Með þeim átti Þórleifur langt sam- starf. En gagnvartöllumstefnum var Þórleifur sjálfstæður og lét fyrst og fremst rödd samvisku sinnar ráða afstöðu til einstakra mála og atburða. Hinn mikli söguskýrandi hafði löngu gert sér ljóst að drengileg vopnaviðskipti eru meira metin á spjöldum sög- unnar, en rógur og lýgi. Það var Þórleifi lif og yndi að taka upp baráttu gegn slæmum áformum og ódrengilegum vinnubrögðum. Þá færðisthann allur i aukana og varð ungur i annað sinn. Mér eru sérstaklega minnisstæð tvö póli- tisk mál á Akranesi frá fyrstu ár- um hans hér, sem flokksbræður hans höfðu forustu fyrir, en hann snérist gegn. Bæði þessi mál urðu til þess, að Alþýðuflokkurinn galt mikið afhroö. Þessi — annars hlé- drægi maður — gat gengið sem vikingur i fylkingarbrjósti, þegar honum fannst valdni'öslan og ódrengskapurinn verða alls ráð- andi. Áslilcum stundum var Þór- leifur stór og af þeim var hann stoltur, þegar um hægiist. Hann kunnilika að meta menn, sem létu sannfæringuna ráða og töluðu tæpitungulaust mál, sem eftir var tekið. Þess vegna hafði hann miklar mætur á Jóni Vida- lin, Vilmundi landlækni og sr. Sigurði i Holti. Þetta voru menn að hans skapi, sem hann vitnaöi oft til. IV Ég gat þess hér að framan aö Þórleifur var mikill áhugamaður um bókasöfn og tók sæti i stjórn bókasafnsins á Akranesi nokkru eftir komu sina þangað. Sam- þykkt var i júli 1960 aö byggja nýja bókhlöðu. Framkvæmdir drógust nokkuð, en 1969 var húsiö orðið fokhelt. Myndarlegt hús — kjallariog tvær hæðir. Varþað aö sjálfsögðu sérhannað sem bóka- safn. A fundi i bæjarráði Akraness þann 18. nóv. 1969 skeður sá óvænti atburöur, að fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins i bæjarráði flutti tillögu um, að athugun færi fram á þvi, hvort ekki væri rétt að breyta bókhlöðunni i elliheimili og kaupa hæð ihúsinu Skólabraut 21, fyrir bókasafnið. Þarna átti með einu pennastriki að eyði- leggja tvær stofnanir bæjarins sem Akurnesingar nú, eru hvað stdtastir af. Fulltrúi Alþýðu- flokksins féllst á tillöguna að svo 'stöddu og var hún samþykkt i bæjarráði með 2:1 Þegar Þórleifur hafði spurnir af samþykkt þessari reis hann upp og geislaði af honum baráttu- gleðin. Þar fór saman harka og háð og beittihvorutveggja óspart. Hann hélt fljótlega fund i stjóm bókasafnsins sem mótmælti þess- um áformum eindregið. Hann skrifaði ennfremur blaðagrein um málið og segir þar á einum stað: ,,Það væri raunalegt og skop- legt isenn, ef bæjarstjdrn hlypi i miðjum klíðum frá — að mörgu leyti stórmanniegu framtaki til menningarmála bæjarins — og gerði húsið að umskiptingi... Bókasafnshúsið gæti varla orðið annaðen léieg bráðabirgðarlausn á elliheimflisþörfinni. Og kaup á einhverju húsnæði handa bóka- safninu yrði enn verri bráða- birgðarlausn”. Hér var ekki talað neinni tæpi- tungu. Lyktirþessa málsurðu svo þær, að á bæjarstjórnarfundi þann 12. des. 1969 var samþykkt með 5:3 atkv. eftirlangar og itar- legar umræður — að engar breytingar skyldi gera á bygg- ingaráætlun bókasafnsins. Sjálf- stæðismenn einir greiddu atkv. gegn þessu og einn þeirra sathjá. Opnun bókasafnsins og rekstur þess i nýjum húsakynnum varð Þórleifi mikið gleöiefni, þótthann nyti þess ekki sjálfur. Einaröleg afstaða Þórleifs i máli þessu — átti sinn þátt i' þvi — að hér varð ekki slys. Hún lýsir ennfremur vel dómgreind hans og baráttu- gleði, þegar honum fannst rangt að málum staðið. V. Mér er kunnugt um þaö, að Þórleifur var á feröum sínum sem námsstjóri hinn mesti au- fúsugestur. Hann var mildur og sanngjarn leiðbeinandi. Vel að sér um alla hluti og hafði mikla reynslu af kennslustörfum. Hann var skemmtilegur i umgengni og hafði frá mörgu að segja og frá- sagnarlistin brást ekki. Þegar hann lét af störfum námsstjóra upp úr 1970 var búið að útrýma farkennslunni á Vesturlandi og allsstaöar komnir fastir skólar. Það tók námsstjórana langan tima að þoka málum þessum áfram, þvi viða lá ekki ljóst fyrir, hvernig skipting ætti að vera á' skólahéruðunum og ekki alltaf auðvelt aö sameina sveitafélögin um barnaskóla á stöðum, sem voru i verulegri fjarlægð frá heimasveitinni. Þórleifur var mjög laginn að vinna forustu- menn skólahéraðanna til sam- starfs i þessum efnum og átti traust þeirra. VI Þórleifur kvæntist þann 15. sept. 1935 — Sigriði Friðriksdótt- ur Hjartar — mikilli mannkosta og dugnaöarkonu — sem lést i febr. 1972 mjög um aldur fram og varð öllum harmdauði, sem hana þekktu. Börn þeirra eru f jögur og hafa öll stofnað eigin heimili. Þau eru: Þóra bókasafnsfræðingur og læknisfrú i Jessheim i Noregi, Hörður tannlæknir á Akureyri, Friðrik Guöni tónlistarmaður og kennari á Hvolsvelli og Björn skólastjóri aö Húsabakka i Svarfaðardal. Allt er þetta vel menntað mannkostafólk. Heimili Þórleifs og Sigriðar Hjartar var mikill rausnar- garður.sem margir minnast með sérstöku þakklæti. Gestrisnin var einlæg og sönn. Þjóðleg menning og heilbrigð li'fsviðhorf sátu þar i öndvegi. Mér finnst að það hafi verið mikill fengur fyrir Akranesbæ, að atvikin höguðu þvi svo að þessi fjölhæfi Hornstrendingur skyldi eiga hér heimili um sinn. Spor hans hverfa ekki, þótt dauðinn hafi snögglega kippt honum úr hópnum. Endurminningar um góða menn lifa — löngu eftir dauðann og fylgja kynslóðunum, eins og sólskinsblettir horfinna daga. Minning Þórleifs ris hátt — traust og svipmikil — eins og fjöllin vestra, sem stóðu vörö um hann ungan og hann hélt tryggð við til æviloka. Dan. Agústinusson. Framandi menning í framandi landi Hefur þú áhuga á aö búa eitt ár í framandi landi? • Viltu auka þekkingu þína á umheiminum? • Viltu kynnast iifnaöarháttum annarra þjóöa? • Viltu verða víðsýnni? • Viltu veröa skiptlnemi? Ef svariö er já, hafðu samband við: á Islandi Umsóknarfrestur er fró 7. sept. til 2. okt. Hverfisgötu 39. — P.O. Box 753-121 Reykjavík. Sími 25450— Opiö daglega milli kl. 15—18. eftir helgina SÓL OG REGN Veðurguðimir voru dálálit- ið ósanngjarnir um helgina, skaplegt veður um vestanvert landið, en hellirigning á austanverðu landinu svo mik- il, að fjöllin misstu niðmm sig, og brúnar aurskriður runnu yfir vegi, brutu upp kjallara i húsum og vatnið flaut um allt. Nýjar ár byrjuðu að renna, en aðrar eldri stifluðust, og a.m.k. á einum stað lá viö mannskaða, en þar var veg- hefilsstjóra naumlega bjargað ur vatnsflauminum með flug- linutækjum, eins og notuð er við aö bjarga mönnum gegnum brimgarðinn úr strönduðum skipum. Já, sambýlið við fjöllin er örðugt viða á tslandi, kaup- staöir og sjávarpláss voru byggð undir svipþungum bröttum fjöllum og i snjó- þyngslum og stórrigningum, getur alltskeð. Og þótt oft séu sléttir dalbotnar aðeins stein- snar innar i firöinum, grös- ugar sléttur og kjarr, hefur það land ekki verið tekið af sauðkindinni, heldur er haft til sveitabúskapar.þvi' einu sinni héldust útgerð og land- búnaöur svo að segja i hendur, og hver fjörður var sjálfum sér nógur um mat, sumsé búvörur og soðningu. Nú er þetta hins vegar breytt. Offramleiðsla er á sumum búvörum, og fisk- iðnaðurinn krefst meiri mann- afla en svo, aö grasbýlin i dalnum geti annað búvöru- framleiðslunni, og þvi kannske eölilegast að menn fengju land undir hús á örugg- um stað, þar sem þeir væru ekki innan seilingar frá snjó- flóðum og aurskriðum. En einhverra hluta vegna hafa menn þó ekki farið undan fjöllunum með sitt, heldur byggja áfram sin gömlu út- ræöi og verslunarstaði, rétt eins og ekkert hafi i skorist. Þó munu stöku hús hafa verið bannfærð til ibúöar, nema yfir hásumarið, og standa þau auö aö vetrarlagi. Sildarfabrikkur og önnur stór mannlifsigildi hafa þó viða fengið land hjá sauðkindinni i dölunum og öruggt skjól fyrir náttúru- hamförum. Nýr biskup tekur við störfum I Reykjavik og á suðurlág- lendinu var innsetning herra Péturs Sigurgeirssonar, bisk- ups, aðalviðburöur þessarar helgar. t fögru haustveðri lék sól um æöstu menn kirkjunnar og okkur, sem hér eigum heima. Almenningur sýndi þessari athöfn mikinn áhuga, og er þaö mjög i anda vorra tima. Eftir að menn höfðu i nokkra áraugi reynt að komast afán guðs.með mikilli hagfræði, sjúkrasamlögum, sálarfræði og skólarannsökn- um, hefur þeim oröiðþaö ljöst, að fagurt mannli'f verður ekki búið til með neinni heildarlög- gjöf, eða bókhaldi. Innri þarfir mannsins verður einnig að seðja með einhverjum hætti, og þau alifuglabú, sem menn nefna stundum vel- ferðarriki, eru of innantóm og vélræn fyrir manninn. Kirkj- an, eöa trúarbrögöin eru nú aö leggja hvert ri'kið af ööru undir sinn væng, og þótt reynsian af klerkaveldinu sé ekki alltaf upp á marga fiska, er það athyglisvert að menn vilja nú einhverra hluta vegna heldurlifa, eða deyja fyrir trú sfna en hagfræöina og sjúkra- samlagið. Er Pólland gott dæmi um það. Dáli'tið hefur veriö um það rætt hér á landi, aö grundvöll- ur væri nú, eftir mik-lar trúar- lega deyfð i landinu til að stofna kristilegan stjórnmála- flokk á tslandi, til að hamla á móti peningatrúnni og hinni hagfræðilegu innrætingu. Hvort sem af því veröur, eöa ekki, munu mikil verkefni bíða kirkjunnar og hins nýja biskups á næstu árum. Það er vindur í seglunum núna, og kannski stormur á næsta leyti. Jónas Guðmundsson, rithöfundur, skrifar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.